Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 22
Það er ákveðið
þroskaferli sem
maður þarf að fara í
gegnum til að finna sig
og bækurnar sem mann
langar að lesa.
4 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL
Stefanía María Arnardóttir
segir að lestur gefi sér frið og
ró, en hún les um það bil eina
til þrjár bækur á viku þrátt
fyrir lesblindu og er hrifnust
af því að lesa fræðilegt efni.
Hún stofnaði Facebook-hóp
um lestur og bækur sem
hefur yfir 600 meðlimi.
oddurfreyr@frettabladid.is
„Ég ólst upp við að hafa ágætt
aðgengi að ýmsum bókum, meðal
annars fræðilegu efni fyrir börn og
sótti mikið í slíkar bækur. Ég var
fróðleiksfús og bækur voru leiðin
til að læra eitthvað nýtt. Ég byrjaði
samt ekki að hafa mjög mikinn
áhuga á bókum fyrr en ég varð
fullorðin,“ segir Stefanía María
Arnardóttir, sem stofnaði Face
book hópinn Lestrarhestinn fyrir
rúmu ári, en hópurinn, sem á að
vera vettvangur fyrir umræðu um
allt sem tengist lestri, hefur gengið
vel og má að sögn Stefaníu verða
það sem fólk vill að hann verði.
„Þegar ég var lítil var mamma
dugleg að fara með mig á bókasafn
ið og þar fékk ég að vera frjáls ferða
minna,“ segir Stefanía. „Ég man að
ég hafði mjög gaman af alfræði
bókum um dýr sem voru hluti af
sömu ritröðinni og skoðaði þær
mikið. Ég hafði áhuga á dýrum og
þótti gaman að skoða myndirnar.
Ég man að ég skoðaði líka bækur
sem voru til heima og innihéldu
alls konar læknisfræðilegar upp
lýsingar. Ég var svo forvitin að mér
fannst allt spennandi.
Svo fékk ég tvær bækur út úr
getraun hjá lögreglunni, annars
vegar um gróðurhúsaáhrif og fleira
sem tengist náttúrunni og hins
vegar Bróður minn Ljónshjarta,
sem ég las þegar ég var 12 ára,“ segir
Stefanía. „Það var í fyrsta sinn sem
ég táraðist yfir bók og lesturinn á
þessum góðu bókum varð líklega
undirstaðan að því hvernig áhug
inn þróaðist.“
Tók tíma að uppgötva sinn smekk
„Með tímanum uppgötvaði ég svo
minn eigin bókasmekk og áttaði
mig á því hvað ég hef mikinn áhuga
á fræðilegu efni, en ég les reyndar
líka stundum vísindaskáldskap og
fantasíur,“ segir Stefanía. „Ég fékk
svo lesblindugreiningu þegar ég
var 25 ára og þá fékk ég aðgang að
hljóðbókasafninu, sem opnaði dyr
að alls konar áhugaverðu efni.
Fræðilegt efni heillar mig því
þú finnur ekki sömu upplýsingar
annars staðar. Þú finnur miklu
meiri fjölbreytni og dýpt í þessum
bókum en nokkru öðru og bækur
eru almennt mun óheftara afþrey
ingarform en allt annað. Ég held að
það sé líka ein ástæðan fyrir því að
bækur hverfi aldrei.
Í dag er ég svo orðin mjög sér
tæk. Ég myndi kalla mig alætu en
ég veit samt hvað mér líkar og það
er ákveðið þroskaferli sem maður
þarf að fara í gegnum til að finna sig
og bækurnar sem mann langar að
lesa, því það er ekkert endilega það
sem er vinsælt og áberandi,“ segir
Stefanía.
Ein til þrjár bækur á viku
„Lestur gefur mér mikla ró og frið.
Ég er frekar innhverf og mér finnst
notalegt og skemmtilegt að setjast
og lesa eða spila lágstemmdan
tölvuleik og hlusta á hljóðbók,“
segir Stefanía. „Ég er líka rosalega
forvitin og því eldri sem ég verð því
meira veit ég hvað ég veit lítið og því
meira vil ég vita.
