Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 19

Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 19 Nýr vörulisti og vefverslun Hampiðjan hefur um árabil verið sölu- og þjónustuaðili fyrir lyftibúnað með víðtæka þjónustu við sveitarfélög, verktaka og aðra framkvæmdaaðila. Við höfum et þessa starfsemi og gert enn betur, aukið við vöruúrvalið, bætt aðgengið og gert pantanir og kaup auðveldari með vefverslun. Skoðaðu nýja vörulistann og vefverslunina á: hampidjan.is Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR gerðir dráttarvéla Hröð ásetning I Hljóðlátur I Viðhaldslítill I Sveigjanleiki í uppsetningu FULLWOOD M²ERLIN Mjaltaþjónn Öllum finnst okkur sumarið á Íslandi vera helst til of stutt fyrir okkar smekk. Gjarnan vildum við hafa sól og sumaryl lengi fram eftir haustinu en það er víst ekki eitthvað sem við getum stjórnað. En eitt sem við getum hins vegar gert er að gera sumarlegt í kringum okkur og ýmist valið blóm sem blómstra seint eða standa lengi fram eftir haustinu. Þrenningarfjólan er íslensk tegund sem er bæði harðgerð og svo er hún lengi að koma með blóm eftir að hún byrjar að blómstra í júní. Hægt er að smella þeim út í garð og þær lifa frekar lengi fram eftir haustinu með sínum fallega fjólu- bláa, gula og hvíta lit. Hún er fal- leg og mikil garðaprýði ásamt því að vera tákn Garðyrkjuskólans á Reykjum. Skrautkál getur verið virkilega skemmtilegt og litríkt í garðinum. Það er harðgert og þolir vel frost fram eftir ári og getur jafnvel staðið af sér veturinn á skjólgóðum stöðum sunnanlands eða í þau skipti sem við Íslendingar fáum mildan vetur. Stjúpur eru löngu orðnar að hálf- gerðri klassík í íslenskum görðum. Þær eru til í ótal litum og litasam- setningum og eru þær ekki bara fal- legar heldur virkilega duglegar að halda sér lengi fram eftir hausti með blómin sín stór og falleg. Stjúpurnar eru tvíærar og mynda fræbelgi að blómstrun lokinni og sá sér fyrir komandi sumar. Þá er ómögulegt að spá fyrir um hvaða litir koma upp og getur það verið virkilega spennandi að fylgjast með því um komandi sumar. Snædrífa er lágvaxin og fíngerð en virkilega harðgerð og falleg planta sem blómstrar hvítum, fölbleikum eða fjólubláum blómum. Hún stendur í blóma allt sumarið, þekur vel þar sem hún er gróðursett og vill helst fá góðan og bjartan stað. Þessi fallega planta stendur vel og er mikið prýði alveg inn í haustið en þolir þó ekki frost. Ljónsmunni er tignarlegt fjölært sumarblóm sem vex helst á skjól- góðum og sólríkum vaxtarstað en er einnig harðgert og duglegt. Það getur orðið allt að 90 sentímetrar á hæð en algengast í görðum er um 40 sentímetrar háar plöntur. Blómin eru í klasa upp eftir blómstönglinum, fremur óregluleg með blóm sem eru oftast einlit og er um virkilega fal- lega liti að velja. Guðrún Birna Brynjarsdóttir, garðyrkjunemi. Sumarblóm: Lengdu sumarið í garðinum Ljónsmunni. Silfurkambur. Skrautkál.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.