Bændablaðið - 22.07.2021, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202112
Ákveðið hefur verið að halda
verk efninu Glæðum Grímsey
áfram út næsta ár. Byggðastofnun
leggur verkefninu til fjármuni úr
Brothættum byggðum líkt og verið
hefur undanfarin ár og eru þau
nýtt til verkefnastjórnunar og til
að styrkja framfaraverkefni.
Akureyrarbær og Samtök
sveitarfélaga leggja verkefninu
einnig lið og annast umsýslu þess
með Byggðastofnun.
Þáttur íbúa í Grímsey snýst um
að styrkja samfélagið með ýmsum
framfaraverkefnum en þyngst
vegur þó dugnaður þeirra sjálfra í
verkefninu. Íbúar komu saman á
dögunum til fundar sem loks var hægt
að boða eftir að kórónuveirufaraldur
er í rénun, en farið var yfir stöðuna og
framhaldið rætt. Mæting á fundinn
var mjög góð.
Halla Björk Reynisdóttir,
formaður verkefnisstjórnar og forseti
bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, setti
fundinn og gerði grein fyrir ákvörðun
um framlengingu verkefnisins til loka
árs 2022, í kjölfar samtals fulltrúa
Akureyrarbæjar við stjórnvöld og
samþykktar ríkisstjórnar þar að
lútandi.
Nánar var farið yfir helsta árangur
verkefnisins til þessa og áherslur
næstu mánaða. Í framhaldi af því
var gerð grein fyrir stöðu markmiða
í verkefnisáætlun og að því loknu
skiptu íbúar sér í hópa til að ræða
áherslur í vinnu næstu missera í
framlengdu verkefni. /MMÞ
Jón Jóhannsson er staðarhaldari
að Mosskógum í Mosfellsdal
þar sem haldinn hefur verið
grænmetismarkaður í 20 ár.
Á hverju ári bætist við úrvalið og
er þar að finna fjölbreyttan varning
frá ræktendum og framleiðendum
í nágrenninu, blóm, glænýjan
silung úr Þingvallavatni, hunang,
umhverfisvænar sápur með ýmiss
konar jurtum ásamt veitingum frá
ýmsum þjóðlöndum.
Blaðamaður Bændablaðsins
átti leið um Mosskóga á dögunum,
þegar annar markaður sumarsins
var haldinn. Opið er allar helgar,
laugardag og sunnudag fram í
september/október, allt eftir því hvað
veðrið leyfir. Það var hin fínasta
sumarstemning á markaðnum en
Jón segir þau fara rólega af stað og
auglýsa lítið í byrjun þannig að þau
nái að anna eftirspurn.
„Við auglýsum okkur á Facebook
en þegar á líður sumarið verður
meira úrval og því förum við hægt
í sakirnar til að byrja með. Ég byrjaði
hér með trjárækt en fór svo smátt og
smátt út í grænmetið og var í raun
algjör tilviljun að við byrjuðum með
markaðinn á sínum tíma. Það kom
viðtal í Morgunblaðinu og það varð
algjör sprenging hér, komu um tvö
þúsund manns og allt tæmdist á
augabragði. Síðan hefur þetta fest
sig í sessi og það er alltaf jafn góð og
hugguleg stemning hérna sem fólk
sækir í, en núna má eiginlega segja
að þetta sé orðið bændamarkaður því
úrvalið er mun meira en eingöngu
grænmeti,“ útskýrir Jón Jóhannsson
í Mosskógum. /ehg
FRÉTTIR
Alls konar gómsætt
og gott úr sveitinni
Jón Jóhannsson í Mosskógum í Mosfellsdal hefur ræktað grænmeti um árabil og byrjaði með grænmetismarkað á
staðnum fyrir 20 árum sem hefur þróast út í líflegan bændamarkað allar helgar yfir sumarið.
Það er ekki amalegt að geta keypt sér nýveiddan silung
beint upp úr Þingvallavatni.
Þessi mæðgin seldu alls kyns tegundir af hunangi frá
heimalandi sínu.
Glæsileg blóm voru til sölu frá Dalsgarði.
Glæðum Grímsey:
Framlengja verkefnið
til loka næsta árs
Góð mæting var á íbúafund sem
haldinn var um verkefnið nýverið.
Á bryggjunni í Grímsey.
Verkefnið Glæðum Grímsey mun standa út árið 2022 og þess vænst að það
muni styrkja búsetu í eyjunni. Myndir / Kristján Þ Halldórsson á vef Byggðastofnunar
REKI EHF ER STOLTUR UMBOÐSAÐILI DONALDSON
Á ÍSLANDI. EIGUM MIKIÐ ÚRVAL AF SÍUM Á LAGER.
Reki ehf Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Sími: 562 2950 Fax: 562 3760
E-mail: bjorn@reki.is www.reki.is