Bændablaðið - 22.07.2021, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 35
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
L or em ipsum
Stál og stansar
stalogstansar.is
2012
2020
Varahlutir
í kerrurLífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Bændablaðið
Auglýsingasíminn er 56-30-300
Þar sem við Íslendingar erum
dálítið óþolinmóð þjóð viljum við
stundum kaupa okkur plöntur
sem eru eiginlega tilbúnar, orðn-
ar stórar og stæðilegar og setja
strax svip á garðinn.
Garðplöntuframleiðendur vita
af þessum eiginleikum og rækta
því ýmsar trjátegundir upp í
stórar stærðir og með dularfullri
ræktunartækni tekst þeim að láta
plönturnar mynda þéttan róta
klump, svokallaðan hnaus, sem
inniheldur fínrótakerfi plöntunnar
og gerir henni lífið auðveldara
þegar hún kemst á áfangastað
í nýjum garði. Hnausplöntur
má gróðursetja hvenær sem er
allt sumarið, þær verða alltaf
himinlifandi yfir því að komast í
varanlega vist þar sem þær fá að
vaxa og dafna og hafa nóg pláss.
Góður áburður og vökvun
Við gróðursetningu hnausplantna
þarf að grafa holu sem er töluvert
víðari en þvermálið á hnausnum
segir til um. Í holuna er ágætt
að blanda lífrænu efni eins og
húsdýraáburði eða moltu, í þessum
áburði er framtíðarnesti fyrir
plöntuna og dugir henni nokkuð
lengi. Gott er að hræra áburðinum
vel saman við moldina sem fyrir er
og svo er ágætt að reyna að koma
áburðarblandaðri moldinni fyrir í
hliðum holunnar, ekki bara undir
plöntunni því þær rætur sem eru
virkastar í að ná í næringu vaxa
í efstu 10–20 cm jarðvegs. Svo
er plöntunni komið haganlega
fyrir í miðri holunni og moldinni
mokað að, mikilvægt að hún
standi ekki dýpra en hún gerði
áður, við erum jú að gróðursetja
hana, ekki jarðsetja. Þá er fyllt upp
í afganginn af holunni með góðri
mold, þjappað aðeins meðfram en
þó ekki allt of mikið því ræturnar
þurfa á lofti að halda líka. Eftir
gróðursetninguna er svo plantan
vökvuð vel með vatni og gott
að vökva hana reglulega fyrstu
dagana á meðan hún er að átta sig
á nýja vaxtarstaðnum. Einnig er
ágætt að dreifa eins og matskeið
af tilbúnum áburði í kringum
plöntuna eftir vökvunina, þetta er
nokkurs konar skyndibiti og getur
hjálpað henni af stað.
Ef plantan er hávaxin er ágætt
að binda hana upp, setja 23 staura
niður rétt fyrir utan rótarhnausinn
og binda stofn plöntunnar við
staurana, það tryggir að rótakerf
ið fær frið til að vaxa og festa
plöntuna í sessi. /gh
Gróðursetning:
Hnausplöntur
Hnausplöntur má gróðursetja hvenær sem er allt sumarið, þær verða alltaf himinlifandi yfir því að komast í
varanlega vist þar sem þær fá að vaxa og dafna og hafa nóg pláss.
ÞINN GARÐUR þín kolefnisbinding
Við gróðursetningu þarf að grafa
holu sem er töluvert víðari en þver-
málið á hnausnum segir til um.
Ef plantan er hávaxin er ágætt
að setja 2-3 staura niður rétt fyr-
ir utan rótarhnausinn og binda
stofn plöntunnar við staurana, það
tryggir að rótakerfið fær frið til að
vaxa og festa plöntuna í sessi.
Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður
haldinn þann 1. september næstkomandi.
Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum
til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000
lítrum árlega.
Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks
skal skila rafrænt á afurd.is.
Opnað hefur verið fyrir tilboð.
Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti
10. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar um markaðinn
má finna á www.afurd.is og www.anr.is.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega-og
nýsköpunarráðuneytið
Tilboðsmarkaður 1. september
2021 með greiðslumark í mjólk