Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 10
Það er mjög mikilvægt
að fólk bregðist ekki
við þessu.
Yfirlýsing Gendarmerie
Það er mjög jákvætt að
við séum að sjá meiri
nýtingu í nóvember.
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar
Óprúttnir tölvuþrjótar herja
nú á franska alþýðu með
svindlpóstum sem merktir
eru löggæsluyfirvöldum. Í
þeim er sagt að viðkomandi
sé grunaður um barnaníð og
þurfi að fylla út upplýsingar
um sig.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FRAKKLAND Hrina tölvupóstsvika
gengur nú yfir Frakkland af óvenju-
legu tagi. En í því eru fórnarlömbin
sökuð um kynferðisbrot og krafin
um að gefa upp upplýsingar um sig.
Lögregluyfirvöld hafa þurft að gefa
út yfirlýsingu til að fullvissa fólk um
að um svindl sé að ræða.
Svikahrapparnir senda tölvu-
póstana yfirleitt undir merkjum
herlögregluliðsins, Gendarmerie,
en einnig stundum undir merkjum
innanríkisráðuneytisins og franska
lýðveldisins, með fölsuðum undir-
skriftum yfirmanna viðkomandi
stofnana.
Í þeim stendur gjarnan að við-
komandi hafi gerst sekur um kyn-
ferðisbrot með því að hala niður
barnaklámsefni af netinu og sé til
rannsóknar af lögreglu, grunaður
um barnaníð. Oft er sagt að rann-
sóknin sé hluti af rannsókn Euro-
pol á alþjóðlegum barnakláms-
hring. Viðkomandi þurfi því að
fylla út allar upplýsingar um sig á
eyðublaði sem hlekkjað er á í tölvu-
póstinum.
„Gendarmerie vinnur alls ekki
á þennan hátt. Það er mjög mikil-
vægt að fólk bregðist ekki við
þessu,“ stóð í yfirlýsingu herlög-
reglunnar frá því í október, en
hrinunni er langt því frá lokið.
Um er að ræða svokallað vefveiði-
svindl (phising á ensku) þar sem
hlekkurinn leiðir á hugbúnað sem
er hlaðið niður á tæki viðkomandi
til að stela upplýsingum um hann.
Þessar upplýsingar er hægt að nýta
til þess að taka yfir póstföng, sam-
félagsmiðla og fleira.
Sennilega er fátt meira ógnvekj-
andi en að vera sakaður að ósekju
um að vera barnaníðingur eða
styðja við barnaníð. Þessi franski
faraldur er ekki fyrsta skiptið sem
óprúttnir þrjótar á netinu hafa nýtt
sér þennan ótta.
Fyrir tveimur árum síðan gekk
faraldur af sama meiði yfir Íra.
Þá voru póstarnir hins vegar ekki
merktir neinni lögreglustofnun eða
ráðuneyti, heldur voru nafnlausir.
„Ég veit að þú ert barnaníðingur,“
stóð gjarnan í póstunum sem íbúar
eyjarinnar grænu fengu. Sagðist
sendandinn vera sérfræðingur í net-
öryggi sem komið hefði vöktunar-
búnaði fyrir á tölvu viðkomandi og
Hræða með ásökunum um barnaníð
Hrapparnir
þykjast vera
frá frönsku
herlögreglunni,
Gendarmerie.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
komist á snoðir um að hann væri
að horfa á barnaklám. Einnig að
búnaðurinn hefði verið notaður til
þess að taka upp myndband af við-
komandi að stunda sjálfsfróun.
Írarnir voru hins vegar ekki beðn-
ir um að fylla neinar upplýsingar á
eyðublað heldur millifæra peninga,
í formi Bitcoin-rafmyntar, á send-
andann, ellegar yrði „leyndarmálið“
gert opinbert.
„Ekki hugsa um að fara til lög-
reglunnar. Ef þú reynir það mun ég
samstundis senda henni myndbönd
af þér að fróa þér, barnaníðingur,“
stóð í einu.
Rétt eins og Frakkarnir, gáfu írsk
lögregluyfirvöld út yfirlýsingu þar
sem almenningur var hvattur til
að bregðast ekki við þessum hót-
unum. n
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
1998
kr.
kg
Nóatúns Hamborgarhryggur
5299
kr.
kg
Nóatúns Tvíreykt hangikjöt
Sérvalinn
hryggur án
hryggjar-
súlu!
Nú er tími til að njóta ...
Gómsætur
veislumatur!
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Fjöldi gistinátta
á hótelum og gistiheimilum hefur
tífaldast frá fyrra ári, að því er tölur
Hagstofunnar gefa til kynna. Gisti-
næturnar í nóvember í fyrra voru
23.800 miðað við 251.88 í nóvem-
ber í ár. Gistinætur Íslendinga voru
53.200 og útlendinga um 198.600.
„Það er mjög jákvætt að við séum
að sjá meiri nýtingu í nóvember en
áður,“ segir Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar. „Það segir okkur
að straumurinn hafi haldist betur
inn í veturinn en við áttum von á í
sumar.“ n
Hótelgisting hefur
tífaldast á einu ári
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar
kristinnhaukur@frettabladid.is
ORKUMÁL Landsvirkjun mun ekki
taka við nýjum viðskiptavinum í
rafmyntagreftri og selja ekki meiri
raforku til núverandi viðskipta-
vina. Orkuskortur og takmarkanir
á f lutningskerfinu orsaka að grípa
hefur þurft til skerðinga í desember.
„Við erum í fulllestuðu kerfi og
höfum ekki tök á því að verða við
óskum um frekari orkukaup. Það
gildir bæði um núverandi gagnaver
og þá sem vilja komast að,“ segir
Tinna Traustadóttir, framkvæmda-
stjóri orkusölusviðs. „Við finnum
fyrir verulega aukinni eftirspurn
frá rafmyntafyrirtækjum sem hafa
skammtímasjónarmið. Gagnaverin
eru eftirsóttir viðskiptavinir fyrir
Landsvirkjun, en við horfum til
langtímasjónarmiða.“
Eftir að Kínverjar bönnuðu raf-
myntagröft í sumar hafa fyrirtækin
reynt að koma sér fyrir annars
staðar, en þar í landi voru 80 prósent
Stöðva aukna raforkusölu til rafmyntagraftar
Tinna Trausta-
dóttir fram-
kvæmdastjóri
orkusölu hjá
Landsvirkjun
af allri rafmynt unnin. Samkvæmt
Tinnu hefur Landsvirkjun þurft að
veita tugum rafmyntafyrirtækja
afsvar um orkusölu.
Fyrsta gagnaverið á Íslandi var
opnað árið 2009 og hafa þrjú til við-
bótar verið opnuð síðan. Rafmynta-
gröftur hefur verið langstærstur
hluti af vinnslu gagnaveranna, í
kringum 90 prósent. Hjá Lands-
virkjun hefur hlutfall orkusölu til
gagnavera á þessu tímabili verið á
bilinu 1 til 4 prósent.
Eftir lokunina í Kína hafa erlend
fyrirtæki sóst eftir samanlagt 1.000
megavöttum, það er tífaldri núver-
andi notkun allra gagnaveranna.
Tinna segir hlutfall skerðanlegra
samninga lítið í stóra samhenginu
og vitaskuld verði staðið við alla
gerða samninga. „Ef það verður
slaki í kerfinu síðar meir getur það
komið til greina að selja umfram
orku til rafmyntafyrirtækja,“ segir
hún aðspurð um framtíð orkusölu
til vinnslu rafmynta á Íslandi. n
10 Fréttir 10. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