Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 102
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
B L A C K
F R I D AY
20% AFSL ÁT TUR
AF ÖLLUM VÖRUM*
OPIÐ T IL 22 Í DAG FÖS. 26. NÓV.
®
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð og ekki af vörum frá Hästens.
**Fast verð á smávörusendingum úr netverslun: 500 kr. með Dropp 950 kr. með
Póstinum í póstbox eða pakkaport.
SMÁVÖRUPANTANIR YFIR 9.900 KR. ERU SENDAR FRÍTT TÍMABUNDIÐ
Í DROPP EÐA PÓSTBOX OG PAKKAPORT PÓSTSINS**
25%
AFSL ÁT TUR
Timeout svartur hægindastóll með
skammel. Fullt verð: 409.980 kr.
Tilboð 307.484 kr.
Logan Hettupeysa
Nú kr. 5.243.-
Kr. 6.990.-
allt að 50% afsláttur
25% af öllum hettupeysum
Klemenz
Hettupeysa
Nú kr. 6.743.-
Kr. 8.990.-
KONFEKTHNAPPAR Í HÁTÍÐARBÚNINGI
Þegar heimspressan birti ljós
myndir af leikaranum Leonardo di
Caprio í sæmilegum holdum varð
hugtakið pabbakroppur til. Það
vísar til karlmanns sem er svolítið
búttaður, jafnvel skriðinn yfir þrí
tugt, samt flottur. Næstur í stigveldi
flottra karla er svo silfurrefurinn.
Hann er gjarnan skriðinn yfir fimm
eða sex tugi, samt flottur.
Þessi ímynd speglast í kvik
mynd unum sem draumaverk
smiðjan í Hollywood fram
leiðir fyrir okkur. Njósnari
hennar hátignar hefur til að
mynda hneigðir til talsvert yngri
kvenna, en mesti aldursmunur
karlhetju og kvenhetju í Bond
mynd er 29 ár.
Undanfarnar vikur hafa fjöl
miðlar heimsins birt ljósmyndir
af söguhetjunum og vinkonunum
Carrie, Charlottu og Míröndu, við
upptökur framhaldsþátta Beðmála
í borginni. Sem betur fer hafa þær
elst svolítið frá árinu 1998, annars
væru þær tæpast á lífi. Fréttir
heimspressunnar hafa þó ekki
fjallað um mömmukroppa eða
silfurtófur. Umfjöllunarefnið er
annað hvort hrukkur leikkvenna
eða grá rót. Efni sem sannarlega
stöðvar prentvélarnar. Aðrar fréttir
fjalla um lýtaaðgerðir einnar leik
konunnar, sem þykja svo svaka
legar að fréttafólki liggur við and
nauð. Skilaboðin eru óljós. Hvort
er verra að eldast náttúrulega eða
með aðstoð lýtalækna? Það myndi
auðvelda konum að beina útlits
komplexunum í réttan farveg að fá
þetta á hreint.
Á meðan söguhetjan Herra Stór
safnaði í krúttlegan pabbakropp,
kannski líka hækkandi kollvik og
vaxandi skallablett, urðu skvís
urnar í Beðmálunum fimmtugar.
Bara si svona. Því ber að fagna. n
Silfurtófur
í borginni