Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 45
Bændasamtök Íslands
leita að öflugum einstaklingi
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá
auk kynningarbréfs. Upplýsingar um starfið veitir Vigdís
Häsler framkvæmdastjóri.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf sérfræðings
á markaðssviði, berist eigi síðar en 8. ágúst nk.
á netfangið vigdis@bondi.is
Bændasamtök Íslands leita að öflugum einstaklingi
í hópinn til að sinna fjölbreyttum verkefnum
á nýstofnuðu sviði markaðsmála.
Starfið felur í sér:
▶ Hugmyndavinnu og textagerð
▶ Framkvæmd markaðsáætlana
▶ Umsjón og efnisgerð fyrir vef og samfélagsmiðla
▶ Vefumsjón og leitarvélabestun
▶ Framkvæmd markaðsgreininga og skýrslugerð
▶ Verkefnastjórn
▶ Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
▶ Menntun sem nýtist í starfi
▶ Reynsla af markaðsstarfi
▶ Þekking og reynsla af vefumsjón, stafrænni markaðssetningu
og samfélagsmiðlum
▶ Hæfileiki til að vinna í teymi og færni í samskiptum
▶ Hæfileiki til að vinna sjálfstætt
▶ Áhugi af landbúnaðarmálum
▶ Góð íslensku og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
▶ Þekking á Google Ads auglýsingakerfinu
▶ Þekking á Google Analytics
▶ Þekking á Facebook Business Manager
▶ Þekking á Photoshop
▶ Þekking á Instagram Business Tools
▶ Þekkingu á öðrum nýsamfélagsmiðlum
Bændahöllin Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Söfnin á Eyrarbakka
Húsið er heillandi og sögufrægt
kaupmannsheimili þar sem sögð
er meira en 200 ára gömul saga
verslunar og menningar.
Sjóminjasafnið hýsir hið merka
árskip Farsæl og undraveröld
fugla og eggja er í Eggjaskúr. Í
litla alþýðuhúsinu Kirkjubæ er
sýning um byltingartímana þegar
rafljós kom í hús og fólk eignaðist
útvarp og gúmmístígvél.
Opið alla daga í sumar frá kl. 11–18.
sími 483 1504 • info@byggdasafn.is
www.byggdasafn.is
Eyrargata
Túngata
Búðarstígur
HÚSIÐ
EGGJASKÚRINN
KIRKJUBÆR
SJÓMINJASAFNIÐ
Hvernig væri að leggja leið sína á
Eyrarbakka og heimsækja söfnin?
Ratleikur um allt
safnasvæðið er í boði
fyrir alla fjölskylduna.
Kristinn Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og byggingafræðingur.
Sími: 560-5502
Netfang: kristinn@allt.is
Sérsniðin þjónusta
að þínum þörfum
Fjölskyldugarðinum Raggagarði
á Súðavík var færð vegleg gjöf
þann 17. júlí síðastliðinn þegar
Finnur Jónsson og fjölskylda hans
afhjúpuðu og afhentu garðinum til
eignar og varðveislu styttuna Blómið
í glugga eftir Jón Gunnar Árnason.
Af þessu tilefni var haldin
fjölskyldudagur í garðinum og mættu
yfir 300 manns í garðinn þennan dag
í frábæru sólskinsveðri.
„Verkið er stórglæsilegt og eins
og önnur verk Jóns Gunnars skipar
dagsbirtan og sólin stórt hlutverk
í verkinu. Þetta verk hefur verið í
einkaeigu þar til nú sem það er til
sýnis í Raggagarði í Súðavík um
ókomin ár. Fólk er farið að átta sig
á að Raggagarður er orðinn stór
fjölskyldugarður sem er ekki bara
leiksvæði. Nú eru komin sjö listaverk
í garðinn og ýmislegt að skoða á
Boggutúni og aðstaða fyrir hópa til
að grilla og fara í leiki og hvaðeina.
Það er flott tjaldsvæði í aðeins 500
metra fjarlægð frá garðinum. Ég
sá í sumar að fólk er að uppgötva
þessa paradís í Súðavík og þennan
fallega og óvenjulega garð. Það
má segja að Boggutún sé að verða
listaverkagarður og tilvísun í sögu
Súðavíkur og sérkenni Vestfjarða eins
og Strandaskógurinn og holugrjótið
svo fátt eitt er nefnt,“ segir Vilborg
Arnarsdóttir stofnandi Raggagarðs.
/ehg-va
Súðavík:
Raggagarði færð vegleg gjöf
Finnur Jónsson afhendir Vilborgu Arnarsdóttur verkið Blómið í glugga eftir Jón Gunnar Árnason en barnabörnin
hans afhjúpuðu verkið. Yfir 300 manns mættu í Raggagarð á dögunum þegar styttan Blómið í glugga var fært
garðinum til varðveislu og eignar.
Bændablaðið
Smáauglýsingar
56-30-300