Bændablaðið - 22.07.2021, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 41
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
LÍF&STARF
Í október nk. gefur Bændablaðið út tímarit í tengslum við stórsýninguna
Íslenskur landbúnaður 2021 sem haldin verður í Laugardalshöll
dagana 8.-10. október.
Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks
landbúnaðar og hreinleika matvælaframleiðslunnar. Sýningin
verður bæði á úti- og innisvæði þar sem bændum og öðrum
gestum gefst tækifæri til að virða fyrir sér gagnleg tæki og tól í
landbúnaði og rekstri. Allir félagsmenn í Bændasamtökunum fá
boðsmiða á sýninguna og vænta má mikils fjölda gesta.
Tímaritið verður leiðarvísir gesta á sýningunni og mun m.a.
innihalda gagnlegar upplýsingar um sýninguna, kynningar
á þeim fyrirtækjum sem koma að sýningunni auk fræðandi
og fjölbreytilegs efnis um málefni landbúnaðarins.
Lengd ritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanstímaritapappír í stærðinni A4.
Tímaritið verður prentað í 8.000 eintökum og verður því dreift á sýningunni sjálfri og víðar.
Búist er við að um 100 fyrirtæki taki þátt í landbúnaðarsýningunni og býðst þeim að koma
sér á framfæri í tímaritinu. Uppistaða ritsins verður kynningarefni frá fyrirtækjum sem
unnið er í samvinnu við blaðamenn en auk þess er boðið upp á hefðbundnar auglýsingar.
Æskilegt er að bóka auglýsingapláss og kynningar með góðum fyrirvara.
Nánari upplýsingar eru veittar í s. 563-0303
og gegnum netfangið gudrunhulda@bondi.is
Tímarit Bændablaðsins
í tengslum við stórsýningu landbúnaðarins
Íslenskur landbúnaður 2021
MATVÆLASÝNING . TÆKJASÝNING . ÖFLUG DAGSKRÁ
STÓR-
SÝNING
Í LAUGARDALSHÖLL
8. - 10. OKTÓBER
Reki ehf Sími: 562 2950
Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Netfang: tryggvi@reki.is Vefsíða: www.reki.is
BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL SÆTA Í HVERS KYNS
VINNUTÆKI FRÁ UNITEDSEATS.
Fulltrúar úr menningarmála-
nefnd Eyjafjarðarsveitar litu á
síðasta fundi fyrir sumarfrí inn á
Hælið, setur um sögu berklanna
og heilsuðu upp á frumkvöðul
þess, Maríu Pálsdóttur.
Var henni veittur sérstakur
hvatastyrkur upp á 100 þúsund
krónur vegna þeirrar frábæru
starfsemi sem hún hefur byggt
upp á Hælinu og mikilvægis þeirrar
sögu sem þar er sögð.
Rósa Margrét Húnadóttir,
formaður menningarmálanefndar,
færði Maríu þakkir fyrir óeigingjarnt
starf og hennar þátt í því að setja
sögu berklanna og mikilvægi
Kristneshælis í menningarlegri
sögu þjóðarinnar. Þetta kemur fram
á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar. /MÞÞ
Hælið fær Hvatastyrk
María Pálsdóttir, eigandi Hælisins, með fulltrúum úr menningarmálanefnd
Eyjafjarðarsveitar. Mynd / Vefsíða Eyjafjarðarsveitar
Kaupfélag Skagfirðinga, KS ætlar
að leggja til 200 milljónir króna á
næstu tveimur árum til samfélags-
legra verkefna í Skagafirði.
Forsvarsmenn Kaupfélagsins
afhentu sveitarstjóra Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og oddvita Akrahrepps
yfirlýsingu þess efnis nýverið.
Peningarnir eru hugsaðir sem
stuðningur við verkefni á vegum
sveitarfélaganna í Skagafirði með
það að markmiði að bæta búsetugæði
í héraði, meðal annars með því að
bæta göngustíga, malbika sérstök
svæði, fjölga útivistarsvæðum, bæta
félagsaðstöðu íbúa og margt annað
er varðar umhverfi og búsetugæði.
Með þessu meðal annars vill
Kaupfélag Skagfirðinga undirstrika
samfélagslega ábyrgð sína og skapa
sem bestar aðstæður og umhverfi
fyrir íbúa Skagafjarðar.
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitar-
stjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
sagði við athöfnina að hann væri afar
þakklátur fyrir það rausnarlega fram-
lag sem Kaupfélag Skagfirðinga
legði til uppbyggingar samfélags-
legra verkefna í Skagafirði. Slíkur
stuðningur væri ekki sjálfsagður
en sýndi vel afstöðu kaupfélagsins
til uppbyggingar samfélagsins og
virkrar þátttöku atvinnulífsins í sínu
nærumhverfi. /MMÞ
KS leggur til 200 milljónir króna
Forsvarsmenn Kaupfélags Skagfirðinga afhentu sveitastjóra Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og oddvita Akrahrepps yfirlýsingu nýverið um að það legði
fram 200 milljónir króna á næstu tveimur árum til samfélagslegra verkefna
í héraði. Mynd /Vefsíða Sveitarfélags Skagafjarðar