Morgunblaðið - 07.02.2022, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Með kaupum á 100 lítra+ fiskabúrum
fylgir afsláttarkort sem veitir 20% afslátt
af öllu í fiskadeild í 30 daga
Sandra Hlíf
Ocares sækist
eftir 3. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík vegna
borgarstjórnar-
kosninga.
Hún er með
meistarapróf í
lögum og hefur
verið verkefnastjóri Byggingavett-
vangsins sem vann m.a. að breyt-
ingum á mannvirkjalögum.
Sandra er í barnaverndarnefnd
Reykjavíkur og kærunefnd útlend-
ingamála. Hefur jafnframt gegnt
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Þjónusta við fólkið í borginni hef-
ur mætt afgangi. Því vil ég breyta,
segir í kynningu frá Söndru.
Sandra Hlíf vill 3.
sætið í Reykjavík
Sandra Hlíf Ocares
Hjördís Ýr John-
son gefur kost á
sér í 2. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi.
Hjördís verið
bæjarfulltrúi frá
2014. Hennar
áhersla er á
traustan rekstur
bæjarins um leið og haldið er uppi
öflugri þjónustu.
Þá vill Hjördís í ljósi góðrar fjár-
hagsstöðu Kópavogsbæjar hraða
uppbyggingu skóla og vega.
Hjördís er framleiðslustjóri
StudioM, framleiðsludeildar Árvak-
urs. Hún hefur BA-gráðu í fjöl-
miðlun og sjónvarpsþáttagerð og
stundaði meistaranám í uppeldis-
og menntunarfræðum við HÍ.
Hjördís Ýr vill 2.
sætið í Kópavogi
Hjördís Ýr Johnson
2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fyrsta æfingin í Miðgarði, nýju
fjölnota íþróttahúsi í Garðabæ, var
tekin á laugardagsmorgun. Ungir
knattspyrnuiðkendur úr yngstu
flokkum Stjörnunnar og Ung-
mennafélags Álftaness æfðu um
morguninn. Þá reyndu gönguhópar
úr félögum eldri borgara göngu- og
skokkbraut sem liggur um svalirnar
á húsinu.
Miðgarður og mannfólkið
Framkvæmdir við húsið í Vetrar-
mýri hófust í byrjun árs 2019 og
voru í höndum ÍAV sem Garðabær
samdi við eftir niðurstöðu í alútboði.
ASK arkitektar og Verkís verk-
fræðistofa hönnuðu húsið, en heild-
arkostaður við byggingu þess er um
fjórir milljarðar kr. Þetta er ein
stærsta framkvæmd og fjárfesting
sem Garðabær hefur nokkru sinni
ráðist í.
Nafn hússins, Miðgarður, var til-
kynnt formlega á dögunum en það
er fengið úr niðurstöðum nafna-
samkeppni. Samkvæmt goðafræð-
inni er Miðgarður miðja heimsins
og sá staður þar sem mannfólkið
býr. Slíkt rímar vel við hugmyndir
um fjölnota íþróttahúsið þar sem
vonast er eftir lífi og fjöri á degi
hverjum ásamt því að þar verður
rými fyrir fjölbreytt viðfangsefni,
segir í tilkynningu frá Garðaæ.
Knattspyrnuvöllur
í fullri stærð
Miðgarður er með rými fyrir
knattspyrnuvöll í fullri stærð. Þá er
í húsinu klifurveggur auk teygju- og
upphitunaraðstöðu og fyrsta flokks
þrekæfingaaðstöðu, ásamt stoðrým-
um. Stærð íþróttasalar er um
80x120 m og um 800 áhorfendur
geta verið á svölum íþróttasalarins.
Í hliðarrýmum sunnan megin í
byggingunni eru tvær óráðstafaðar
hæðir um 1.500 fermetrar að stærð
hvor um sig þar sem er gert ráð
fyrir heilsutengdri starfsemi. Sam-
tals er flatarmál hússins um 18.200
fermetrar.
Æfing Fótboltakrakkar úr Stjörnunni og af Álftanesi á fyrstu æfingunni í
Miðgarði sl. laugardag. Fjölbreytt starfsemi fær inni í byggingunni nýju.
Æfingar hafnar í
nýjum Miðgarði
- Nýtt glæsilegt íþróttahús í Garðabæ
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vetrarmýri Samtals er flatarmál hússins um 18.200 fermetrar. Auk frá-
bærrar íþróttaaðstöðu verður þarna heilsutengd starfsemi af ýmsu tagi.
Alls greindust 1.415 kórónuveirusmit innanlands á
laugardag og 39 á landamærunum samkvæmt upp-
lýsingum frá almannavörnum.
Enn fleiri greindust á föstudaginn, 1.856 smit alls
innanlands en þar af voru 25 smit á landamærunum.
Það er metfjöldi smita á einum degi, 600 fleiri en
daginn þar á undan.
Kona á sjötugsaldri lést á gjörgæsludeild Land-
spítalans á föstudag vegna Covid-19-veikinda.
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Landspít-
alans í gær liggja nú 26 sjúklingar þar inni með Co-
vid-19. Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í önd-
unarvél.
Nú eru 9.373 sjúklingar undir eftirliti á Covid-
göngudeild spítalans, þar af 3.295 börn. Covid-
sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 216.
Metfjöldi smita á föstudag
Morgunblaðið/Eggert
Skimun Hátt í tvö þúsund greindust með veiruna á föstudag.