Fréttablaðið - 10.12.2021, Síða 44
Mæðgurnar Berglind
Hreiðarsdóttir bloggari og
dóttir hennar Elín Heiða
Hermannsdóttir, vita fátt
skemmtilegra en að undir-
búa jólin. Elín Heiða fetar
í fótspor móður sinnar og
sendir frá sér mat reiðslu bók
sem ber heitið Börn in baka.
sjofn@torg.is
Þetta er fyrsta bók El ín ar Heiðu
sem er aðeins tólf ára og væntan
lega yngsti bakari landsins. Bókina
vann hún í sam starfi við móður
sína og það má með sanni segja að
sjaldan falli eplið langt frá eikinni.
Nú undirbúa mæðgurnar saman
aðventuna og jólin, og baksturinn
er þar í forgrunni.
Hvað er ómissandi á aðventunni
að ykkar mati?
„Að gera laufabrauð og baka
piparkökur,“ segir Elín og Berglind
segir að henni finnist ómissandi
að baka með fjölskyldu og vinum,
kveikja á kertaljósum í kósíheitum.
„Snjór gerir aðventuna líka mun
fallegri,“ segir Berglind og nefnir
jafnframt að það sé líka dásam
legt að ganga um miðbæinn og
skoða jólaljósin, fá sér heitt kakó
og anda að sér aðventunni. „Við
förum alltaf til mömmu og pabba
á jóladag því þá á pabbi afmæli og
tengdó býður ávallt í möndlugraut í
hádeginu á aðfangadag.“
Allar kökurnar eiga sögu
„Möndlukakan á forsíðu bókar
innar er með kremi í öðrum lit.
Fyrst þegar Elín Heiða gerði hana
fyrir bókina vorum við ekki endi
lega með í huga að sú mynd færi á
forsíðuna. Síðan fannst okkur hún
svo litrík og falleg en verst var að
bakgrunnurinn var stofan okkar en
ekki eldhúsið. Það var því ákveðið
að reyna að endurgera hana með
eldhúsið í bakgrunni. Það var því
aftur allt græjað eins og það var,
sömu fötin fundin til, hárið fléttað
og þar fram eftir götunum. Það
vildi síðan ekki betur til en svo að
hún braut á sér fingurinn deginum
fyrir þá myndatöku og við þurftum
að stelast til að taka spelkuna af og
fela bláa fingurinn undir kökudisk
inum þegar hún var að smyrja
kreminu á í það skiptið, hahaha!
Það má því sannarlega segja að það
sé saga á bak við þessa forsíðumynd
sem vinur okkar Lárus Sigurðarson
kom og tók tvisvar.“
Allar þessar uppskriftir er hægt
að færa í jólabúning og hér er Elín
Heiða búin að því.
Möndlukaka
4 egg
250 g sykur
225 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
200 g brætt smjör
3 tsk. möndludropar
Glassúr
320 g flórsykur
5-6 msk. heitt vatn
Nokkrir dropar af matarlit
2 dropar af möndludropum
1. Hitið ofninn í 170°C og smyrjið
stórt hringlaga form með gati í
miðjunni vel að innan með smjöri.
2. Þeytið saman egg og sykur þar
til létt og ljós blanda myndast.
3. Bætið hveiti og lyftidufti saman
við og hrærið varlega saman.
4. Að lokum má blanda brædda
smjörinu ásamt möndludropum
saman við og hræra stutta stund til
viðbótar.
5. Hellið í formið og bakið í um 30
mínútur eða þar til prjónn kemur
út með smá kökumylsnu á end
anum en ekki blautu deigi.
6. Kælið kökuna alveg áður en þið
setjið glassúrinn ofan á.
Glassúr
1. Hrærið öllu saman í skál með
píski/skeið þar til orðið er kekkja
laust.
2. Smyrjið yfir kökuna og leyfið
aðeins að leka niður með hlið
unum.
Berjaskyrkaka
1 pakki Lu Bastogne kex
60 g brætt smjör
Fylling og toppur
500 g Ísey skyr með bláberjum og
hindberjum
500 ml rjómi
Um 125 g bláber
Um 125 g hindber
30 g saxað suðusúkkulaði
1. Myljið kexið í blandara/mat
vinnsluvél þar til það verður duft
kennt.
2. Hellið kexmylsnunni í skál og
blandið brædda smjörinu saman
við.
3. Pressið í botninn á fat/í skál og
kælið á meðan annað er útbúið.
Fylling og toppur
1. Þeytið rjómann og blandið
skyrinu varlega saman við hann og
setjið yfir kexbotninn.
2. Skreytið með ferskum blá
berjum, hindberjum og söxuðu
súkkulaði.
3. Geymið í kæli fram að notkun.
Hrískökubitar
60 g smjör
260 g sykurpúðar
150 g Rice Krispies/blásið hrís-
morgunkorn
Matarolíusprey
Litað súkkulaði að eigin vali til
skreytingar
1. Klæðið um 25 x 25 cm kökuform
að innan með bökunarpappír og
spreyið næst með smá matar olíu
spreyi svo auðveldara verði að ná
kökunni úr til að skera hana í bita.
2. Bræðið smjör í potti við vægan
hita.
3. Blandið sykurpúðunum saman
við og hrærið þar til þeir hafa
bráðnað saman við smjörið og loft
kennd blanda hefur myndast.
4. Takið af hellunni og hrærið
hrísmorgunkorninu saman við.
Blandan minnir aðeins á klístr
aðan köngulóarvef og þannig á
hún einmitt að vera.
5. Setjið nú alla blönduna yfir í
kökuformið og þjappið niður með
sleif, gott er að setja smá matar
olíu sprey á sleifina líka svo hún
klístrist síður við.
6. Þjappið niður eins og þið getið
og sléttið úr toppnum, kælið síðan
í um 30 mínútur.
7. Nú ætti blandan að vera orðin
stíf í sér og auðvelt að lyfta henni
á bökunarpappírnum upp úr
forminu yfir á borð/bretti.
8 Bræðið litað súkkulaði, sem
ykkur þykir fallegt, og dreifið
óreglulega úr því með teskeið yfir
kökuna og leyfið að storkna áður
en þið skerið niður í bita.
9. Skerið kökuna niður í 4 x 4 bita
eða 16 samtals og geymið í kæli
fram að notkun.
Heit íssósa
220 g Toblerone-súkkulaði
100 ml rjómi
1. Saxið Toblerone gróft niður og
setjið í pott ásamt rjómanum.
2. Hitið saman á meðalhita þar til
súkkulaðið hefur bráðnað, hrærið
reglulega í sósunni á meðan.
3. Leyfið hitanum síðan aðeins að
rjúka úr sósunni áður en hún er
notuð á ís.
4. Gott er að strá söxuðu Toblerone
yfir ísinn ásamt heitu sósunni. ■
Mæðgur deila ástríðu fyrir bakstri
Mæðgurnar deila sömu ástríðunni, bakstursástríðunni, og eru iðnar við að
baka saman á aðventunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Möndlukakan er í miklu uppáhaldi.
Hrískökubitarnir eru ljúffengir.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Opið til 19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
GERÐU JÓLA INNKAUPIN HJÁ
OKKUR Í BÓKABÚÐ FORLA GSINS
ALLT Á
EINUM STAÐ
Ótrúlegt úrval bóka frá öllum
útgefendum – allar nýjustu
bækurnar og þúsundir eldri titla.
Opið til 19 alla daga til jóla.
Næg bílastæði
Nóg pláss inni í versluninni
Innpökkunarborð og merkimiðar
Spritt og grímur í boði
26 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL