Strandapósturinn - 01.06.2016, Page 52

Strandapósturinn - 01.06.2016, Page 52
50 búið sá hann að ekki yrði lengra farið og yrði hann því að snúa frá. Ekki vildi hann fara aftur að Kjörvogi til að gista þar um nóttina heldur ákvað að labba langt fyrir ofan bæinn með fram Kjörvogsmúlanum, síðan fyrir Ávíkurdal, inn í Trékyllisvík og yfir Naustvíkurskörð, þriggja tíma gang. Guðmundur Árnason var mikill sómamaður sem engum datt í hug að vefengja en söguna sagði hann þá er hann kom heim til sín er liðið var fram á nótt. Það segir sig sjálft að enginn tekur á sig þriggja tíma erfiða göngu í myrkri að gamni sínu. Leiðin, sem hann átti eftir að fara heim til sín frá Hrafnshamarsgjánni, var svona rúmur hálftími. Að leggja á sig erfiða þriggja tíma göngu gera menn ekki nema eitthvað mjög óvænt komi upp á. Guð- mundur mun hafa verið tregur til að segja söguna eftir að hann hafði útskýrt hana heima hjá sér við heimkomuna en þeir sem heyrðu hana efuðust ekki um að þarna hafi verið eitthvað undar- legt á ferðinni. Löngu síðar, eða 1958, var ég á jarðýtu að gera veginn yfir Hrafnshamarsgjá en hann liggur um gömlu reiðgötuna þar sem Guðmundur Árnason varð frá að hverfa í síðara skiptið. Ég var á næturvakt seint í júlí er ég kom að Hrafnshamarsgjánni og byrj- aði að ýta efni inn í Hrafnshamarslækinn um miðnætti. Þá var enn albjört sumarnótt en sagan af Guðmundi Árnasyni kom mér þá mjög í hug. Beið ég alltaf eftir að eitthvað myndi gerast, ýtan að bila eða einhver álíka jarteikn eiga sér stað. Það gerðist ekki og kláruðum við veginn á nokkrum dögum yfir Hrafnshamar að Langahjalla sem liggur þar rétt fyrir innan en þar þurfti að sprengja. Þegar verið var að ýta blautu moldarefni að sprengju- staðnum festist ýtan svo illa að keyra varð hana fram úr drullinni og niður allan brattann og niður í fjöru, tvísýn ferð. Ýtan kom niður nokkurn veginn um miðja Ónavíkina til móts við gamla skipsflakið sem þar hefur verið að brotna niður í áratugi. Til að komast aftur upp á veg þurfti að fara út fyrir Hrafnshamarslækinn við Ónaklettana og síðan leiðina upp sem Guðmundur Árnason varð að ganga til að komast upp á efri reiðgötuna. Kannski var þessi atburðarás skilaboð til mín um að ég væri á stað þar sem fyllstu aðgát skyldi við hafa. Sagan af nafna mínum í Naustvík hefur ærið oft komið mér í hug og hún varð til þess að ég gerði vísu undir bragarhætti Jóns
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.