Strandapósturinn - 01.06.1997, Blaðsíða 78
þeim eftir megni. Sagt er að hann tæki ekki mikið fyrir, það var
helst að menn fengu sláttuorf í hendurnar á meðan þeir biðu
þess að hann lyki smíðinni. Auk þess að smíða fyrir sig og aðra
lagði hann sig fram um að miðla kunnáttu sinni til þeirra er
sýndu áhuga. Þannig var hann farinn að taka til sín nema strax
á fyrsta ári á Hjallalandi og yfirleitt voru hjá honum ungir
bændasynir sem vildu læra af honum smíðar. Að beiðni Lestrar-
félags Bólstaðar- og Svínavatnshreppa samdi Þorsteinn ritgjörð
um einkenni á góðu járni til bits og helstu varúðarreglur í smíði
þess. I fundarbók félagsins sést að hún var lesin upp á aðalfundi
árið Í855 og þótti hún vera vel samin, en að því best er vitað þá
er ritgjörðin sjálf glötuð.
Þorsteinn hafði yfirgripsmikla þekkingu á járnsmíðum og það
var ekki ætlun hans að taka hana með sér í gröfina. Hann hóf
því ritun á því sem hann kallaði Viðvaning eba smíðabækling
handa unglingum. Það var einskonar kennslubók í járnsmíðum
fyrir áhugasama unglinga sem vildu læra meira í smíðum en
þeim bauðst til sveita. Greinilegt er að Þorsteinn hefur lagt
mikla vinnu og alúð í að skrifa þennan „bækling“ sinn, og það
var alltaf ætlun hans að fá hann útgefmn. Þorsteinn var ekki
mikið fyrir að flíka verkum sínum og eins og nafn ritsins ber
með sér var eina ástæða hans fyrir þessari bókarritun að miðla
þekkingu til komandi kynslóða. Ur útgáfu ritsins varð þó aldrei
og engar heimildir eru um ástæður þess. A þessum árum var
bókaútgáfa ekki með stóru sniði og hugsanlegt að þeir sem út-
gáfumálum stjórnuðu hafi talið annað vera þarfara aflestrar.
I bréfi sem Þorsteinn skrifaði þegar hann var á Kollafjarðar-
nesi árið 1861, til Torfa vinar síns, segist hann vera „alltaf að
skrifa smíðarugl í þeirri von að einkvör njóti þó verði aldrei
maður að koma því á prent ...“ En tæpum sjö árum síðar hafði
hagur hans vænkast og þetta áhugmál hans var komið í annan
og betri farveg. Hér er aftur gripið niður í það bréf Þorsteins til
Torfa er grein þessi hófst á:
... Peningurinn minn er nú 25 ær, 8 gjemlíngar, 2 kýr, 3 hestar,
fólk í heimili 14 semstendur sam. 15. ... Smíðapjesinn minn er kom-
76