Strandapósturinn - 01.06.2016, Síða 40

Strandapósturinn - 01.06.2016, Síða 40
38 henni yfirgang eða hroka. Það var sérstaklega tekið til þess hversu vel hún hugs aði um þá sem áttu undir högg að sækja. Undir hennar verndarvæng áttu þeir skjól og var sýnd sama virðing og atlæti og öðrum sem bar að garði. Það var sama hvort gesturinn var sjálfur sýslumaðurinn eða fátækur húsgangsmaður. Ég hefi aldrei heyrt að nokkur manneskja hafi nokkurn tíma sagt hnjóðsyrði í garð ömmu. Miklu fremur heyrði maður alla tíð hversu góð og mikilhæf manneskja hún hefði verið. Hún var skartmanneskja og lagði mikið upp úr góðum klæðaburði, að fólk klæddist sómasamlega sama hvort var hversdags eða spari. Þegar amma var komin í upphlutinn sinn með skotthúfu og stokkabelti um sig miðja, sópaði að henni. Þá duldist engum hver þar var á ferð. Þótt kynnin hafi ekki verið löng fyrir hjónabandið kviknaði ást og virðing milli þeirra hjóna og svo fæddust börnin eitt af öðru. Afi bar ómælda virðingu fyrir ömmu og fannst gott hvað hún hélt uppi myndarlegu og ríkmannlegu heimilishaldi. Þau voru sam- taka um flesta hluti og saman ákváðu þau að byggja nýtt og stórt íbúðarhús á Víðidalsá 1926, hús sem vissulega hæfði. Frægasti arkitekt Íslendinga, Guðjón Samúelsson, teiknaði húsið. Það er mjög miður að húsið á Víðidalsá skuli hafa glatast úr ættinni, því að þar hefði mátt setja upp lifandi safn, menningar- setur, sem sýndi höfðingjabýli í sveit í upphafi 20. aldar, það hefði verið veglegur og viðeigandi minnisvarði um afa og ömmu og þann stórhug, sem þau bjuggu yfir og sýndu. Það er óhætt að fullyrða að þau báru höfuð og herðar yfir nágrenni sitt og þótt víðar væri leitað. Það er gott að hugsa til þess að eiga því láni að fagna að tengj- ast þessum rismiklu hjónum og vera í þakkarskuld við þau um marga góða hluti. Að lokum leyfi ég mér að segja tvær sögur sem Fríða, Hallfríð- ur Jónsdóttir á Undralandi, sagði mér og lýsa vel hverslags forstandskona amma hefur verið í alla staði. Fríða var dóttir Jóns Brynjólfssonar, bróður ömmu. Fríða segir svo frá, sagt með henn- ar orðalagi: Þegar Þorsteinsína kom fyrst á Víðidalsá leist henni ekki alls kostar vel á klæðaburð og útganginn á mannsefninu. Hans dag- legu klæði voru einhvers konar strigabuxur, óttalegar druslur, og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.