Luxus - 01.04.1986, Qupperneq 78
LUXUS
Fattoria Rimaggio.
Fyrirtak fyrir aö minnsta kosti 4 gesti.
Castello di Cacciano.
Frábært útsýni yfir vigin og Trovedal.
Gömul sveitasetur
til leigu á Ítalíu
TEXTI:
ÞORSTEINN E6GERTSS0N
Margir telja Ítalíu vera eitt af
fegurstu löndum heims. Þar
eru Dólómítafjöllin óviðjafnan-
legu, Gardavatn og Lago Magg-
iore, eyjan Capri, smáríkið San
Marino og borgirnar San Remo,
Mílanó, Veróna, Feneyjar,
Genova, Písa, Flórens, Siena,
Tívolí, Palermó, Napólí og Róm
að ógleymdu Toskanahéraðinu
með marmarafjöllunum sínum og
djúpum, skógivöxnum dölum.
í Toskana er enn minna hérað
sem heitir Pergíno. Það er nokk-
urn veginn mitt á milli borganna
Flórens, Siena og Arezzo. Á
dögum Rómaveldisins forna var
héraðið mjög þéttbýlt en á mið-
öldum komust hæðirnar og dalirn-
eru í enn þann dag í dag. Sumir
telja héraðið meðal þeirra allra
fegurstu á Ítalíu. Meginhluti þess
stendur á hæð sem aðskilur Arn-
ódalinn frá Chiana-dal. Það er
tæpir 47 km2 að flatarmáli eða
rúmlega helmingi minna en
Reykjavík. Áin Arno (sem Flórens
stendur við) rennur um héraðið
en auk hennar eru þarna smærri
ár, s.s. Trove og Scerfio.
Lestin sem gengur á milli Flór-
ens og Rómar hefur áfangastöð
í dalnum. Þar er hægt að fá leigt
sveitasetur á mjög hagstæðu
verði og með ýmsum þægindum,
s.s. reiðhestum, þjónustufólki o.fl.
Öll þessi sveitasetur eiga það
sameiginlegt að vera ævagömul,
vandlega endurnýjuð og sum
hver í ævintýralega fögru lands-
lagi. Eigendur húsanna eru óðals-
bændur og listamenn sem leggja
metnað sinn í að varðveita fegurð
þessa sveitahéraðs og halda uþpi
ósvikinni bændamenningu eins
og hún hefur orðið hvað glæsileg-
ust í Toskana.
Sum húsanna eru eingöngu
leigð ferðafólki og þar er boðið
upþá ýmsa menningarviðburði
ss. konserta, listsýningar, og ráð-
stefnur. Þarna er hægt að láta
innrita sig á reiðskóla og önnur
námskeið, þarna eru tennisvellir
og almenningssundlaugar, sölu-
sýningar og útimarkaðir, ítölsk
sveitaböll og skipulagðar göngu-
ferðir gegn um skógana.
Öll húsin eru í senn virðuleg og
þægileg. í þeim eru góð eldhús,
fyrirtaks baðherbergi og mið-
stöðvarhitun og að sjálfsögðu er
reglulega skipt um rúmföt í svefn-
herbergjunum.
Að vísu eru þessi sveitasetur I
ir í Pergíno í það horf sem þau
Castello di Montozzi.
Þar geta 15 manns dvalist samtímis.
150 km fjarðlægð frá næstu
baðströnd, en þaðan er stutt til
Arezzo, Flórens og Siena og
þriggja tíma akstur til Rómar.
Og þá er komið að því að segja
frá nokkrum þessara húsa:
Fattoria Rimaggio stendur
umlukt ólífulundum og vínekrum.
Elsti hluti hússins er frá 14. öld
og þar dvaldi Napóleon III. um
tíma. Sex til átta manns geta búið
þar samtímis og húsið stendur í
húsaþyrpingu við þjóðveginn milli
Arezzo og Flórens.
Castello di Montozzi eða
Montozzi-kastali var byggður á
múrum enn eldri kastala árið
1608, en leifar eldri kastalans eru
enn sýnilegar. Þetta er miðstöð
mikillar jarðeignar með vínekrum
og ólífulundum. Útsýnið er ævin-
týralega fagurt og gestirnir hafa
Framhald á síðu 82
Fattoria Bucine.
Chianti-vínið er framleitt á vínekrunni
í kring.
78 LÚXUS