Fréttablaðið - 10.12.2021, Side 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
2 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL
„Verslanirnar eru komnar í jóla-
skart og nú ríkir sannkallað
jólabókaflóð, mikil stemning og
mjög mikið úrval,“ segir Margrét
Jóna Guðbergsdóttir, vörustjóri
íslenskra bóka í stærstu og fjöl-
breyttustu bókaverslun lýðveldis-
ins, Pennanum Eymundsson.
Þar ríkir hátíð í bæ á hverjum
einasta degi aðventunnar, enda
safnast þær nú saman í stöflum,
heillandi jólabækur ársins og
hvarvetna er líflegur ys, þys og til-
hlökkun fyrir hátíð ljóss og friðar.
„Ég hef nú unnið í bókabransan-
um í þrjátíu ár og það er alltaf jafn
gaman að vinna í bókabúðunum
fyrir jól. Þetta er hátíðlegur tími og
skemmtilegur, bæði eru allir svo
glaðir og í jólaskapi, og þegar nær
dregur jólum eykst asinn enn meir
og spenningurinn fyrir sjálfum jól-
unum verður áþreifanlegur,“ segir
Margrét Jóna, sem er sjálf komin í
mikið jólaskap.
Hún er stödd í Pennanum
Eymundsson á Skólavörðustíg, þar
sem ilmur af kanil og heitu súkku-
laði liðast um loftið í bland við
notalega angan af nýprentuðum
bókum.
„Í mörgum verslunum Pennans
Eymundsson eru kaffihús sem
orðin eru hálfgerðar félagsmið-
stöðvar og vinsælt að tylla sér inn
úr kuldanum og fá sér góðgæti og
jólalega drykki á meðan grúskað
er í bókum og blöðum og kynnt sér
það nýjasta í jólapakkana. Þetta er
hlý og notaleg jólastemning sem er
indælt að vera hluti af,“ segir Mar-
grét Jóna.
Reynsla og þekking hjálpar til
Jólabókaútgáfan í ár er með líf-
legasta móti og margt freistandi og
eftirsóknarvert til jólagjafa.
„Það er sívinsælt að fá áritaðar
bækur til jólagjafa, en vegna sam-
komutakmarkana hafa höfundar
lítið getað áritað í verslununum í ár.
Við fáum stundum árituð eintök frá
útgefendum sem við eigum tiltæk
og dreifum í verslanir okkar. Við
biðjum líka um fleiri eintök eftir
þörfum og stundum er þetta bara
heimilislegt hjá okkur og við hnipp-
um í höfunda þegar þeir koma að
versla og biðjum þá að árita bækur
til að eiga handa lesendum þeirra,“
segir Margrét Jóna.
Hún er umkringd spennandi
bókum, leikföngum, tækni og
gjafavöru um alla búð.
„Úrvalið er gríðargott um þessi
jól og margt spennandi bóka í
boði. Ef maður er ekki viss um
hvaða bók á að velja í jólapakkann
er starfsfólk Pennans Eymunds-
sonar meira en viljugt til að veita
ráðgjöf, og sem betur fer er fólk
ófeimið að leita eftir slíkri aðstoð
og upplýsingum. Margt af starfs-
fólkinu okkar býr að margra ára
reynslu í bóksölu og hefur mikla
þekkingu á bókmenntum og því
er dýrmætt að geta leitað í þeirra
viskubrunn, sem þekkja bóka-
heiminn út og inn. Hjá okkur fæst
allt nýtt sem til er, og ef leitað er
að eldri bókum sem ekki eru í
búðinni getum við alltaf reddað
því. Það geta því allir fengið jóla-
bókaóskirnar uppfylltar í Penn-
anum Eymundsson,“ segir Margrét
Jóna.
Gleði og spenningur í loftinu
Bóksala hefur verið blómleg síðan
heimsfaraldurinn skall á.
