Luxus - 01.04.1986, Qupperneq 62
LUXUS
anna í Saint-Qermain-des-Prés
hverfinu," segir hann. „Og til að
vera ekki eins og hinir, kaus ég að
koma mér fyrir uppi á háalofti í
Richepansegötu fyrir eigið fé.“
Fyrstu viðskiptavini sína faer
Cardin í gegnum Christian Dior.
Hann hannar aðallega klæðnaði
sem nota má í fleiri en eitt sam-
kvæmi. Mörg slík verkefni gera
honum jafnframt kleift að hanna
kjóla fyrir glæsilegustu konur
þessa tíma. Þeirra á meðal eru
Rita Hayworth og greifynjan af
Windsor.
Bylting „Prét-á-porter“
tískunnar
Árið 1953 öðlast Cardin hylli
almennings þegar hann kynnir
fyrstu eigin tískulínu sína. Pað er
ekki síst fyrir milligöngu tveggja
þekktra tískublaðakvenna; Carm-
en Snow og Marie-Louise Bousq-
uet. Árið 1954 verður Cardin
heimsfrægur þegar hann kynnir
„Kúlukjólana" svókölluðu, sem
valda byltingu í hefðbundnum
saumaskap. Ári síðar opnar hann
fyrstu tískuverslun sína í Fau-
bourg St. Honoré hverfmu, en af
því hverfi hefur hann alla tíð síðan
verið hrifinn. í fimm ár kynnir hann
tískulínu sína þar í glæsilegu um-
hverfi; í sölum sem skreyttir eru
með leðurhúsgögnum eftir Boulle
og með marmaragófli. Árið 1957
fer Cardin að sýna karlmannatísk-
unni áhuga. Þá opnar hann tísku-
búðina Adam við hliðina á tísku-
búðinni Evu. Þar selur hann ein-
göngu hálsbindi á stjarnfræðilega
háu verði, ásamt áprentuðum
skyrtum. Allur þessur munaður
hefur síðan tryggt Cardin hylli rík-
ustu og glæsilegustu viðskiptavina
Parísar.
Kúlukjóllin frægi.
Westwind-þotan, sem Cardin
lét skreyta eftir sínu höfði.
Tískusýning hjá Nixon-
hjónunum.
Samkvæmi í Maxim’s til heið-
urs Barböru Steisand.
En Cardin hafði líka áhuga á
ýmsu öðm.
„Eg veitti því athygli að tísku-
hönnun frá París seldist um allan
heim,“ segir hann. „Síðan hafa
verið framleiddar eftirlíkingar
sumsstaðar og seldar á hagstæðu
verði - en það var óleyfilegt í
Frakklandi. Eg varð óánægður
með þetta óréttlæti. Þess vegna
hannaði ég jafnframt tískulínu
sem auðveldaði unga fólkinu að-
gang að framleiðslunni."
1959 tekur Pierre Cardin ein-
hverja afdrifaríkustu ákvörðunina
á öllum ferli sínum. Hann undirrit-
ar samning við stórfyrirtækið Pre-
temps á þá lund að fyrirtækið
dreifi fýrir hann fýrstu sendingun-
um af svokallaðri Prét-á-porter línu
sem hann hafði nýlega hafið fram-
leiðslu á. Þetta olli hneyksli í hinum
lokaða heimi hátískunnar. Cardin
er hunsaður af hinum tískuhúsun-
urh og jafnvel beðinn að segja sig
úr starfsmannasambandi tísku-
hönnuða. Tískufrömuðir Parísar-
borgar skildu ekki að hið mikla
ævintýri Prét-á-porter (á ensku:
Ready-to-wear) tískunnar var að
hefjast, en þetta ævintýri átti síðar
eftir að bjarga þeim frá því að líða
undir lok.
Bylting í karlatískunni
Clm þetta leyti eru vinsældir
Cardins orðnar algerar, bæði hvað
varðar blaðaummæli og viðskipti.
Þetta er upphaf viðamikils sam-
starfs við vefnaðariðnaðinn sem
nýtur nú loksins góðs af tískunni.
Þetta er einnig upphaf einkafram-
leiðsluleyfa, en þeim fer síðar fjölg-
andi.
Árið 1960 kynnir Cardin í fýrsta
„Blue marine": Fyrsta
karlailmvatnið sem Pierre
Cardin skóp. Eitt mikil-
vægasta blómið í karla-
deild tískuhússins.
62 LÚXUS