Luxus - 01.04.1986, Síða 24
LUXUS
FATAKAUP
Á ITALIU
Hér [ opnunni birtum við myndir sem Magnús
Hjörleifsson Lúxusljósmyndari tók í fyrrasumar á
Ligniano á Italíu af nokkrum glaðværum Fríklúbbs-
farþegum. Fötin eru frá versluninni Sbaiz sem er við
aðalgötuna, Sabbiadoro. Verslunin selur föt frá
þekktustu tískukóngunum, eins og t.d. Armani,
Ferré, Gianni Versace, Kenzo, Jean Paul Gultier
(JPG), Genny og ffeiri slíkum. Fataverðið frá í fyrra
látum við fljóta með.
Módelin eru Tómas Tómasson, ívar Hauksson,
Ingibjörg Kaldalóns, Kristín Vilhjálmsdóttir og Iris
Björg Hreinsdóttir. Snyrtingu annaðist Ingiveig
Gunnarsdóttir.
Herrarnir eru í fatnaði frá Gianni Versace. Leður-
jakkarnir kosta um og yfir 40 þúsund krónur. Á efri
myndinni er Tómas (t.v.) [ jakka sem kostaði kr.
17.600, buxum, kr. 4.200, og skyrtu á kr. 3.800.
Jakki fvars kostaði kr. 14.400, buxurnar kr. 6.000
og skyrtan kr. 7.400.
Á myndinni sem tekin er við rómverskar súlur við
sundlaug hótelsins Terra Mare er Kristín (t.v.1 í
kvöldkjól frá Versace (verðið höfum við ekki) og (ris
í kvöldkjól frá Ferré, sem kostar kr. 17.700.
Neðri myndin sýnir Ingibjörgu Kaldalóns (sem
komst í annað sæti Útsýnarkeppninnar í fyrra) og
(ris fyrir utan verslunina Sabiz. Ingibjörg er í fötum
frá Armani. Buxur kr. 4.200, toppur 5.400 og kápa
kr. 16.200. (ris í blússu sem kostaði kr. 5.200, pilsið
4.800 og kápan 15.000.
Hér til hliðar er Kristín í jakka með lafi, kr. 6.800,
og buxum, sem kostuðu kr. 4.900. Hvoru tveggja
frá Jean Paul Gaultier.
Baðfötin eru einnig frá JPG.
Engan þarf svo að undra, að sólgleraugu fást í
miklu Úrvali á Ítalíu eins og litla myndin af Ingólfi
Guðbrandssyni, Ivari og Tómasi sannar... □
)
)
24 LÚXUS