Luxus - 01.04.1986, Blaðsíða 76
TEXTI:
ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
Þórscafé á fjórum hœðum
áður en lanat um líður?
Núna á fertugasta aldursári
veitingastaðarins Þórscafé
eru eigendurnir ekki að lækka
flugið, þvert á móti. Á teikni-
borðinu eru áætlanir um innrétt-
ingu veitingasalar á þriðju hæð
hússins við Brautarholt og meira
að segja farið að hugleiða innrétt-
ingu 140 manna salar á þeirri
fjórðu og þá fyrir einkasam-
kvæmi.
Eðlilegt, að eigendurnir hafi
séð ástæðu til að reisa lyftu utan
á húsinu, en hún er að mestu úr
gleri og liggur upp eftir tumi
hússins á homi Brautarholts og
Nóatúns.
Auk þess sem hljómburðartæki
hafa verið endurnýjuð að vem-
legu leyti hefur verið sett upp
dýrt og margslungið ljósakerfi fyr-
ir dansgólfið. Sömuleiðis em
Ijósaskreytingar á veggjum vel
heppnaðar.
Og svona í leiðinni voru gerðar
nokkrar endurbætur á ljósum og
hljómflutningstækjum danssalar-
ins á efri hæðinni, en þar standa
fyrir dyrum enn frekari breyting-
ar, sem á að ljúka fyrir 13. sept-
ember, sem er afmælisdagur stað-
arins. Segja má með sanni, að
höfð verða endaskipti á salnum.
Langi barinn í suðurenda salarins
flyst yfir í norðurendann og við
það gefst tækifæri til að taka á
móti fleiri matargestum, sem not-
ið geta skemmtiatriða. Eftir
breytingarnar geta þeir verið 300
í stað 220 áður.
Núverandi framkvæmdastjóri
Þórscafé er Ragnar Björgvinsson,
en hann er þriðji ættliðurinn sem
þama fer með framkvæmda-
stjóm. Hann er sonur hjónanna
Björgvins Ámasonar og Rakelar,
dóttur Ragnars heitins, sem opn-
aði dansstaðinn.
Fyrir um mánuði síðan var
diskótekið á fyrstu hæð hússins
opnað eftir vemlegar breytingar,
sem hannaðar vom af Jóni Kaldal
á teiknistofunni Arko. En það
var líka Arko, sem innréttaði
salinn fyrir tíu árum, en þá var
um leið tekin í notkun viðbygg-
ing, sem tengdi hæðirnar tvær.
Arko hefur innréttað flesta
vinsælustu skemmtistaði landsins,
Hollywood, Broadway, Klúbbinn
og Sjallann. Þegar þessir staðir
vom innréttaðir fyrir áratug var
það básaskipanin, sem allir vildu.
Núna em básarnir að hverfa og
gerðar kröfur til að sjá megi yfir
allan samkomusalinn hvaðan sem
horft er. Þannig voru þeir í Arko
að breyta Hollywood og Þórscafé.
Og ekki bregst þeim bogalistin
fremur en fyrri daginn.
Meðfylgjandi
myndir eru
frá opnun
diskóteksins eftir
breytingarnar.
76 LÚXUS