Bændablaðið - 22.07.2021, Side 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202132
„Það hefur verið hugmynd
um töluverðan tíma að koma
upp matarstíg hér um slóðir
og ánægjulegt að hann er nú
orðinn að veruleika. Það er mikil
framleiðsla á matvöru á svæðinu
og full ástæða til að benda bæði
ferðamönnum og heimafólki á
hvað sé í boði.
Matargerð og menning skiptir
yfirleitt miklu máli við val
ferðamanna á áfangastað og því er
kjörið að vekja athygli á svæðinu
með þessum hætti,“ segir Úlla
Árdal, markaðs- og þróunarstjóri
hjá Mývatnsstofu.
Stofan kynnti nýverið verkefnið
Taste Mývatn, matarstíg sem beinir
sjónum að framleiðslu og framboði
á matvöru í Þingeyjarsveit og
Skútustaðahreppi ásamt því að
hampa gömlum hefðum og standa
þannig vörð um matarmenningu
svæðisins.
Hjólin fóru að sögn Úllu að
snúast þegar styrkur fékkst eftir
áramót úr Uppbyggingarsjóði
Norðurlands eystra.
„Við vorum með skýra sýn,
keyrðum verkefnið strax í gang
og stefndum á að vera tilbúin með
heimasíðu fyrir sumarið. Það gekk
eftir, vefsíðan Tastemyvatn.is er
komin í loftið,“ segir Úlla. Þar er
sagt frá framleiðendum á svæðinu,
hvar hægt er að nálgast vörur þeirra
og hvaða veitingastaðir og versl-
anir bjóða upp á þær. Hún segir að
þó nokkrir hafi vottuð vinnslurými
heima á sínum býlum og að Taste
Mývatn gæti vonandi orðið til
þess að fleiri sjái tækifæri í því að
prufa sig áfram í að fullvinna sínar
afurðir. Matarskemman á Laugum í
Reykjadal býður einnig upp á góða
og vottaða aðstöðu sem er öllum
opin og margir nýta sér.
Leitum flest eftir
staðbundnum matvælum
Á vefsíðunni er einnig sagt frá
veitingastöðum sem bjóða upp á
hráefni úr nærumhverfi og greinir
frá hvaðan það kemur.
„Okkur langar að gera þessi
tengsl milli framleiðenda og
veitingastaða greinilegri og tilgreina
nákvæmlega hvaðan kjötið, fisk-
urinn og grænmetið kemur, í þeim
tilfellum sem það er mögulegt,“
segir Úlla.
„Við leitum flest eftir staðbundn-
um matvælum og það er mikilvægt
að hafa gagnsæi og gera fólki
ljóst hver uppruni hráefnanna er.
Veitingastaðir hér um slóðir gera
mikið af því að kaupa hráefni úr
nærumhverfi og við vonumst til þess
að matarstígurinn geti orðið fólki
hvatning til að gera enn betur og
styrkja þannig enn frekar við upp-
byggingu hringrásarhagkerfis.“
16 veitingastaðir með,
og 10 framleiðendur
Úlla segir að Mývatnsstofa finni
ekki fyrir öðru en jákvæðni og áhuga
gagnvart verkefninu. Nú þegar séu
16 veitingastaðir og 10 framleið-
endur með á heimasíðunni, „og við
sjáum fram á að þeim fjölgi hægt og
rólega eftir því sem fleiri prufa sig
áfram í eigin framleiðslu,“ segir hún.
Í tengslum við matarstíginn
er stefnt að því að halda nokkra
bændamarkaði á ári og verða þeir
hér og þar á svæðinu. Sá fyrsti var
í Dimmuborgum í lok maí og gekk
vonum framar að sögn Úllu.
Gamlar matarhefðir
í heiðrum hafðar
Bendir hún á að gamlar matarhefðir
svæðisins séu einnig í heiðri
LÍF&STARF
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Matarstígnum Taste Mývatn hleypt af stokkunum:
Matargerð og menning skiptir máli
við val ferðamanna á áfangastað
̶ Fjölbreytt framleiðsla á matvöru á svæðinu
Mýflugan hjá Daddi’s pizza
í Mývatnssveit er með
reyktum silungi,
furuhnetum
og rjóma-
osti.
Tíu framleiðendur eru með í verkefni
Taste Mývatn, og framleiða þeir ýmsa
matvöru, kjöt, fisk og grænmeti.
Úlla Árdal, markaðs- og þróunarstjóri hjá Mývatnsstofu, segir að þar á
bæ finni menn fyrir jákvæðni og áhuga gagnvart matarstígsverkefninu.
Reyktur silungur er nokkurs konar einkennismatvæli fyrir Mývatnssveit.