Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 20
Doktorsnemasjóður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýsir eftir umsóknum. Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á samspili landnýtingar og loftslags. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í doktorsnámi á sviði náttúruvísinda. Sjóðurinn veitir styrki samkvæmt almennum áherslum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni rannsakenda og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Rannís hefur umsjón með sjóðnum. Styrkir sjóðsins eru ætlaðir doktorsnemum og eru veittir í allt að 36 mánuði. Umsækjendur verða að hafa verið samþykktir inn í doktorsnám við íslenskan háskóla. Doktorsgráðan skal vera veitt frá íslenskum háskóla en möguleiki er á sameiginlegri gráðu með erlendum háskóla. Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við gögnum eftir að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar og reglur um sjóðinn er að finna á rannis.is Doktorsnemasjóður Styrkir til rannsókna á samspili landnýtingar og loftlags Umsóknarfrestur er til 15. júní 2022 kl. 15:00 kristinnpall@frettabladid.is AUSTURRÍKI Alls voru 205 einstakl- ingar víðs vegar um Evrópu hand- teknir í vikunni fyrir aðild að skipu- lagðri smyglstarfsemi á fólki, sem velti um 152 milljónum evra, yfir 21 milljarði króna, á rúmu ári. Innan- ríkisráðherra Austurríkis, Gerhard Karner, greindi frá þessu og að um helmingur þeirra sem væru í haldi hefði verið handtekinn í Austurríki. Í þýskum fjölmiðlum er talað um að umræddir smyglarar hafi á rúmu ári smyglað rúmlega 36 þúsund manns frá ársbyrjun 2021. Flestir einstaklingarnir komu frá Sýrlandi og greiddu á bilinu sem nemur 420- 630 þúsund krónum fyrir aðstoð við að komast frá Ungverjalandi til Austurríkis þar sem þeir fengu síðar aðstoð við að komast ýmist til Belgíu, Frakklands, Hollands eða Þýskalands. Höfuðpaurinn er tæplega þrí- tugur Rúmeni og voru einstaklingar handteknir í Tékklandi, Ungverja- landi, Slóvakíu og Rúmeníu. Þá gerði lögreglan upptækar 80 bifreiðar sem voru sérhannaðar til að smygla fólki. „Þetta er áfangasigur í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi. Þessum glæpagengjum er alveg sama um mannslíf,“ sagði Karner en tveir einstaklingar fundust látnir í bíl á vegum glæpahringsins við eftirlit á landamærum Ungverja- lands í fyrra. Í þeirri ferð voru 29 einstaklingar um borð í bílnum. ■ Rúmlega tvö hundruð handtökur úr alþjóðlegum smyglhring í Evrópu Af 205 handtökum voru 96 í Austurríki. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fyrirhuguð umsókn Finna og Svía í NATO gæti haft mikil áhrif á þjóðaröryggismál í Evrópu. Utanríkisráðherra segir Ísland þó ekki vera ber- skjaldaðra en önnur lönd. tsh@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Búist er við því að bæði Finnar og Svíar sæki um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO) á næstunni. Bæði lönd eru mjög uggandi um þjóðaröryggi sitt í kjöl- far innrásar Rússa í Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir utanríkisráðherra hefur sagt að Ísland muni ljá Finnum og Svíum algjöran stuðning ef þeir sækja um aðild í NATO og telur að bandalagið muni breytast til batnaðar með inn- göngu þeirra. „Þarna er um að ræða okkar nánustu nágranna- og vinaþjóðir sem við eigum í mjög miklu sam- starfi, samskiptum og tengslum við á öllum sviðum. Að fá þau tvö ríki inn í Atlantshafsbandalagið, það myndi ég segja að styrki okkur,“ segir Þórdís Kolbrún. Fyrirhuguð umsókn Finna og Svía um aðild að NATO gæti haft víðtæk áhrif á þjóðaröryggismál í Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Fréttablaðið greindi frá því í gær að netárásir á neyðarlínuna jukust til muna í kjöl- far innrásar Rússa í Úkraínu. Þórdís Kolbrún segir Ísland þó ekki vera berskjaldaðra en önnur ríki. „Auðvitað eru ógnirnar mis- jafnar. Erum við að tala um beina hernaðarógn, erum við að tala um þessar fjölþátta ógnir? Netárásir eru vaxandi og ríki eru langflest, ef ekki öll, að byggja upp sína þekkingu og getu og við erum svo sannarlega að því líka.