Fréttablaðið - 10.12.2021, Side 2
Fólkið frá Hjálpræðis-
hernum kemur með
svo mikla hlýju og
fallega orku með sér og
það eru allir alsælir.
Hafdís Hilmarsdóttir,
skólastjóri Fossvogsskóla
Árni hefur endurgreitt
félaginu 4,7 milljónir.
Sköruðu fram úr
Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir og sundmennirnir Már Gunnarsson og Róbert Ísak Jónsson voru í gær útnefnd íþróttafólk ársins 2021 hjá
Íþróttasambandi fatlaðra. Bergrún Ósk er íþróttakona ársins hjá sambandinu fjórða árið í röð, en það hefur einungis Kristín Rós Hákonardóttir afrekað áður.
Ingi Þór Einarsson og Kári Jónsson, fráfarandi yfirmenn landsliðsmála hjá Íþróttasambandi fatlaðra, fengu Hvataverðlaunin 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
G
L
E
Ð
I
L
E
G
A
H
Á
T
Í
Ð
2
0
2
1
G
L
E
Ð
I
L
E
G
A
H
Á
T
Í
Ð
2
0
2
1
Salan er han á
kærleikskúlan.is
og í gjafavöruverslunum
um land allt.*
Allur ágóði rennur
til starfs í þágu fatlaðra
barna og ungmenna.
Sölutímabil: 9.– 23. des.
*takmarkað upplag.
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Enginn sem fengið hefur
bólusetningu gegn Covid-19 hefur
verið lagður inn í endurhæfingu
vegna langvarandi Covid-einkenna
á Reykjalund.
Stefán Yngvason, framkvæmda-
stjóri lækninga á Reykjalundi, segir
langvarandi einkenni Covid, eða
Long Covid, miðast við að einstakl-
ingur sem fengið hafi sjúkdóminn
hafi einkenni sem vari í þrjá mánuði
eða lengur.
„Að mér vitandi hefur enginn
þeirra sem lagðir hafa verið inn verið
bólusettur,“ segir hann.
Hér á landi eru 90 prósent lands-
manna sem náð hafa tólf ára aldri
bólusett. Hæst hlutfall óbólusettra
er í aldurshópnum 12-15 ára, tæp 23
prósent.
Rúm fjórtán prósent á aldrinum
30-39 ára eru óbólusett og tæp þret-
tán prósent fólks á aldrinum 16-29
ára.
Óbólusettir eru um þrefalt lík-
legri til að smitast af Covid-19 og
fimm sinnum líklegri til að leggjast
inn á sjúkrahús vegna sjúkdómsins,
samkvæmt upplýsingum frá sótt-
varnalækni á vefsíðunni covid.is.
Í gær var 21 inniliggjandi á
sjúkrahúsi vegna Covid-19. Fimm
lágu á gjörgæslu. Sólarhringinn á
undan greindust 149 smit innan-
lands. 83 þeirra voru hjá óbólusettu
fólki. n
Engir bólusettir þurft endurhæfingu
Stefán Yngva-
son, fram-
kvæmdastjóri
lækninga á
Reykjalundi
Hjálpræðisherinn sér um
matseld fyrir nemendur í
Fossvogsskóla. Krakkarnir
fengu inni hjá Hernum þegar
viðgerð stóð yfir á skólanum
og vildu alls ekki missa mat-
inn frá honum þegar skólinn
var tekinn í gagnið á ný.
elinhirst@frettabladid.is
SKÓLAMÁL „Þetta er hollur og góður
matur, fjölbreyttur og greinilega
eldaður af miklum kærleika,“ segir
Hafdís Hilmarsdóttir, skólastjóri
Fossvogsskóla, en skólinn hefur gert
samning við Hjálpræðisherinn um
að hann eldi mat fyrir börn í 1. til 4.
bekk skólans.