„Íslendingar eru síst hættir að
lesa og það er áberandi hvað fólk
er meðvitað um að halda bókum
að börnum. Í kjölfar Covid hefur
sala barnabóka aukist, ekki síst
verkefna- og gagnvirkar bækur, þar
sem börn læra stafina, að lesa eða
reikna og margt fleira sem heldur
þeim áhugasömum og spenntum
fyrir bókum,“ upplýsir Margrét
Jóna.
Það sama á við um lestur full-
orðinna.
„Í heimsfaraldrinum hefur fólk
lesið mikið og er meðvitað um
að hafa gott lesefni við höndina.
Það nýtur þess sem aldrei fyrr að
koma í bókabúðirnar til að njóta
ævintýraheims bókmenntanna
og það sjáum við sérstaklega nú á
aðventunni og þegar jólabækurnar
byrja að streyma inn á haustin.
Fyrir mörgum er þetta afar spenn-
andi tími og mikið af fastakúnnum
sem koma mjög reglulega til að
fylgjast með því nýjasta. Undan-
farin ár höfum við svo aukið enn á
úrval okkar af alls konar gjafavöru
og að sjálfsögðu eigum við allt utan
um jólapakkann, jólakort og hvað
eina tilheyrandi.“
Bóklestur tilheyrir jólum
Margrét Jóna segir erfitt að henda
reiður á hvað hver og ein kynslóð
óskar sér úr jólabókaflóðinu í ár.
„Þar er ekkert einhlítt en við
sjáum þó að ungt fólk hrífst af
ungum rithöfundum af sömu
kynslóð og setur á óskalistann. Oft
koma ömmur og afar, mömmur
og pabbar, frænkur og frændur og
vilja kaupa eitthvað uppbyggilegt
og sem nýtist unga fólkinu sínu.
Það geta verið matreiðslubækur,
prjónabækur og ýmiss konar
handbækur, og það er auðvitað
eigulegt og vel þegið líka. Á hverju
ári kemur líka úrval fræðibóka
sem á sinn dygga lesendahóp og
þá eru ævisögur alltaf vinsælar en
heldur meira hjá eldri kynslóð-
inni. Fólk er alltaf áhugasamt um
sitt samtímafólk en líka eldri ævi-
sögur og ef gömul útgáfa kemur
út aftur skýst hún iðulega upp á
vinsældalistann,“ greinir Margrét
Jóna frá.
Sjálf ætlar hún að kaupa sér eina
nýja jólabók til að lesa um jólin.
„Ég fæ oft bækur í jólagjöf, og
finnst gott að eiga bunka til að
lesa yfir hátíðirnar, en gef mér
líka alltaf eina góða til að lesa yfir
jólin, því það finnst mér tilheyra.
Flestum þykir ómissandi að fá
minnst eina bók undan jólatrénu
og bók er sígild og sívinsæl jólagjöf.
Ég vil þó endilega láta koma mér
á óvart í þeim efnum og gef því
ekkert upp um óskabækurnar í ár,“
segir hún og skellir upp úr. n
Penninn Eymundsson er um allt
land. Sími 540 2000. Sjá penninn.is
Margrét kaupir sér alltaf eina vel valda jólabók til að lesa yfir jólin, en vill láta koma sér á óvart í öðrum bókagjöfum.
Í Pennanum
Eymundsson
starfar fólk með
mikla þekkingu
á bókmenntum
og áralanga
reynslu af bók-
sölu. Því er dýr-
mætt að leita í
reynslubrunn
þess við val á
bókagjöfum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Bækur í öllum flokkum bókmennta fást í heillandi úrvali.
Matreiðslubækur eru afar vinsælar í jólapakkana og margar nýjar útkomnar.
Barnabók er einkar falleg jólagjöf og segir Margrét fólk
meðvitað um að halda góðu lesefni að börnum.
Úrval nýrra íslenskra bóka er gríðarlega gott og freist-
andi fyrir þessi jól og starfsfólk getur hjálpað við valið.
Í bókaverslunum Pennans Eymundsson er söluhæstu
jólabókunum raðað upp í hillur eftir vinsældum.