Fréttablaðið - 14.05.2022, Qupperneq 54
Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir
eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
Staða grunnskólakennara (100%)
Staða textílkennara (50-60%)
Staða tónlistarkennara (100%)
Við leitum að kennurum sem:
- Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Hafa lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
- Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni
- Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði
- Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
- Vilja taka þátt í teymisvinnu
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt
um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur
starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta
kennsluhætti innan skólans.
Rík tónlistarhefð er við skólann og allt tónlistarnám fer fram
á skólatíma. Af 70 nemendum grunnskóladeildar eru rúmlega
50 nemendur í hljóðfæra og söngnámi við tónlistardeildina.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna
á verkefnum skólans.
Þingeyjarskóli styðst við uppeldisstefnuna Jákvæður agi.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum,
stundvísi og hreint sakavottorð.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2022
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2022
Umsóknir skulu sendast á netfangið
johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri
í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið
johannrunar@thingeyjarskoli.is
VÖRUSTJÓRI
Hefur þú brennandi áhuga á heilbrigði og vilt taka þátt í því að þróa
vöruval, kaupa inn og selja vörur sem geta bætt lífsgæði og aukið vellíðan?
Við leitum að kraftmiklum liðsfélaga í starf vörustjóra fyrir Lyfjusamstæðuna, þ.e. Lyfju,
Heilsuhúsið og heildsöluna Heilsu. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf hjá fyrirtæki
sem vinnur að því markmiði að lengja líf og auka lífsgæði Íslendinga.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Amk 3 ára reynsla af sambærilegu starfi
• Áhugi á heilbrigði og vellíðan
• Góð færni í excel, greiningarhæfni
og að eiga auðvelt með að setja fram
tölulegar upplýsingar
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
og þjónustulund
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Reynsla af Navision mikill kostur
HELSTU VERKEFNI
• Dagleg umsjón og eftirlit með
skilgreindum vöruflokkum
• Stýring og eftirlit með framlegð,
verðlagningu og birgðum
• Innkaup og samskipti við
innlenda og erlenda birgja
• Þróun vöruvals í smásölu
og heildsölu
• Þátttaka í áætlunargerð
og eftirlit með áætlun
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2022
Sótt er um starfið á heimasíðu Lyfju, lyfja.is/storf
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni til að gegna starfinu.
Nánari upplýsingar veitir Karen Rúnarsdóttir, sviðsstjóri vörusviðs, karenrunars@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bjarni Þór Gíslason, forstöðumaður gagnaþjónustu (bjarni.thor.gislason@sedlabanki.is) og
Erla Traustadóttir, sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 23. maí nk.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða gagnasérfræðing (e. Data Analyst / Data Scientist) í
verkefni tengd söfnun, greiningu og birtingu gagna.
Um er að ræða starf í deild gagnaþjónustu á sviði upplýsingatækni og gagnasöfnunar, en helstu verkefni sviðsins eru
þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfum, hugbúnaði og gagnaumhverfi Seðlabankans.
Gagnaþjónusta sér um söfnun og úrvinnslu gagna sem notuð eru við mat á mikilvægum þáttum í íslensku efna-
hagslífi, við fjármálaeftirlit og birtingu í hagtölum Seðlabankans. Við leitum nú að metnaðarfullum einstaklingi
með reynslu af greiningu gagna og áhuga á tölfræði og fjármálamörkuðum.
Gagnasérfræðingur
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjón með gagnaskilum og söfnun gagna frá
fjármálafyrirtækjum og öðrum skilaaðilum
• Greining gagna m.t.t. gæða, breytinga frá
einum tíma til annars, samanburðar við aðrar
efnahagsstærðir o.fl.
• Endurbætur og þróun á gagnaskilaferli, birtingu
og miðlun gagna
• Skilgreining á gagnamódelum og þörfum vegna
gagnasafnana og greininga
• Samstarf við þróunarteymi í mótun gagnalausna
bankans
• Þjónusta við starfsfólk varðandi gögn, greiningar
og líkön
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fjármálaverk-
fræði, gagnavísinda, tölvunarfræði, hagfræði eða
viðskiptafræði
• Reynsla af greiningu fjármálagagna eða reikningsskilum
• Þekking á tölulegri greiningu með R eða Python er
kostur
• Þekking á birtingu og framsetningu gagna með Power
BI, Tableau, Qlik eða sambærilegri lausn er kostur
• Þekking á gagnagrunnum og gagnalíkönum er kostur
• Öguð og nákvæm vinnubrögð, þjónustulund, sjálfstæði
og metnaður í starfi
• Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna
sjálfstætt og með öðrum
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af
öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda
í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því
að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins nr. 70/1996.
2022 - 2025