Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 32

Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202132 „Það hefur verið hugmynd um töluverðan tíma að koma upp matarstíg hér um slóðir og ánægjulegt að hann er nú orðinn að veruleika. Það er mikil framleiðsla á matvöru á svæðinu og full ástæða til að benda bæði ferðamönnum og heimafólki á hvað sé í boði. Matargerð og menning skiptir yfirleitt miklu máli við val ferðamanna á áfangastað og því er kjörið að vekja athygli á svæðinu með þessum hætti,“ segir Úlla Árdal, markaðs- og þróunarstjóri hjá Mývatnsstofu. Stofan kynnti nýverið verkefnið Taste Mývatn, matarstíg sem beinir sjónum að framleiðslu og framboði á matvöru í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi ásamt því að hampa gömlum hefðum og standa þannig vörð um matarmenningu svæðisins. Hjólin fóru að sögn Úllu að snúast þegar styrkur fékkst eftir áramót úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. „Við vorum með skýra sýn, keyrðum verkefnið strax í gang og stefndum á að vera tilbúin með heimasíðu fyrir sumarið. Það gekk eftir, vefsíðan Tastemyvatn.is er komin í loftið,“ segir Úlla. Þar er sagt frá framleiðendum á svæðinu, hvar hægt er að nálgast vörur þeirra og hvaða veitingastaðir og versl- anir bjóða upp á þær. Hún segir að þó nokkrir hafi vottuð vinnslurými heima á sínum býlum og að Taste Mývatn gæti vonandi orðið til þess að fleiri sjái tækifæri í því að prufa sig áfram í að fullvinna sínar afurðir. Matarskemman á Laugum í Reykjadal býður einnig upp á góða og vottaða aðstöðu sem er öllum opin og margir nýta sér. Leitum flest eftir staðbundnum matvælum Á vefsíðunni er einnig sagt frá veitingastöðum sem bjóða upp á hráefni úr nærumhverfi og greinir frá hvaðan það kemur. „Okkur langar að gera þessi tengsl milli framleiðenda og veitingastaða greinilegri og tilgreina nákvæmlega hvaðan kjötið, fisk- urinn og grænmetið kemur, í þeim tilfellum sem það er mögulegt,“ segir Úlla. „Við leitum flest eftir staðbundn- um matvælum og það er mikilvægt að hafa gagnsæi og gera fólki ljóst hver uppruni hráefnanna er. Veitingastaðir hér um slóðir gera mikið af því að kaupa hráefni úr nærumhverfi og við vonumst til þess að matarstígurinn geti orðið fólki hvatning til að gera enn betur og styrkja þannig enn frekar við upp- byggingu hringrásarhagkerfis.“ 16 veitingastaðir með, og 10 framleiðendur Úlla segir að Mývatnsstofa finni ekki fyrir öðru en jákvæðni og áhuga gagnvart verkefninu. Nú þegar séu 16 veitingastaðir og 10 framleið- endur með á heimasíðunni, „og við sjáum fram á að þeim fjölgi hægt og rólega eftir því sem fleiri prufa sig áfram í eigin framleiðslu,“ segir hún. Í tengslum við matarstíginn er stefnt að því að halda nokkra bændamarkaði á ári og verða þeir hér og þar á svæðinu. Sá fyrsti var í Dimmuborgum í lok maí og gekk vonum framar að sögn Úllu. Gamlar matarhefðir í heiðrum hafðar Bendir hún á að gamlar matarhefðir svæðisins séu einnig í heiðri LÍF&STARF Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Matarstígnum Taste Mývatn hleypt af stokkunum: Matargerð og menning skiptir máli við val ferðamanna á áfangastað ̶ Fjölbreytt framleiðsla á matvöru á svæðinu Mýflugan hjá Daddi’s pizza í Mývatnssveit er með reyktum silungi, furuhnetum og rjóma- osti. Tíu framleiðendur eru með í verkefni Taste Mývatn, og framleiða þeir ýmsa matvöru, kjöt, fisk og grænmeti. Úlla Árdal, markaðs- og þróunarstjóri hjá Mývatnsstofu, segir að þar á bæ finni menn fyrir jákvæðni og áhuga gagnvart matarstígsverkefninu. Reyktur silungur er nokkurs konar einkennismatvæli fyrir Mývatnssveit.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.