Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 50
Leiðtogi þekkingarmiðlunar og fræðslu í Elliðaárstöð
Viltu taka þátt í
uppbyggingu?
Elliðaárstöð er lifandi áfangastaður í hjarta borgarinnar á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem gestir koma saman til að fræðast,
upplifa, skapa og njóta náttúrunnar.
Við leitum að drífandi leiðtoga þekkingarmiðlunar og fræðslu um
orku, vísindi og umhverfismál til skólabarna og almennings. Hlutverk
hans verður jafnframt að taka þátt í þróun Elliðaárstöðvar sem
þekkingarmiðstöðvar fyrir orku, vísindi og umhverfismál.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022.
Sótt er um starfið á or.is/storf-i-bodi/
Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Birna Bragadóttir: birna.bragadottir@or.is
OR er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu.
Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi,
jafnrétti, vinnuumhverfi og möguleika á að samræma vinnu og
einkalíf.
Viltu ganga til liðs við stærsta lífeyrissjóð
landsins og sinna fjölbreyttum verkefnum í
líflegu umhverfi? LSR leitar að metnaðarfullum
einstaklingi með ríka þjónustulund og sam
skipta hæfni í stöðu sérfræð ings á lífeyrissviði.
Verkefnin felast bæði í beinni þjónustu við
sjóð félaga og ýmiss konar úrvinnslu sem
tengist um sóknum lífeyrisþega og breytingum
lífeyrisréttinda.
Helstu verkefni
• Ráðgjöf varðandi lífeyrisréttindi og séreignar
sparnað hjá LSR.
• Móttaka sjóðfélaga og lífeyrisþega, símsvörun
og afgreiðsla fyrirspurna.
• Gagnaöflun, móttaka og skráning gagna.
• Meðhöndlun og úrvinnsla umsókna um lífeyri
og breytinga á lífeyrisréttindum.
• Þátttaka í umbótaverkefnum lífeyrissviðs.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
• Starfsreynsla í lífeyrismálum og/eða þjónustu
er kostur.
• Mjög góð tölvukunnátta skilyrði.
• Mjög gott vald á íslensku og gott vald á ensku,
jafnt í töluðu sem rituðu máli.
• Góð greiningargeta, talnagleggni og sjálfstæð
vinnubrögð.
Upplýsingar veitir Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
hjá Attentus, ingunn@attentus.is.
Umsóknir óskast fylltar út á Alfreð.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2022.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Hjá LSR njótum við þess að starfa í jákvæðu
umhverfi með metnað og bjartsýni að leiðarljósi.
Sjóðurinn hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í
upplýsingatæki og vinnur nú að umfangsmiklum
umbótaverkefnum sem miða að því að bæta
þjónustu við sjóðfélaga. LSR starfar í samræmi
við vottað jafnlaunakerfi og jafnréttisáætlun.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
OG SAMSKIPTAHÆFNI
SÉRFRÆÐINGUR Á LÍFEYRISSVIÐI
ÞJÓNUSTULUND