Fréttablaðið - 10.12.2021, Síða 52
Það er eitthvað í Aðventu
sem er alveg ótímabundið
og tekur á mannkærleik
og stórum lífsspurningum
sem eiga alltaf við.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Bróðir okkar,
Haukur Gíslason
Einholti 7, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu
Hlíð 3. desember.
Útför hans mun fara fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
systkini hins látna.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Bragi Óskar Baldursson
lést 1. desember á Landspítalanum
í Fossvogi. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju, mánudaginn
13. desember kl. 13.00.
Vegna sóttvarna eru gestir beðnir um að sýna neikvætt
hraðpróf við inngöngu, ekki eldra en 48 klst. Heimapróf
ekki tekin gild. Faðmlög afþökkuð í athöfn vegna Covid.
Athöfninni verður streymt: laef.is/bragi-oskar-baldursson/
Anna Maggý Pálsdóttir
Lárus Baldursson
Páll Baldursson
Baldur Bárður Bragason Esmat Paimani Bragason
Róbert Badí Baldursson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingunn K. Kristensen
lést á Hrafnistu, Boðaþingi, 1. desember.
Hennar verður sárt saknað.
Ingunn verður jarðsungin frá Seljakirkju
þriðjudaginn 14. desember klukkan 15.
Allir sem vilja fylgja henni eru velkomnir en vegna
sóttvarnatakmarkana þarf að sýna neikvætt hraðpróf við
innganginn frá viðurkenndum aðila, ekki eldra en 48 tíma.
Streymt verður frá athöfninni:
https://youtu.be/_LxtLO-hhcU
Karl Kristensen Oktavía Ágústsdóttir
Lilja Kristensen Unnsteinn G. Jóhannsson
Arnheiður I. Kristensen Oscar Diano
Hrefna Kristensen Gil Cereno
Jóhanna M. Kristensen
barnabörn og barnabörn.
Okkar ástkæri
Jón Bjarnar Ingjaldsson
Grensásvegi 60,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju
mánudaginn 13. desember klukkan 11.
Allir eru velkomnir í kirkjuna en vegna
sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna neikvætt
hraðpróf við innganginn sem er ekki eldra en 48 klst.
Hraðpróf er pantað fyrir fram á covidtest.is, covid.is eða
testcovid.is. Streymt verður frá athöfninni á
https://youtu.be/Sifgu1AgvA.
Ólafur Viðar Ingjaldsson Ragnhildur Ísleifsdóttir
Guðmann Ingjaldsson Eygló Þóra Guðmundsdóttir
Ágúst Ólafsson Sigríður Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
1768 Fyrsta útgáfa alfræðiorðabókarinnar Britannica
kemur út í Edinborg.
1799 Frakkland verður fyrsta ríki heimsins til að taka upp
metrakerfið.
1817 Mississippi verður tuttugasta ríki Bandaríkjanna.
1884 Skáldsagan Stikilsberja-Finnur eftir Mark Twain
kemur út í Bretlandi.
1901 Nóbelsverðlaunin eru veitt í fyrsta sinn.
1909 Selma Lagerlöf hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels.
Hún var fyrsti kven-
kyns rithöfundur-
inn til að hljóta
verðlaunin.
1924 Rauði krossinn á
Íslandi stofnaður.
Sveinn Björnsson
sem síðar varð
fyrsti forseti lýð-
veldisins var fyrsti
formaður Rauða
krossins.
1972 Brian Molko, for-
sprakki hljómsveit-
arinnar Placebo, er
í heiminn borinn á
þessum degi.
2005 Unnur Birna Vil-
hjálmsdóttir kjörin
ungfrú heimur en
keppnin fór fram í Sanya í Kína.
Upplestur á Aðventu eftir Gunn-
ar Gunnarsson verður venju
samkvæmt í Gunnarshúsum á
Dyngjuvegi og Skriðuklaustri
næsta sunnudag. Forstöðumaður
Gunnarsstofnunar segir söguna
eiga nóg inni þegar að alþjóðlegri
velgengni kemur.
arnartomas@frettabladid.is
Síðan 2005 hefur Aðventa Gunnars
Gunnarssonar um eftirleitir Fjalla-Bensa
og förunauta hans á Mývatnsöræfum,
verið lesin upp venju samkvæmt í Gunn-
arshúsum í Reykjavík og á Skriðuklaustri
og verður þeirri hefð haldið áfram
12. desember, þriðja sunnudag í aðventu.
