Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 15
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
hefur tekið jákvætt í ósk
forsvarsmanna Blönduósbæjar um
að hefja formlegar viðræður um
sameiningu sveitarfélaganna tveggja.
Sameining var samþykkt í báðum
þessum sveitarfélögum í íbúakosningu
í byrjun sumars. Tvö sveitarfélög í
Austur-Húnavatnssýslu, Skagaströnd
og Skagabyggð felldu þá sameiningu.
Fram kemur í fundargerð
sveitarstjórnar Húnavatnshrepps að
áður en lagt verði í þá vegferð sem
sameiningarviðræður eru telji hún
rétt að leggja fyrir skoðanakönnun
samhliða alþingiskosningum í lok
september.
„Ástæða þess er að tryggja
umboð sveitarstjórnar frá íbúum
sveitarfélagsins til að fara í slíkar
sameiningarviðræður,“ segir í bókun
frá fundinum.
Samþykkt var á fundinum að leggja
skoðanakönnun fram í þeim kosningum
og mun verða lögð fram spurningin;
Vilt þú að Húnavatnshreppur fari í
sameiningarviðræður við Blönduósbæ?
Viðræðum verði lokið í síðasta lagi í
janúar á næsta ári
Mikil undirbúningsvinna hefur þegar
farið fram en sveitarstjórn segir þó
að grundvallarmunur sé á þessari
sameiningu en þeirri sem felld var í
júní síðastliðnum. Verði niðurstöður
skoðanakönnunar þær að meirihluti
íbúa sveitarfélagsins vilji fara í
formlegar sameiningarviðræður ætli
sveitarstjórn að leggja allt kapp á
að ljúka sameiningarviðræðum og
kosningu eins hratt og hægt er og eigi
síðar en í janúar árið 2022. Þá segir
í bókun sveitarstjórnar að enn standi
þeir fjármunir til boða sem lagt var
upp með í fyrri viðræðum og það þrátt
fyrir að formlegar viðræður hefjist ekki
fyrr en í október. „Mikill og góður
grunnur hefur verið lagður fyrir þessar
sameiningarviðræður en þó er ljóst að
nokkra vinnu þarf að leggja í nýjar
viðræður,“ segir enn fremur.
Brunavarnir í þjónustusamning?
Bent er á vegna bókunar frá Blönduós-
bæ um undirbúning að uppsögn
vegna byggðasamlaga að gerðar
séu í bréfi frá samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu athuga -
semdir við samþykktir byggðasamlags
um Brunavarnir Austur-Húnvetninga.
„Vegna þess ágreinings sem uppi
hefur verið um rekstur byggðasamlags
um brunavarnir felur sveitarstjórn
sveitarstjóra að kanna hvort rekstur
brunavarna hjá sveitarfélaginu sé
betur kominn í þjónustusamningi
milli sveitarfélaganna í stað
byggðasamlags.“ /MÞÞ
Húnavatnshreppur og sameiningarmálin:
Skoðanakönnun um vilja íbúa gerð í alþingiskosningum
FRÉTTIR
Sjókvíaeldi er skaðlegt fyrir umhverfið, lífríkið og eldisdýrin.
Um 20% eldislaxa drepast í sjókvíunum og um helmingur þeirra
er vanskapaður, nær ekki fullum þroska eða er heyrnarlaus.
Myndin sýnir eldislax í sjókví í Berufirði.
Framkvæmdir eru hafnar við
viðbyggingu við Leikskólann
í Stykkishólmi. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin nýverið við
hátíðlega athöfn og því ekkert að
vanbúnaði að hefja byggingafram-
kvæmdir.
Núverandi leikskóli er með þrem-
ur deildum og er nú verið að bæta
þeirri fjórðu við til að mæta aukn-
um nemendafjölda við skólann. Laus
kennslustofa hefur verið nýtt til að
bera fjórðu deildina frá árinu 2017,
sem þá var orðinn fullsetinn, en í
frumhönnun leikskólans var gert ráð
fyrir að hægt væri að fjölga deildum
skólans um eina. Þá var einnig gert
ráð fyrir því í deiliskipulagi hvað
varðar nýtingarhlutfall og stærð
byggingarreits að því er fram kemur
í frétt á vefsíðu Stykkishólms.
Verklok í febrúar á næsta ári
Verkefnið felst í því að fullbyggja
nýju deildina að innan sem utan með
innréttingum, og öllum tilheyrandi
frágangi og skila tilbúnu til notkunar.
Verklegar framkvæmdir voru boðnar
út í heild sinni í maí 2021. Tvö tilboð
bárust í verkefnið og var því lægra
tekið, frá Þ.B.Borg upp á ríflega 57
milljónir króna. Stefnt er að verk-
lokum í lok febrúar 2022. /MÞÞ
Halldóra Hjörleifsdóttir,
oddviti Hrunamannahrepps,
vekur athygli á Facbook-síðu
íbúa sveitarfélagsins að þegar
leikskólinn Undraland á Flúðum
verði opnaður eftir sumarfrí verði
átta starfsmenn hættir.
Fjórir af þeim eru að færa sig
upp um skólastig og fara þrír af
þeim til starfa í Flúðaskóla. Hinir
eru að hverfa til annarra starfa og
að fara í nám. „Það er óneitanlega
slæmt þegar svo stór hluti
starfsmannahópsins hættir á sama
tíma og er það krefjandi verkefni
að ráða inn í þær stöður.
Við horfum þó bjartsýn á
framtíðina og vonum að þetta fari
á besta veg,“ segir Halldóra meðal
annars og bætir við: „Ljóst er eins og
staðan er núna að ekki verður hægt
að taka inn ný börn eftir sumarfrí
ef ekki bætast fleiri starfsmenn við.
Nú er því um að gera fyrir alla að
ýta við efnilegum starfsmönnum
og hvetja þá til að sækja um starf í
leikskólanum okkar.“ /MHH
Stykkishólmur:
Viðbygging við Leik-
skóla Stykkishólms
Flúðir:
Starfsmenn hætta
Viðbygging er að hefjast við leik-
skólann á Stykkishólmi.