“ Rússar eru mjög andvígir NATO- umleitunum Finna og Svía og líta á mögulega inngöngu í sambandið sem beina ógn við þjóðaröryggi sitt. Dmitry Peskov, fjölmiðlafull- trúi Kremlar, sagði Finna taka þátt í fjandsamlegum aðgerðum gegn Rússlandi sem myndu kalla á sam- ræmd viðbrögð. „Því meira sem við ætlum að gera úr möguleikanum á því að Rússar grípi til ráðstafana, því betur ættum við að skilja hvers vegna Finnar og Svíar vilja ganga í bandalagið,“ segir Þórdís Kolbrún. Ein af mögulegum refsiaðgerðum Rússa er sú að loka fyrir sölu raf- magns og náttúrulegs gass. Greint var frá því í gær að rússnesk fyrir- tæki séu að íhuga að stöðva útflutn- ing orku til Finnlands. Rafmagn frá Rússlandi telur um 10 prósent af orkunotkun Finna og gas um 5 pró- sent. Finnsku orkufyrirtækin Fin- grid og Gasgrid segja þó enga hættu á að Finnar líði orkuskort ef verður af hótunum Rússa. Gangi Finnar og Svíar í NATO gæti það verið einn stærsti viðsnúningur í öryggis- og varnarmálum Evrópu í áratugi, en bæði Finnland og Sví- þjóð hafa verið hernaðarlega hlut- laus síðan á tímum kalda stríðsins. Spurð um hvort þessar vendingar gefi til kynna að úti sé um frið í Evr- ópu segir Þórdís Kolbrún: „Ég myndi ekki segja það. En það sem skrifað var um í sögubókunum að væri lokið, því var augljóslega ekki lokið. Það er stríð í Evrópu sem er í fullum gangi og ekki liggur fyrir með hvaða hætti, hvenær eða hvernig því muni ljúka, hvort það muni breiðast út eða ekki.“ Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO, sagði á fimmtudag að umsókn Finna og Svía yrði afgreidd hratt og örugglega en talið er að Tyrkir gætu mögulega orðið þránd- ur í götu miðað við ummæli Recep Erdogan Tyrklandsforseta í gær. Hann kvaðst ekki líta umsókn Svía og Finna jákvæðum augum og sagði: „Norðurlöndin eru líkt og híbýli hryðjuverkahópa sem hafast jafn- vel við á löggjafarþingum þeirra“. Samkvæmt reglum NATO þurfa öll aðildarríki að samþykkja nýjar umsóknir, en Tyrkland hefur verið meðlimur bandalagsins síðan 1952. Ísland er eitt af stofnríkjum NATO og hefur átt sæti við borðið síðan 1949. Þórdís Kolbrún segir Ísland gegna mikilvægu hlutverki í bandalaginu þrátt fyrir smæð sína. „Það er allt breytt og mér finnst skipta máli að við tölum hátt og skýrt og segjum það sem við mein- um og meinum það sem við segjum. Séum óhrædd við að taka afstöðu sem fullvalda sjálfstætt ríki með sterka utanríkisstefnu og skýra sýn.“ ■ Aðild Finna og Svía að NATO styrki Ísland Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segir Ísland muni standa með Finnum og Svíum ef þeir sækja um í NATO. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 125 mílur 200 km © GRAPHIC NEWSHeimildir: Reuters, DW, NATO Myndir: Getty Images Finnland og Svíþjóð ganga í Atlantshafsbandalagið ATLANTSHAF R Ú S S L A N D Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Finnlands. Magdalena Andersson, til vinstri, og Sanna Marin. Eystr asalt Helsinki Moskva Stokkhólmur DANMÖRK NED BEL FRA ITA UK PÓLLAND GER ROM HUN CZE SVK EISTLAND LETTLAND LITÁEN HVÍTA-RÚSSLAND ÚKRAÍNA Donbass Krímskagi NOREGUR SVÍÞJÓÐ FINNLAND Gotland: Gæti gert Svíþjóð berskjaldað ef átök brjótast út. St. Pétursborg: Næststærsta borg Rússlands er í einungis 170 km ¥arlægð frá ¦nnsku landamærunum. Kólaskagi: Höfuðstöðvar §ota Rússa í norðri er einn helsti öryggisventill þjóðaröryggis landsins. Suwalki-skarð: Gæti orðið §öskuháls ef Rússar reyna að einangra Eystrasaltsríkin. Kalíníngrad: Rússar segjast munu geyma kjarnorkuvopn og ofurhljóðfráar eld§augar á landsvæði sínu við Eystrasalt ef Finnar og Svíar ganga í NATO. Kadetrinne: Hernaðarlega mikilvæg siglingaleið inn í Eystrasalt. Leiðin í átt að NATO-aðild 2022 Svíþjóð, 9.-12. maí: Ríkisstjórn Svíþjóðardemókrata ræðir hvort snúa eigi við áratugalangri andstöðu við NATO-aðild. Finnland, 12. maí: Sauli Niinistö forseti og Sanna Marin forsætisráðherra gefa út sameiginlega y¦rlýsingu um nauðsyn þess að sækja um aðild að NATO. Svíþjóð, 13. maí: Sænska þingið kynnir niðurstöður öryggisgreiningar sem benda til þess að NATO-aðild myndi bæta þjóðaröryggi Svíþjóðar. 29.-30. júní: Finnland og Svíþjóð gætu lagt inn formlega umsókn um aðild á leiðtogafundi NATO í Madrid. Aðildarríki NATO 18 Fréttir 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.