Fréttablaðið - 10.12.2021, Side 35
4.798 kr.
Veistu ef þú vin átt
Óveðursnótt í nóvember.
Fjórir vinir leita skjóls í litlum
veiðikofa uppi á heiði. Margt
er þó hættulegra en stórhríð
um vetur. Og ekki munu allir
komast lífs af.
Hér sýnir Ragnar Jónasson á
sér nýja hlið í sannkölluðum
sálfræðitrylli.
4.798 kr.
Læknirinn í
Englaverksmiðjunni
Þegar Ásdís Halla Bragadóttir
fór að forvitnast um fjölskyldu
blóðföður síns var fátt um
svör þegar hún spurðist fyrir
um einn mann: Dr. Moritz
Halldórsson. Af hverju stafaði
þessi þögn um íslenskan lækni
sem starfaði í Kaupmannahöfn
og Vesturheimi?
4.798 kr.
Lok, lok og læs
Á köldu vetrarsíðdegi fer
nágranni að huga að fjölskyldu
í Hvalfjarðarsveit sem ekki
hefur svarað skilaboðum.
Fólkið veit ekki aura sinna tal
og hefur komið sér fyrir í afdal
utan alfaraleiðar. Nágranninn
sér ummerki um mannaferðir
en enginn svarar. Hvað
gerðist?
6.598 kr.
Bílamenning
Í Bílamenningu eru 154
kaflar tileinkaðir bílum og
bílamönnum. Hér eru bílar
almennings, lögreglu og
slökkviliðs; trukkar jafnt sem
eðalvagnar, keppnisbílar,
jeppar, vörubílar og húsbílar,
svo fátt eitt sé talið.
Auk þess er fjallað um
ýmislegt annað sem tengist
bílum.
4.798 kr.
Sigurverkið
Íslenskur úrsmiður situr í höll
Danakonungs og gerir upp
forna glæsiklukku. Kvöld eitt
rekst sjálfur einvaldurinn,
Kristján sjöundi, inn til hans.
Þeir taka tal saman og svo
fer að úrsmiðurinn rekur fyrir
hátigninni dapurlega sögu
föður síns og fóstru.
4.759 kr.
Útkall - í auga
fellibylsins
Þrír menn eru á leið frá
Kanada til Íslands á lítilli skútu,
á einu hættulegasta hafsvæði
veraldar, þegar brestur á
fárviðri. Tveir Íslendingar sem
aldrei hafa kynnst siglingum
áður, verða að liggja á gólfi
káetunnar í ofsanum í tugi
klukkustunda.
4.999 kr.
Guðni á ferð og flugi
Guðni Ágústsson er
annálaður sagnamaður
og einn vinsælasti
tækifærisræðumaður
þjóðarinnar. Í hugum margra
er hann enn hinn eini sanni
landbúnaðarráðherra Íslands
– og um leið ötull talsmaður
landsbyggðarinnar.
Hér fer Guðni með lesandann
í ferðalag um hinar dreifðu
byggðir Íslands.
4.799 kr.
Sextíu kíló af
kjaftshöggum
Sjálfstætt framhald
verðlaunaskáldsögunnar
Sextíu kíló af sólskini. Sagan
hefst í Segulfirði, árið 1906.
Áfram vindur furðuríku
ferðalagi Íslendinga út úr
myrkum torfgöngum inn í
raflýstar stofur. Lesandinn er
hrifinn með í dans á síldarpalli,
í ólgandi takti sem dunar í
huganum.
4.798 kr.
Rætur – Á æskuslóðum
minninga og mótunar
Rætur birtir nýjar hliðar á
forseta sem flestir telja sig
þekkja vel. Meitluð mynd,
sannfærandi, hreinskilin og
opinská. Hér leitar Ólafur
Ragnar Grímsson upprunans
og svara við fjölmörgum
spurningum. Óvænt bók sem
lengi verður lesin.
4.959 kr.
Bakað með Evu
Bakað með Evu hefur að
geyma rúmlega 80 uppskriftir
að bökuðu góðgæti af öllum
stærðum og gerðum sem
henta við öll tilefni. Háar
og tignarlegar veislutertur,
ilmandi pönnukökur og vöfflur,
gómsætir brauðréttir og
sætabrauð.
Lægra verð – léttari innkaup
Jólabókalisti Nettó
Topp 10
Með því að nýta þér netverslun Nettó
sparar þú þér tíma í jóla amstrinu.
Nýttu tímann frekar í að lesa góða bók.
Úrval bóka er mismikið eftir verslunum.
Jólainnkaupin
hafa aldrei verið eins leikandi létt.
Þú færð jólabækurnar á netto.is