Ef þú ert að lesa fræðilegt efni
eru líka alltaf skiptar skoðanir á
málum og ég vil kynna mér allar
hliðar til að fá dýpri skilning á
þeim. Fyrir vikið vil ég alltaf lesa
45 bækur um öll málefni sem mér
finnst áhugaverð og um leið verð ég
alltaf forvitin um meira og meira.
Ég sækist líka stundum í bækur sem
ég veit að ég verð ósammála til að
heyra röksemdafærsluna og þannig
finnur maður alltaf gráa fleti sem
maður getur verið sammála, sem
er skemmtilegt og þroskandi. Mér
finnst líka gaman að lesa gamlar
fræðibækur á Project Gutenberg
vefsíðunni og kynnast gömlum
hugmyndum. Það getur verið
áhugavert og upplýsandi að spegla
nútímann í þeim.
Það er misjafnt hvað ég les mikið,
en ég reyni að klára í minnsta lagi
eina bók á viku og fer upp í þrjár
ef ég er í góðum fíling, stundum
meira,“ segir Stefanía.
Lítið aðgengi að efni á íslensku
Þegar Stefanía er spurð um uppá
haldsbókina sína nefnir hún fyrst
Salamöndrustríðið eftir Karel
Čapek.
„Hún er alveg frábær. Uppá
haldshöfundurinn minn er Kahlil
Gibran, en ég er líka hrifin af
bókum eftir Frans de Waal, E.O.
Wilson og Gabor Maté. Mér finnst
Hold on to Your Kids eftir Gordon
Neufeld líka vera bók sem fólk ætti
að lesa, sérstaklega ef það á börn
eða er í tengslum við börn,“ segir
Stefanía. „Congo: The Epic Story of
a People eftir David Van Reybrouck
er líka bók sem hafði mikil áhrif á
mig, en hún fjallar um sögu Kongó.
Það eru margar hræðilegar lýsingar
í henni og sumt vakti mikinn óhug
hjá mér.
Ég les líka barnabækur og þar er
Bróðir minn Ljónshjarta í uppá
haldi. Aðgengi að barnabókum er
oft gott en það getur verið erfitt að
finna íslenskar þýðingar sem komu
út fyrir meira en áratug, sem er ekki
nógu gott,“ segir Stefanía.
„Almennt finnst mér líka vanta
betri aðgang að rafrænu efni á
íslensku. Ég get til dæmis lítið leitað
til íslenska markaðarins til að finna
efni við mitt hæfi, efnið er ekki þýtt
eða þýtt seint. Mér finnst líka vanta
meiri hugmyndafræðilega fjöl
breytni í efnið á Rafbókasafninu,“
útskýrir Stefanía. „Ég er eiginlega
búin að lesa allt sem hægt er á því
safni svo ég þarf að leita í erlendar
veitur. Þannig að fólk eins og ég,
sem les mjög mikið, er að detta út af
íslenska markaðnum.“
Úlfar og orðabók
Stefanía segir að það séu aðal
lega tvær nýjar bækur sem hún er
spennt fyrir.
„Það er annars vegar bókin The
Redemption of Wolf 302 eftir Rick
McIntyre, sem hefur fylgst með úlf
unum í Yellowstoneþjóðgarðinum
og skrifaði frábæra bók sem heitir
The Reign of Wolf 21. Hann var nú
að gefa út þriðju bókina sína um
þetta viðfangsefni,“ segir hún. „Svo
er ég líka búin að forpanta bókina
The Dictionary of Obscure Sorrows
eftir John Koenig, sem kemur út í
þessum mánuði. Hann hefur verið
að taka orð sem eru til í öðrum
tungumálum en ekki í ensku og
reyna að þýða og útskýra merkingu
þeirra.
Svo er örugglega fullt af bókum
sem komu út á árinu sem ég á eftir
að uppgötva og lesa síðar meir,“
segir Stefanía. ■
Fjölbreytnin og dýptin
er mest í fræðilegu efni
Stefanía María Arnardóttir er sannkallaður lestrarhestur, en hún klárar að meðaltali eina til þrjár bækur á hverri viku,
þrátt fyirr að vera lesblind. MYND/AÐSEND