Í ár les Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir,
leikkona og handritshöfundur, í Gunn-
arshúsi á Dyngjuvegi og Þór Ragnarsson,
áhugaleikari og heimamaður, í Gunnars-
húsi á Skriðuklaustri.
Þessi hefð hefur einnig teygt sig út
fyrir landsteinana, meðal annars til
Berlínar og Moskvu.
„Síðan bókin var gefin út á rússnesku
fyrir einum tíu árum þá hefur hún verið
lesin á aðventunni af Íslandsvinafélaginu
í Moskvu,“ segir Skúli Björn Gunnars-
son, forstöðumaður Gunnarsstofnunar.
„Síðan hefur hún verið lesin lengi í nor-
rænu sendiráðsbyggingunni í Berlín. Það
hefur alltaf verið fullt hús þar í salnum.“
Skúli Björn segir að innanlands haldi
upplestrarhefðin einnig áfram að vaxa.
„Hún er búin að stimpla sig allrækilega
inn sem jólasagan,“ segir hann og í ein
átta ár var Aðventa lesin í Ríkisútvarp-
inu á aðfangadag. „Menn lesa bókina
heima hjá sér, en svo skjóta upplestrar-
samkomur upp kollinum hér og þar.“
Margt ósagt milli línanna
Gunnar Gunnarsson skrifaði nóvelluna
Aðventu árið 1936 og kom hún út í fyrsta
sinn það ár í Þýskalandi. Skúli Björn
segir alþjóðlega velgengni bókarinnar
vera ýmsu að þakka.
„Þetta er náttúrulega stutt saga fyrir
það fyrsta, innan við hundrað blaðsíður,
sem á sinn þátt í því að það gengur vel
hjá okkur með útgáfur erlendis. En inni-
haldið er auðvitað það sem skiptir máli.“
Aðventa byggir á raunverulegri per-
sónu sem Þingeyingar, og sérstaklega
Mývetningar, þekkja sem Fjalla-Bensa.
„Gunnar vinnur með sanna frásögn
sem söguefni,“ segir Skúli. „Hann les fyrst
viðtal við Fjalla-Bensa í Eimreiðinni þar
sem hann lýsti erfiðum eftirleitum sem
hann hafði lent í, sér í lagi einni þar sem
hann hafði næstum orðið úti.“
Eftir þann lestur skrifaði Gunnar svo
smásögu um Fjalla-Bensa, fimm árum
áður en hann skrifaði bókina sjálfa.
„Þegar hann skrifar svo Aðventu er
hann búinn að fullmelta söguefnið og
nær að skrifa þessa perlu sem rekur
meðal annars samband manns og dýra,
og síðan þessa baráttu við náttúruöflin,“
segir Skúli. „Það fer oft hrollur um mann
við að hlýða á óveðurslýsingarnar.“
Skúli segir að í sögunni liggi einnig
margt á milli línanna sem er ósagt.
„Það er eitthvað í Aðventu sem er alveg
ótímabundið og tekur á mannkærleik og
stórum lífsspurningum sem eiga alltaf
við,“ segir hann. Þótt það séu 85 ár síðan
bókin var skrifuð á hún alveg jafn vel
við í dag eins og vinsældirnar sanna.
Hún hefur meira að segja verið þýdd á
arabísku.“
Aðspurður segir Skúli Björn að lang-
varandi sigurganga Aðventu eigi enn
nóg inni.
„Aðventa var gefin út fyrir nokkrum
árum á Ítalíu og við höfum þegar fengið
Ítali til okkar á Skriðuklaustur sem segj-
ast hafa lesið bókina,“ segir hann. „Það
sýnir auðvitað hversu víðlesin hún er
og við eigum enn þá eftir fullt af tungu-
málum!“ n
Áframhaldandi sigurganga
Aðventu á heimsvísu
Gunnar Björn Gunnarsson, barnabarnabarn skáldsins, að lesa Aðventu á Skriðu-
klaustri 2017. Skúli Björn segir viðburðinn iðulega vera vel sóttan. MYND/AÐSEND
Kápa ítölsku útgáfunnar af Aðventu frá
2016 er ansi jólaleg. MYND/AÐSEND
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2021 FÖSTUDAGUR