Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 36
Drápa mælir með
Hjartað mitt
Ein fallegasta bók ársins í stórkostlegri
þýðingu Hallgríms Helgasonar. Textinn er
allur í bundnu máli og fjallar um þær stóru
tilfinningar sem búa í hverju hjarta. Bókin
sjálf er nánast í þrívídd og hjartað á kápunni
gengur í gegnum alla bókina. Yndisleg bók til
að lesa fyrir ungana sína.
Ísadóra Nótt fer í útilegu
Hún Ísadóra Nótt er alveg einstök! Hún er hálf
vampíra og hálfur álfur. Mamma hennar er
nefnilega álfkona og pabbi hennar er vampíra.
Þegar þau fara í útilegu við ströndina gerast því
auðvitað atburðir sem eru ekki alveg venjulegir.
Allt frá því að grilla sykurpúða á báli til þess
að vingast við hafmeyju – ævintýrin eru aldrei
langt undan! Ingunn Snædal þýðir frábærlega.
Handbók fyrir ofurhetjur – 6. hluti: Vonlaust
Hér er kominn sjötti hluti eins vinsælasta bóka-
flokks landsins. Lísa (Rauða gríman) og vinir
hennar standa frammi fyrir gríðarlega erfiðu
máli. Sjö börn í viðbót hafa horfið sporlaust
og fólk er bæði hrætt og reitt. Af hverju gera
lögreglan og Rauðan gríman ekki neitt? Getur
bærinn ekki stólað á ofurhetjuna sína? Lísa og
félagar eru þó að vinna í leyni, en það er eitt-
hvað sem gengur ekki upp. Það er engin önnur
en Ingunn Snædal sem þýðir þennan æsispenn-
andi bókaflokk.
Fótbolti – allt um hinn fagra leik
Stór og glæsileg bók þar sem farið er yfir
nánast allt sem við kemur boltanum. Allt frá
sögu fótboltans til stærstu leikvanga heims.
Frá bestu landsliðum til allra álfumótanna.
Það er of langt að telja upp allt það sem er í
bókinni, en í stuttu máli sagt þá er þessi bók
hin fullkomna jólagjöf fyrir fótboltastrákinn
og -stelpuna.
Sonur minn
Sonur minn er ein af þessum skáldsögum sem sitja
í lesandanum löngu eftir að lestri lýkur. Hún er allt
í senn spennandi, hugljúf, áhugaverð og kemur
auk þess verulega á óvart. Þetta er bók sem spilar
á allan tilfinningaskalann. Sigrún Eiríksdóttir þýðir
einstaklega vel og slær hárréttan tón í þessari fal-
legu bók eftir Alejandro Palomas.
Leyndardómurinn um yfirgefna hundakúkinn
Suðurgötusysturnar taka að sér að komast að
því hvaða hundur það er sem skilur eftir stykki
sín á hverjum morgni fyrir utan dyr nágranna-
konu þeirra. Þær sitja því við stofugluggann dag
og nótt og komast þannig af tilviljun að því að
það er verið að fremja bankarán hinum megin
við götuna. Þá hefst fjörið fyrir alvöru. Þetta er
alveg sprenghlægileg bók fyrir 6-12 ára krakka,
mátulega löng og hressilega þýdd af Ásmundi
Helgasyni.
Það hefur verið vöxtur í
útgáfu Drápu undanfarin
ár og hún hefur aldrei verið
meiri. Flestar bækurnar
koma út núna fyrir jólin og
þar eru á ferð fjölbreyttar,
skemmtilegar og metnaðar-
fullar bækur fyrir bæði börn
og fullorðna.
Þegar hús er tekið á Ásmundi
Helgasyni, útgefanda hjá Drápu,
er hljóðið nokkuð gott í honum.
„Þetta gengur bara vonum
framar,“ segir Ásmundur. „Við
höfum verið að stækka undan-
farin ár og nú jukum við útgáfuna
talsvert á milli ára þannig að þetta
verður metár hjá okkur. Við erum
með 21 bók á þessu ári og þær
koma f lestar út núna í haust, fyrir
jólavertíðina. Þó komu nokkrar
bækur út í vor og ein þeirra,
Bréfið, sló heldur betur í gegn.
Mér sýnist hún ætla að verða mest
selda kilja ársins.
Af jólabókunum þá vil ég fyrst
nefna Veiði, von og væntingar eftir
Sigurð Héðinn. Þetta er einstak-
lega falleg bók og innihaldið full-
komið fyrir laxveiðifólkið,“ segir
Ásmundur. „Svo erum við með
Völu víking, sem lendir í ævin-
týrum í Ásgarði ásamt vini sínum
Breka dreka, en á bak við Völu eru
tveir ungir og spennandi höfundar.
Af þýddum bókum má líka nefna
Son minn, einstaklega góða og
margverðlaunaða bók frá Spáni
eftir Alejandro Palomas. Þetta er
hreinlega með betri bókum sem ég
hef lesið og hún situr lengi í manni
eftir lesturinn.“
En hvernig er stemningin í bóka-
bransanum svona almennt?
„Það er náttúrulega ákveðin
vertíðarstemning. Þetta er jú aðal
sölutími ársins. Við förum gjarnan
á taugum í byrjun desember og
finnst salan „óvenju lengi í gang“
á hverju einasta ári. En svo þegar
líður á mánuðinn og salan eykst
þá róast hjartslátturinn,“ segir
Ásmundur að lokum og hlær. n
Metár hjá Drápu
Ásmundur Helgason, útgefandi hjá Drápu, segir að útgáfan hafi vaxið hratt og þetta verði metár.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Veiði, von og væntingar
Höfundur: Sigurður Héðinn
Útgefandi: Drápa
Fjöldi síða: 144
Sigurður Héðinn sendir nú frá sér sína þriðju bók
um laxveiði og slær ekki slöku við. Það má segja
að bækurnar verði bæði fallegri og innihaldsríkari
með hverri nýrri bók. Hér fjallar hann um veiði-
tækni eins og til dæmis að nota andstreymistækni,
að landa laxi og að veiða í miklu vatni, svo eitt-
hvað sé nefnt, atriði sem áhugafólk um laxveiði
hreinlega drekkur í sig. Þá er í bókinni einstaklega
glæsilegur kafli um flugur þar sem Sigurður sýnir
bæði þekktar flugur og nýjar, og hverri flugu fylgir
uppskrift fyrir þá sem vilja hnýta sínar flugur.
Sigurður veltir svo fyrir sér framtíð laxveiðinnar og
örlögum íslenska laxins – og er óhætt að segja að
hann liggur ekki á skoðunum sínum. Fjölbreyttar
veiðisögur fylla svo bókina og draga lesandann
hreinlega upp úr sófanum og niður að á, svo
lýsandi og skemmtilegar eru þær.
Í stuttu máli er óhætt að fullyrða að Veiði, von
og væntingar sé akkúrat eins og veiðibók á að
vera! Eini gallinn er að maður vill fá meira að lestri
loknum.
Vala víkingur og epli Iðunnar
Höfundar: Kristján Már Gunnarsson (texti)
og Sól Hilmarsdóttir (myndir).
Útgefandi: Drápa
Fjöldi síða: 42
Börn í dag fá upplýsingar um lífið og tilveruna úr
öllum áttum. Til dæmis fá þau þær upplýsingar í
gegnum kvikmyndir og tölvuleiki að Loki og Þór
séu frá Hollywood eða Lego. Þess vegna eru bækur
sem kynna heim goðafræðinnar fyrir ungum
lesendum, eins og Vala víkingur, afar vel þegnar. Í
þessari bók tekur Vala víkingur, ásamt skipinu sínu
Breka dreka, það sér fyrir hendur að hjálpa Iðunni,
sem er á flótta undan þeim Loka og Þjassa, sem
girnast gulleplin hennar. Nálgun höfundanna er
frumleg og skemmtileg og Vala víkingur reynist
hafa ráð undir rifi hverju. Það er gaman að sjá unga
og snjalla stúlku vera óhrædda við að takast á við
jafn sterka og freka karla og þá Loka og Þjassa og
hafa betur. Textinn er mátulega langur og mynd-
irnar stórskemmtilegar og því hægt að mæla með
þessari frábæru bók fyrir alla unga krakka.
Nú jukum við
útgáfuna talsvert á
milli ára þannig að þetta
verður metár hjá okkur.
Við erum með 21 bók á
þessu ári og þær koma
flestar út núna í haust,
fyrir jólavertíðina.
Kristján Már
Gunnarsson
er höfundur
bókarinnar um
Völu víking, en
Sól Hilmars-
dóttir mynd-
skreytti.
Myndirnar í
bókinni um
Völu víking
eru stór-
skemmtilegar
og það er
hægt að mæla
með þessari
frábæru bók
fyrir alla unga
krakka.
18 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL