Fréttablaðið - 10.12.2021, Side 28
Leo Tolstoy, rússneski rithöfundurinn, les hér fyrir barnabörnin sín um alda-
mótin 1900. Bækur hans eru mikið lesnar enn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Góðar bókmenntir geta
breytt lífi fólks, þær geta
breytt hugsunarhætti
lesandans og hvernig hann
skilur sjálfan sig og aðra.
elin@frettabladid.is
Fólk getur fengið nýja sýn á
manneskju sem það þekkir við
það að lesa bók. Það getur líka
séð eigin reynslu í nýju ljósi.
„Við höfum vitnisburð fólks um
þá fullyrðingu að lestur bóka
geti breytt lífi lesandans,“ segir
Olivia Da Costa Fialho, doktor við
háskólann í Ósló, en hún hefur
rannsakað bókmenntir og lestrar-
upplifun. Með rannsóknum hefur
hún skoðað áhrif bókmennta á
huga fólks.
Allt frá fyrstu heimspekingum,
eins og Aristótelesi og Platón, hefur
verið bent á að listir hafi áhrif á
tilfinningar. Í Lýðveldinu eftir
Platón voru skáld rekin úr hinni
fullkomnu borg þar sem óttast var
að skáldin gætu haft áhrif á viðhorf
og tilfinningar fólks. Leikrit um
harmleik gæti til dæmis vakið ótta
eða meðaumkun. Þannig hefur
verið rætt um kraft bókmennta í
þúsundir ára, eftir því sem Fialho
segir á vefsíðunni forskning.no.
Í stað þess að einblína á ólíkar
hliðar texta, eins og margir bók-
menntafræðingar gera, hefur
Fialho beint áhuga sínum á upp-
lifun lesandans. Hún hefur þróað
rannsóknarmeðferð sem kallast
LEX-NAP. Hún biður þátttakendur
að lesa sérstakar smásögur eða
stuttan texta og tekur viðtöl um
reynslu þeirra.
Fialho hefur í nokkur ár tekið
saman lista yfir sígildar bækur sem
lesendur telja að hafi breytt þeim.
Má þar nefna:
n Albert Camus – The Stranger
(Útlendingurinn)
n Leo Tolstoy – Anna Karenina
n Alison Bechdel: Fun Home - A
Tragicomic Family Story
n Margaret Atwood - The Maid's
Report (Saga þernunnar)
n Anne Carson – Red Doc
n John Steinbeck - The Grapes of
Wrath (Þrúgur reiðinnar)
n Ivan Turgenev – Father & Sons
n Mario Vargas Llosa - Conversa-
tion in the cathedral
Þetta eru allt bækur sem þykja
góðar bókmenntir, segir Fialho.
„Ég held að aðrar listgreinar, eins
og að horfa á málverk, kvikmynd
eða hlusta á tónlist, geti haft sama
kraft,“ segir hún. „Þegar við lesum
bækur er algengt að við hugsum
til eigin minninga, skiljum hvað
persónurnar ganga í gegnum með
því að minnast svipaðra aðstæðna
úr eigin fortíð,“ segir hún og bætir
við að lestur geti líka haft áhrif á
sköpunargáfu og málvitund. n
Bækur breyta fólki
starri@frettabladid.is
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur-
borgar eru veitt árlega síðasta
vetrardag ár hvert við hátíðlega
athöfn í Höfða. Verðlaunin eiga sér
lengsta sögu barnabókaverðlauna
á landinu og er helsta markmið
þeirra að vekja athygli á því sem
vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga
lesendur og hvetja þá um leið til
bóklesturs.
Verðlaunin eru veitt í þremur
flokkum, í f lokki frumsaminna
bóka, flokki myndlýsinga og flokki
þýðinga, og eru samtals fimmtán
bækur, fimm í hverjum flokki, til-
nefndar.
Í ár voru verðlaunahafar Snæ-
björn Arngrímsson fyrir frum-
samda bók, Dularfulla styttan og
drengurinn sem hvarf, Freydís
Kristjánsdóttir fyrir myndlýsingu
í bókinni Sundkýrin Sæunn og
Jón St. Kristjánsson í f lokknum
þýðingar fyrir Ótrúleg ævintýri
Brjálínu Hansen 3.
Barnabókaverðlaunin og
verkefni þeim tengd eru unnin í
samvinnu skóla- og frístundaráðs
og menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkurborgar í
Bókmenntaborginni Reykjavík, til
að efla enn frekar áhuga barna á
bókum og bóklestri.
Dómnefnd Barnabókaverð-
launa Reykjavíkurborgar er skipuð
fimm fulltrúum sem skipaðir eru
af skóla- og frístundaráði, Reykja-
vík bókmenntaborg UNESCO,
Rithöfundasambandi Íslands og
Fyrirmynd, félagi myndhöfunda.
HEIMILD: REYKJAVIK.IS.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur
Verðlaunahafar Barnabókaverð-
launa Reykjavíkurborgar 2021.
MYND/REYKJAVÍKURBORG
„Höfundur fer með lesandann í heillandi ferðalag upp á jökla,
í gegnum öskulög og inn í kvikuhólf í fylgd með vísinda-
manninum, söngvaskáldinu og náttúruverndarsinnanum Sigurði.“
„Allt við þetta mikla ritverk hrífur, efnistök við ritun sögu
Sigurðar Þórarinssonar og sjálft bókverkið, sem er markvisst
og fagurlega myndskreytt.“
Íslensku bókmenntaverðlaunin, flokkur fræðibóka og rita almenns efnis.
Úr rökstuðningi tilnefninganefndar.
Fjöruverðlaunin, flokkur fræðibóka og rita almenns efnis.
Úr rökstuðningi tilnefninganefndar.
10 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL