Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 31
Rannsóknasvið Skógræktarinnar
hvetur fólk til að líta eftir skað-
völdum á trjám og runnum um
allt land og láta vita ef vart verð-
ur við áberandi eða óvenjulegar
skemmdir vegna smádýra, sjúk-
dóma, veðurs eða annars sem
skemmt getur trjágróður. Myndir
og greinargóðar lýsingar eru vel
þegnar.
Nú þegar sumarið er í algleym-
ingi og allt er lifnað við óskar
starfsfólk Mógilsár, rannsóknasviðs
Skóg ræktarinnar, eftir því að fólk
um allt land sendi upplýsingar um
ástand skóga þar sem farið er um,
sérstaklega ef vart verður við ein-
hvers konar óværu á trjánum. Þetta
samstarf við fólkið í landinu hefur
reynst afar vel undanfarin ár og er
öllum sem hafa veitt upplýsingar
um skaðvalda sendar bestu þakkir.
Asparglytta, birkikemba og
birkiþéla dreifa sér hratt
Sérstaklega er fólk beðið um að hafa
augun opin fyrir nýjum pestum á
viðkomandi svæðum. Skaðvaldar
eins og asparglytta, birkikemba og
birkiþéla virðast til dæmis vera að
dreifa sér hratt um landið um þessar
mundir. Einnig væri dýrmætt að fá
svar við spurningunni:„Hver/hverjir
finnst þér vera mest áberandi skað-
valdarnir á trjám í þínum landshluta/
svæði í ár?“
Hér fyrir neðan er hlekkur á
Excel-skjal sem gæti hjálpað til við
skráninguna. Þar má finna skað-
valdatöflu sem er ætluð til að fylla
í upplýsingar um þær skemmdir sem
fólk finnur. Einnig eru útskýringar
sem hjálpa til við að fylla út í töfluna
og listi yfir helstu skaðvalda raðað
eftir trjátegundum. Allar viðbótar-
upplýsingar og hugleiðingar eru líka
vel þegnar, umfram það sem beðið
er um á töfluforminu.
Myndir mjög gagnlegar
Myndir mega gjarnan fylgja með
enda geta þær verið mjög gagnlegar
til að staðfesta greiningar. Allar
myndir eru vistaðar í gagnagrunni
þar sem skráð er hver er höfundur
eða rétthafi þeirra. Gengið er út
frá því að myndir sem fólk sendir
megi nota á glærum fyrirlestra, þar
sem ljósmyndara er getið, en óskað
verður leyfis ef ætlunin er að nota
þær til opinberrar birtingar, svo sem í
Ársriti Skógræktarinnar, á vefnum, í
prentmiðlum o.þ.h. Vilji fólk ekki að
myndir séu notaðar með þeim hætti
er fólk hvatt til að geta þess um leið
og myndirnar eru sendar.
Hlekkur til að greina skordýr
Til aðstoðar við greiningar er hér líka
hlekkur á ritið Skordýr í trjám og
runnum, stutta samantekt sem Edda
S. Oddsdóttir skógvistfræðingur
tók saman fyrir nokkru og hefur
að geyma myndir af öllum helstu
skordýrum sem valda skaða á trjám
hérlendis. Einnig er vert að benda á
skaðvaldavef Skógræktarinnar þar
sem fjallað er um þá skaðvalda sem
herja á trjátegundir hérlendis.
Nánari upplýsingar gefur Brynja
Hrafnkelsdóttir á Mógilsá. Hún tekur
líka við upplýsingum um skaðvalda
á netfanginu brynja@skogur.is.
/VH
Nýtt í
BYKO
• Tilbúnar teikningar sem styttir
byggingartíma um 4-6 vikur
• Staðlaðar byggingar þýðir lægra verð
• Húsin uppfylla álagskröfur hvar sem er á landinu
• Galvaniserað stál tryggir endingu
bondi@byko.is
Í SAMSTARFI VIÐ:
Stöðluð stálgrindarhús
150m²
stöðluð stálgrindarskemma
350m²
stöðluð stálgrindarskemma
250m²
stöðluð stálgrindarskemma
Farmer wants a wife International
„Bauer sucht Frau International” (Farmer wants a wife international) is a successful
German TV-documentary by RTL Germany, with more than 4 million viewers following
our farmers as they embark on their quest for true love.
We are currently producing the fourth season and are looking for German-speaking
farmers (such as vintners, cattle farmers, coffee planters, or grain growers), who are
living outside of Germany and are interested in a TV adventure!
Are you a German-speaking farmer between 20-70 years old
living abroad and looking for a partner?
Apply now!
www.ufa.de/casting/bauer-sucht-frau-international
or email us at
bauersuchtfrauinternational@ufa.de
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Birkikemba í birkilaufblaði. Mynd / Edda S. Oddsdóttir.
Skógræktin:
Leita eftir upplýsingum
um skaðvalda á trjám
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGHRÆRUR