Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 25
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg
Steinsagir – Kjarnaborvélar – Gólfsagir
Allt fyrir
atvinnumanninn
MHG Verslun ehf / Víkurhvarfi 8 / 203 Kópavogi / S: 544-4656 / mhg.is
Husqvarna K770
Sögunardýpt 12,5cmDM400 kjarnaborvél
Hámark: 350mm LF75 LAT
Jarðvegsþjappa
Þjöppuþyngd 97 kg
Plata 50x57cm
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
FS400 LV
Sögunardýpt 16,5cm
K7000 Ring 27cm
Sögunardýpt 27cm
Um hundrað manns mættu til
veisluhalda á Króksstöðum í
Eyjafjarðarsveit á dögunum.
Króksstaðabændur, hjónin Helga
Árnadóttir og Guðmundur Karl
Tryggvason, eigendur jarðarinnar
ásamt Stefáni Erlingssyni sem á
þar hús, buðu hestamönnum að
koma við og gera sér glaðan dag
yfir saltkjöti og gúllassúpu.
„Það var greinilegt að fólk þyrstir
í skemmtilegar samverustundir,
eftir langan vetur án mikils
samkomuhalds,“ segir Guðmundur.
Hann og Helga hafa hross sín í haga á
Króksstöðum, halda þar hænur og eru
með matjurtagarð, en búa á Akureyri.
Söltuðu of mikið eða
borðuðu of lítið?
Guðmundur og Stefán hafa lengi
verið samtíða í hestamennsku og
brallað eitt og annað saman í áranna
rás. Þeir til að mynda salta hrossakjöt
í tunnur á haustin og sáu þegar á leið
vorið að annaðhvort hafi verið ríflega
sett í tunnurnar eða matarlystin með
lakara móti, því mikið var til.
Þeim datt því í hug að blása til
veislu og bjóða Léttisfélögum að
koma yfir, en hægur vandi er úr
hesthúsahverfum Akureyrar yfir á
Króksstaði einhesta.
Slegið á létta strengi
„Það var nóg til fyrir alla, við vorum
undir það búnir að taka á móti svo
stórum hóp,“ segir Guðmundur sem
er matreiðslumaður og starfaði og
rak Bautann um árabil. Um 60 manns
höfðu boðað þátttöku og þá mátti
alltaf eiga von á slatta af fólki sem
ekki hefði hirt um að skrá sig.
Auk saltkjötsins var elduð gúllas-
súpa og fengu allir vel að borða, það
var slegið á létta strengi, mikið hlegið
og vitanlega tóku hestamenn lagið og
sungu við raust.
/MÞÞ
Króksstaðabændur:
Buðu hestamönnum
í saltkjötveislu
Dýrindis saltkjöt var á boðstólum auk gúllassúpu sem rann ljúft ofan í
mannskapinn.