Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Qupperneq 7
um sig, heimilt að veita styrki samkvæmt til-
lögum endurhæfingarráðs.
H- gr.
Heimilt er að veita fé úr erfðafjársjóði til
þess að koma á fót dvalarheimilum fyrir ör-
yrkja, svo sem hér segir:
a. Lán, sem nemur allt að fjórðungi bygging-
arkostnaðar, sem vera skal með sömu af-
borgana- og vaxtakjörum og lán þau, sem
um ræðir í 7. gr. b.
b. Styrk, sem má nema allt að f jórðungi bygg-
ingarkostnaðar.
12. gr.
Rétt til þess að vera aðnjótandi endurhæf-
ingar samkvæmt lögum þessum eiga þeir, sem
lögheimili eiga á íslandi og annaðhvort:
a. geta ekki séð sér farborða vegna varan-
legrar skertrar starfshæfni, eða
b. er nauðsyn þjálfunar eða endurhæfingar til
þess að koma í veg fyrir, að þeir missi hæfi-
leika sína til þess að sjá sér farborða vegna
fyrirsjáanlega minnkandi starfsgetu af
völdum orkutaps.
13. gr.
Hver sá, sem óskar þjálfunar vegna skertrar
starfshæfni, skal, ef þess gerist þörf, ganga
undir hæfni- og starfspróf, þar sem rannsökuð
verður andleg og líkamleg hæfni hans. Við
próf þetta skal afla upplýsinga um fortíð hans,
heilsufar, menntun, uppeldi, hugðarefni, fé-
lagslegar aðstæður, efnahag og atvinnu og
annað, er máli skiptir fyrir þjálfun og starfs-
val.
Endurhæfingarráð skal sjá um, að rann-
sóknir þær og próf, sem um ræðir í 1. mgr.,
fari fram. í því skyni getur ráðið samið við
þar til hæfa stofnun um að annast þetta verk-
efni.
Að lokinni rannsókn og prófi samkvæmt
grein þessari skal í samráði við hlutaðeigandi
mann gera áætlun um, hvernig þjálfun hans
skuli haga.
14. gr.
Samkvæmt tillögu endurhæfingarráðs skulu
þeir, sem njóta endurhæfingar samkvæmt lög-
um þessum, eiga kost á aðstoð svo sem hér
segir:
a. Styrk, ef fjárhagsástæður þeirra eru með
þeim hætti, að þeir geti ekki aflað sér þess,
sem þeir og skyldulið þeirra mega ekki án
vera til lífsframfærslu, á meðan endurhæf-
ing fer fram.
b. Styrk eða láni til verkfæra- og tækjakaupa
og annarri fyrirgreiðslu í sambandi við
heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi að
endurhæfingu lokinni.
Útgjöld samkvæmt a-lið þessarar greinar
skulu greidd af hlutaðeigandi sveitarfélögum.
Lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins veit-
ir aðstoð samkvæmt b-lið greinarinnar.
15. gr.
Nú fellur niður endurhæfingarstarfsemi, sem
notið hefur styrks samkvæmt 7. og 9. gr., og
er þá endurkræfur styrkur sá að fullu, sem
veittur hefur verið, ásamt venjulegum útláns-
vöxtum frá þeim tíma, að starfsemin féll nið-
ur. Sama gildir um styrk til dvalarheimilis
öryrkja, sbr. 11. gr., ef starfsemi þess fellur
niður.
16. gr.
Þeir, sem notið hafa endurhæfingar sam-
kvæmt lögum þessum, skulu fá aðstoð til að
finna starf við sitt hæfi. Endurhæfingarráð
skal í samvinnu við vinnumiðlunina í landinu
láta gera könnun á atvinnulífinu með tilliti
til hentugra starfa fyrir fólk með skerta vinnu-
getu, gera spjaldskrá yfir fyrirtæki, er slík-
um störfum ráða, og vinna að því, að þeir fái
aðgang að þessum störfum.
Þeir, sem notið hafa endurhæfingar, skulu
að öðru jöfnu, eiga forgangsrétt til atvinnu hjá
ríki og bæjarfélögum.
17. gr.
Um styrk til einstaklinga vegna læknisfræði-
legrar endurhæfingar, vegna gervilima- og
tækjakaupa fer eftir ákvæðum laga um al-
mannatryggingar.
18. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1970.
Samþykkt á Alþingi lJf. apríl 1970.
SJÁLFSBJÖRG 7