Luxus - 01.04.1986, Blaðsíða 81
LÚXUS
Blaðamaður Lúxuss á tali við Ernst Maoro, ritstjóra frá Þýskalandi,
fyrir utan eina afhöiium Ludovicos Sforza greifa frá endurreisnartíma-
bilinu. Maoro tók reyndar myndirnar sem hér birtast og hefur mikinn
áhuga fyrir íslenskum hestum og Halldóri Laxness, eins og reyndar
margir þýskir menntamenn.
ítalska víneftirlitið
er mjög strangt
Það er mikið í húfi fyrir ítalska
vínframleiðendur og hvort sem
menn trúa því eða ekki, þá er
ítalska víneftirlitið mjög strangt
og gerir háar gæðakröfur. Við
heimsóttum aðalstöðvar þess,
Enoteca I smáborginni Siena. Þar
eru snyrtilegar rannsóknarstofur,
vínsafn og smakkarasalir, fyrir
utan skrifstofur, ráðstefnusali og
ýmislegt annað, enda er bygging-
in stór og nýtískuleg. I þessari
stofnun eiga allir, sem framleiða
vín á Ítalíu, þess kost að fá gæði
framleiðslunnar metin. Þar fá góð
vín gæðastimpilinn DOC og
bestu vínin DOC G. Það er því
hægt að treysta því að mörg
úrvalsvín eru framleidd á Ítalíu í
dag. DOC tryggir gæðin og ekki
er verra að stafurinn G fylgi fast
á eftir á flöskumiðanum.
ítalir hljóta að líta á tréspíra-
blandarana sem verstu landráða-
menn. Hins vegar eru þúsundir
vínbænda á italíu og erfitt að
fylgjast með gerðum þeirra allra.
Óruggasta ráðið fyrir þá sem
kaupa vín, hvort sem þau eru frá
Ítalíu eða öðrum löndum, er að
gæta að því hvort viðkomandi vín
hefur farið í gæðaeftirlit - og
hvaða einkunn það hefur fengið.
I morgunheimsókn hjá Strozzi fursta. Hann heldur þarna á einni af
dætrum sínum, sem er raunveruleg prinsessa, og ræðir við forseta
belgíska vínsambandsins - en hann var ómetanleg uppspretta
fróðleiks og upplýsinga í ferðinni.
í Enoteca, húsi ítalska víneftirlitsins í Siena. Þar voru þátttakendum
kennd ýmis grundvallaratriði varðandi smökkun eðalvína.
Skammstöfunin D.O.C.
stendur fyrir „Denominazione
di Originale Controllata“ og
þýðir að viðkomandi vín sé
framleitt úr úrvals vínberjum
og eftir ströngustu kröfum.
Stafurinn G (fyrir Garantita) er
bætt viið skammstöfunina ef
yfirstjórn ítalska ríkiseftirlitsins
með borðvínum finnst vínið
skara algjörlega fram úr að
einhverju ieyti. Fyrir nákvæm-
lega tveim árum höfðu eftirtal-
in 19 vín náð einkuninni DOC
og DOCG í Toskana-héraði:
Bianco di Pitigliano, Bianco
Pisano di S. Torpé, Bianco
Val di Nievoie, Bianco Vergine
Val di Chiana (Bianco þýðir
einfaldlega hvítt), Bolgheri,
Brunello di Montalcino, Candia
dei Colli Apuani, Carmignano,
Chianti (þetta fræga, ósvikna
sem ekki ber nein aukanöfn),
Elba Bianco, Elba Rosso
(Rosso þýðir rautt), Montecar-
lo, Morellino di Scansano,
Parrina, Pomino, Rosso selle
Colline Lucchesi, Vernaccia di
San Gimignano og Vino No-
bile di Montepulciano.
LÚXUS 81