Börn úr Fossvogsskóla fengu að
nýta húsnæði Hjálpræðishersins í
upphafi skólaárs vegna viðgerða á
Fossvogsskóla. Þau voru svo hrifin
af matnum hjá Hernum að ákveðið
var að semja við Hjálpræðisherinn
um að hann héldi áfram að elda mat
fyrir nemendur eftir að skólastarfið
var flutt aftur í Fossvogsskóla.
„Þau elda þetta hjá sér í nýjum
húsakynnum Hjálpræðishersins
að Suðurlandsbraut 72 og koma
svo með matinn til okkar í hverju
hádegi,“ segir Hafdís.
Skólastjórinn segir mikla ánægju
hjá öllum með matinn og þjónust-
una.
„Starfsfólkið frá Hernum er
dásamlegt. Þau sjá um þetta allt
saman, elda matinn, koma með
allan búnað, svo sem leirtau, og gefa
börnunum að borða. Það þarf lagni
til þess að láta þetta ganga vel, því
að við erum ekki með matsal heldur
borða börnin í skólastofunum,“
segir Hafdís ánægð.
„Fólkið frá Hjálpræðishernum
kemur með svo mikla hlýju og fal-
lega orku með sér og það eru allir
alsælir með þetta fyrirkomulag,“
heldur Hafdís áfram.
Sigrún Hauksdóttir, móttöku-
stjóri Hjálpræðishersins, segir skóla-
krakkana hafa komið til þeirra í lok
ágúst,
„Við vorum tvær hérna hjá Hern-
um sem heyrðum af húsnæðisvanda
barnanna, en í ljós hafði komið að
skólinn var ónothæfur vegna myglu,
svo við buðum fram aðstoð okkar.
Við erum með fyrsta f lokks hús-
næði, stórt eldhús og atvinnumann
til að elda, enda tökum við á móti
100-170 manns daglega í mat.“
Sigrún segir að þegar börnin fóru
aftur í Fossvoginn hafi Herinn verið
beðinn að halda áfram að elda.
„Við gefum nemendunum heim-
ilismat, úr fyrsta flokks hráefni og
notum mikið grænmeti. Við eldum
allt frá grunni og reynum að hafa
fisk að minnsta kosti tvisvar í viku,“
segir Sigrún.
Í gær var gamaldags plokkfiskur á
boðstólum með rúgbrauði og kart-
öflum – sem gerði augljóslega mikla
lukku hjá krökkunum.
„Oft koma þau hlaupandi um leið
og við komum og hrópa „hvað er í
matinn, hvað í matinn?“ því þau eru
svo spennt,“ segir Sigrún.
Helst segir Sigrún að börnin
kvarti undan gufusoðnum fiski.
„En þá fá þau sér bara tómatsósu út
á fiskinn,“ bendir hún á.
Sigrún segir að síðan séu á boð-
stólum alls kyns fiskréttir sem
börnin séu mjög hrifin af. Einnig
kjúklingur, slátur og fleira.
„Þetta eru ofsalega góðir og kurt-
eisir krakkar sem borða mjög vel,“
segir Sigrún Hauksdóttir móttöku-
stjóri Hjálpræðishersins. n
Herinn vekur lukku meðal
krakkanna í Fossvogsskóla
Börnin í Fossvogsskóla voru í jólaleg í hádeginu í gær þegar þau þáðu góm-
sætan plokkfisk hjá starfsfólki Hjálpræðishersins. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞRÓ
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Árni Birgisson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri ÍR,
var dæmdur í fimm mánaða skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, fyrir að hafa dreg-
ið sér fé úr sjóðum félagsins meðan
hann gegndi starfinu.
Árni var sýknaður af ákæru um
peningaþvætti. Farið var með málið
sem játningarmál og því fór engin
eiginleg aðalmeðferð fram í málinu,
að því undanskildu að málið var
flutt munnlega um peningaþvættis-
þáttinn, eina ákæruliðinn sem Árni
játaði ekki.
Árni hefur endurgreitt félaginu að
fullu það fé sem hann dró sér, um 4,7
milljónir króna. n
Fær skilorð fyrir
fjárdrátt hjá ÍR
Dómurinn var kveðinn upp í gær.
2 Fréttir 10. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