Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 29
segir að það sé skemmtilegt að sýna
gestum aðstöðuna, þeir koma heim
á sveitabæinn þeirra og fá að sjá og
upplifa það sem verið er að sýsla
við daglega. Hænur eiga það til að
ganga yfir hlaðið, heimalningar
jarma og láta í sér heyra þegar þeir
verða svangir og stöku sinnum
baula kálfar utan við gluggann.
„Það er óhætt að segja að það er fjör
hjá okkur í Sillukoti og við vonumst
eftir að fá sem flesta gesti til okkar í
heimsókn í sumar.“ Sigríður segir að
nafnið Sillukot megi rekja til ömmu
hennar og alnöfnu sem gjarnan
var kölluð Silla á Gunnarsstöðum.
„Þegar ég stend í dyrunum á kotinu
okkar horfi ég yfir á gamla bæinn á
Gunnarsstöðum þar sem hún bjó en
óneitanlega verður mér oft hugsað
til hennar eftir að við hófum þessa
vegferð,“ segir hún.
Jurtir úr íslenskri náttúru
í sápunum
Sælusápur komu sér upp vefverslun
síðastliðið haust og segir Sigríður
að hún hafi skilað talsverðu, enda
var bróðurpart liðins ár lítið hægt
að fara um og taka þátt í mörkuðum
líkt og smáframleiðendur gera
gjarnan. Vefverslunin verður
starfrækt áfram, enda þægilegur
verslunarmáti sem margir hafa
tileinkað sér undanfarin misseri.
Nú þegar hefur fyrirtækið aflað
sér nokkurra viðskiptavina sem
hún segir að kalla megi fastakúnna.
„Kórónuveirufaraldurinn breytti
heilmiklu fyrir okkur. Margir af
okkar endursöluaðilum byggðu
á sölu til ferðamanna, þannig að
sala dróst verulega saman þegar
þeir hurfu af landinu. En á sama
tíma byggðist íslenskur markaður
upp hægt og rólega,“ segir Sigríður.
Hún nefnir að Sælusápur sem
innihalda íslenskar og handtíndar
jurtir hafi reynst þeim vel sem hafa
viðkvæmar hendur sem þorna við
mikla sprittnotkun og handþvott.
Hörkuvinna fram undan við
að byggja upp markað
„Best er að hafa markaðinn
blandaðan, bæði Íslendinga og
útlendinga,“ bætir hún við og
nefnir að við Íslendingar eigum
að sjálfsögðu að nota vörur sem
framleiddar eru á Íslandi sé þess
kostur en slíkt er umhverfisvænna
og styrkir búsetu í landinu. En
einnig er gaman að erlendir
ferðamenn geti notið þess að taka
mér sér vörur framleiddar á landinu
og á þann hátt tekið með sér brot af
Íslandi þegar haldið er heim. Það
eigi við um sápurnar sem innihaldi
íslenska kindatólg og jurtir úr
íslenskri náttúru.
„Fram undan hjá okkur er
hörkuvinna við að byggja upp
sterkan markað, aðstaðan er komin
svo nú brettum við upp ermar og
hefjumst handa. Við höfum fulla trú
á að framleiðsla okkar vaxi og dafni.
Við ætlum svo sannarlega að nýta
okkur það að styrkja búsetu okkar
í sveitinni með eigin framleiðslu,“
segir Sigríður.
Sigríður hellir heiðarsælu í sápumót til að láta hana harðna.
STÁLGRIND TIL SÖLU!
495 fm2 (18x27,5m)
Nánari upplýsingar veitir
Gísli Már 842-5462 | gislia@veritas.is
<
< <
<
6 m
< <
6 m
< <
6 m
< <
3
.2
m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
< 5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
18 m
27.5 m
<
<
4
.1
m
5.
5.
5.
5.
Sillukot sækir nafn sitt til ömmu Sigríðar og alnöfnu sem á sinni tíð bjó á
Gunnarsstöðum.
Sláttutraktorar, sláttuvélar,
slátturóbotar og margt fleira
Allt fyrir
garðsláttinn
MHG Verslun ehf / Víkurhvarfi 8 / 203 Kópavogi / S: 544-4656 / mhg.is
Fatnaður
og aukahlutir
Slátturóbot 315X
Slær allt að 1500m2
545RX
Hestöfl: 3hp
550 XP MKII
Hestöfl: 4,2hp
Traktor TC238T
Hestöfl: 18hp
LC353AWD
Hestöfl: 4,8hp
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300