Bændablaðið - 22.07.2021, Page 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 23
Trimmað að tómötunum
̶ Nú ert þú ófeimin við að versla
matvæli sem sett eru á lægra verð (99
kr.) í verslunum á meðan almenningur
hefur gjarnan veigrað sér við því. Þó
er þetta að breytast. Viltu meina að
fólk sé meðvitaðra en áður?
„Það er áhugavert – fyrst þegar
Krónan og aðrar verslanir fóru að
bjóða upp á vörur með afslætti þá
þótti fólki ekki við hæfi að láta sjá
sig nálægt slíku – líkt og þeim þætti
það vera að taka niður fyrir sig með
því að versla ódýrari vörur. Nú í dag
hins vegar liggur við kapphlaupum
að 99 kr. tómataboxum og þess
háttar varningi. Þannig ég tel að
hugsunarhátturinn sé að breytast til
hins betra auk þess sem fólk tekur
eftir að þetta borgar sig fjárhagslega.
Þó er líka áhugavert að Íslendingar
hafa í áravís talið fullkomlega í lagi
að versla annars flokks ávexti og
grænmeti sem send eru til landsins
– hálfskemmdu og varla ætluðu
til manneldis. Annars þekki ég til
fólks sem stundar það sem er kallað
„dumpster diving“ (gámagrams á
ísl.) en sjálf kýs ég frekar að kaupa
vörurnar ef það hvetur verslanir til
að bjóða almenningi upp á slíkt –
en þannig minnkar einnig
kolefnissporið þeirra.“
Urðun óseldrar tísku
̶ Varðandi tískubylgjur almennt.
Fyrir nokkrum árum voru varla til
nytjaverslanir sem finnast nú víða,
vel sóttar af bæði áhrifavöldum
jafnt sem hinum almenna borgara
sem versla þar og selja grimmt,
og má jafnvel við slagsmálum í
Barnaloppunni þegar vel lætur!
Telur þú að fólk geri sér grein fyrir
hver ávinningurinn af endurvinnslu
fatnaðar er – eða er þetta einungis
móðins akkúrat núna?
„Sem unglingur verslaði ég fötin
nær eingöngu í nytjaverslunum,
meira til að skapa minn eigin stíl,
og það á sjálfsagt einnig við um hluta
þeirra sem versla í slíkum búðum.
Hvað varðar barnaföt finnst mér
eðlileg skynsemi að nýta þau sem
mest því börn vaxa mjög hratt upp
úr fötum. Verðlag nytjaverslana á
Íslandi er því miður enn þá í hærri
kantinum og vegna þess þurfa
neytendur oft að gera upp við sig
hvort þeir kaupi tíu stuttermaboli í
HM eða leyfi sér að kaupa flotta 80‘s
hettupeysu í búð sem selur notuð föt.
Há verðlagning hvetur því miður
til „fast fashion“ (skynditíska á ísl.)
sem er hugtak yfir fatnað, framleiddan
eins fljótt og hægt er, í þeim tilgangi
að neytendur geti sem fyrst klætt sig
í afurðir tískupallanna. Hugmyndin
á bakvið „fast fashion“ er einnig að
gera stórum hópi neytenda kleift að
klæðast nýjustu tísku á sem lægstu
verði – en þeir sem gjalda fyrir slíkt er
stór hópur jarðarbúa sem vinnur við
að framleiða fötin við ómannúðlegar
aðstæður – auk þess sem óseldan
fatnað má finna í miklum mæli á
urðunarstöðum úti um allan heim.
Þetta er ekki sú framtíðarsýn sem
ég tel æskilega og eitthvað sem fólk
mætti vera meðvitaðra um.“
Leggjum hönd á plóg
̶Hver er þín framtíðarsýn? Stutt og
laggott?
„Ég held að það sé mjög
mikilvægt að forsvarsmenn sérhvers
iðnaðar, og hver einstaklingur,
geri sér raunverulega grein fyrir
þeirri staðreynd að fyrirbyggjandi
breytinga er þörf. Allir ættu að geta
gert minni háttar breytingar sem
svo saman hafa áhrif.
Það er sorglegt hvað peningar
koma mikið við sögu í þessum
málefnum. Þeim mun meiri
peningum sem fólk eyðir í
verslunum sem eru að standa sig í
meðvituðum stjórnarháttum, hefur
opin augun þegar kemur að matar-
sóun eða passar upp á að tryggja
rétta framkvæmd framleiðsluferlis
yfir höfuð ... þarna er framtíðin,
þetta eru fyrirtækin sem fólk á að
hafa viðskipti við. Ekkert okkar fer
í gegnum lífið alveg á fullkominn
hátt, en öll ættum við þó að geta
lagt hönd á plóg. Og það er mín
framtíðarsýn!“ /SP
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
HAGKVÆM DEKK FYRIR
ALVÖRU KRÖFUR
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði,
ending og áreiðanleiki höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og
hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.
Jarðarber með náttúrulegan sjarma.Ferskt grænmeti í regnbogans litum enda beint úr gróðurhúsinu.
Girnilegar gulrætur .
Nýtíndar kryddjurtir.
Skrautblómin í gróðurhúsi Kittyar
eru ma. fingurbjargarblóm og liljur.
Kúrbítur af kringlóttri tegund.