Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 98

Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 98
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Þetta var mjög skemmtilegt en mjög taugatrekkjandi. Jólakettir úr stráum koma til með að prýða glugga Ramma- gerðarinnar á Skólavörðustíg fram að jólum. Jólakötturinn er að þessu sinni hannaður af Hönnu Dís Whitehead, á vinnustofu hennar í Nesjum á Hornafirði. arib@frettabladid.is Þetta er annað árið í röð sem jóla- kötturinn kemur í Rammagerðina. Stefnt er að því að á hverju ári fái nýr íslenskur hönnuður verkið og það verði eins konar safngripur í anda Georg Jensen-jólaóróanna, nema í öllu takmarkaðra upplagi, en Hanna kláraði þrítugasta og síðasta köttinn á þriðjudag. „Jólakötturinn í fyrra var svo frábær því hann var búinn til úr endurunnum efnum og mig langaði að halda áfram að búa hann til úr einhverju sem væri skaðlaust,“ segir Hanna. „Ég fékk verkefnið í sumar og síðan þá var ég búin að vera að horfa á norrænt jólaskraut. Við þekkjum öll IKEA-geitina, en það er til svo miklu meira sem er búið til úr stráum. Ekki bara á Norðurlöndunum heldur er líka hefð fyrir því um alla Evrópu að nota strá, þannig að mig langaði að prófa að takast á við þann efnivið,“ segir Hanna, sem hefur lagt töluverða vinnu í kettina. Hafrar í sól eins og gull „Ég var svo heppin að ég fékk bænd- ur hérna á svæðinu til að vinna með mér. Ég fór að skoða mismunandi strátegundir, var að skoða bygg, hamp og melgresi, en endaði á því að fá hafra á bænum Akurnesi hérna í Nesjum í október. Gljáinn á hafra- stráunum er sérstaklega fallegur og þegar sólin skín á hreinsað strá er það eins og gull.“ Hanna notar 94 strá í hvern jóla- kött. „Þetta var mjög skemmtilegt en mjög taugatrekkjandi, því ég þurfti að bíða eftir að efniviðurinn yrði tilbúinn. Út í óvissuna Ég þurfti bara að bíða á meðan kornið þroskaðist, áður en það var hægt að gera tilraunir. Ég viður- kenni að ég vissi ekki alveg hvað ég var að fara út í,“ segir Hanna og hlær. „Það fór talsverð vinna í að hreinsa stráin. Það þarf að taka utan af þeim og klippa hafrana af hverju einasta strái. Ég bleyti þau síðan og þá verða þau mjúk og hægt að móta þau.“ Hanna bætir við að það hafi tekið hana smá tíma að finna rétta formið á jólaköttinn, ekki síst með tilliti til þess að hann gæti örugglega staðið á eigin fótum. Auk þess hafi hún haft það markmið að engir tveir kettir séu nákvæmlega eins. „Síðan bind ég stráin saman með línþræði og vef litríkum ullar- þræði utan um kettina og þá loksins þurrka ég þá.“ Á ekki samleið með kertum Hanna segir að hún muni klárlega notast við strá aftur í náinni fram- tíð. „Ég bý uppi í sveit og keyri alla morgna fram hjá svo mögnuðum stráum. Ég var alltaf að hugsa að ég þyrfti að gera eitthvað með þau,“ segir Hanna, sem stefnir á frekari vörutilraunir með strá á næstunni. „Það er hægt að skera þau niður og nota eins og þráð. Það var gert í Sviss og bróderað með stráum. Á Íslandi voru þau til dæmis notuð í undirlag undir hnakka, í Skaftafells- sýslu voru gerðar körfur úr melgresi. Mig klæjar í fingurna að gera meira með þeim.“ Stráin ættu að endast í langan tíma „Stráin eru sterkari en ég hélt og þurr geta þau enst mjög lengi.“ Hanna ræður fólki þó frá því að hoppa á jólakettinum. Hann er of viðkvæmur til þess en honum fylgir góður kassi sem hægt er að geyma hann í milli ára „Svo er bara að halda honum frá kertum.“ n Stráum stungið í jólaketti Hanna Dís Whitehead starfar í Austur- Skaftafellssýslu. MyND/AÐSEND Feldurinn á jólakettinum er úr íslenskri ull. Engir tveir eru eins. MyND/SUNNA BEN odduraevar@frettabladid.is „Þetta er tilboð ársins,“ segir Stein- unn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi, en á þeim bænum er boðið upp á 50% verðhækkun á vítamínbættu jarðhnetumauki á vefnum sannargjafir.is í tilefni af svörtum föstudegi. „Við gefum nefnilega engan afslátt af baráttu okkar gegn hungursneyð.“ Jarðhnetumaukið gerir að sögn Steinunnar kraftaverk fyrir van- nærð börn. „Síðustu ár hefur verið vel tekið í þessar verðhækkanir hjá okkur, enda um að ræða lífs- nauðsynlegar gjafir sem fólk getur verslað og þannig gefið helmingi meira,“ segir hún. „Neyð barna í heiminum í dag er gífurleg út af áhrifum kórón- aveirunnar,“ segir Steinunn. Fæðu- óöryggi bitnar verst á einum hópi, ungum börnum. „Af öllum öðrum vörum er svo 0 prósent afsláttur enda gefum við engan afslátt af rétt- indum barna.“ Steinunn bætir við að UNICEF útvegi börnum bóluefni gegn alls konar lífshættulegum sjúkdómum. „Og það verður hægt að gera stórgóð kaup á morgun.“ n Vítamínbætt fössaraverðhækkun Steinunn með dóttur sína, Ylfu Björk Andradóttur, í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI B ra n d e n b u rg | s ía ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR 72 Lífið 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.