Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 67
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Skatturinn leitar að jákvæðum, drífandi og talnaglöggum sérfræðingi til starfa á Innheimtu- og
skráasvið Skattsins í verkefni tengd afgreiðslu og þjónustu til viðskiptavina um innheimtumál.
Innheimtu- og skráasvið annast innheimtu opinberra gjalda í stjórnsýsluumdæmi sýslumannsins
á höfuðborgarsvæðinu. Þar fer einnig fram vanskilainnheimta og erlend innheimta samkvæmt
gagnkvæmum innheimtusamningum. Þar er einnig sinnt eftirlits- og leiðbeiningarhlutverki
með innheimtumönnum ríkissjóðs á landsvísu auk þess að sjá um rekstur fyrirtækja- og
ársreikningaskráa á landsvísu. Sviðið skiptist í þrjár deildir, þ.e. afgreiðslu, fyrirtækja- og
ársreikningaskrá og lögfræðiinnheimtu. Á sviðinu er einnig starfrækt stoðþjónustueining sem
starfar þvert á sviðið.
Starfsstöð Innheimtu- og skráasviðs er á Tryggvagötu 19, Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Leiðbeiningar og upplýsingagjöf til gjaldenda um innheimtumál.
• Samskipti við stjórnvöld og stofnanir varðandi innheimtumál.
• Yfirumsjón með daglegu uppgjöri sjóða ásamt umsjón með bakvinnsluverkefnum.
• Bókun greiðslna og umsjón með bankareikningum.
• Framkvæmd erlendra millifærslna.
• Uppgjör á sjóðum embættisins til bókhalds.
• Þróun verkferla verkefna afgreiðslu og þjónustu í átt til aukinnar rafvæðingar.
• Samstarf við aðra starfsmenn og stofnanir varðandi þróun verkferla
í afgreiðslu og þjónustu.
• Aðstoð við þróun á Tekjubókhaldskerfi ríkisins.
• Þjálfun nýrra starfsmanna.
• Afleysing deildarstjóra í fjarveru hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, lágmarksmenntun er bakkalár gráða.
• Þekking á Tekjubókhaldskerfi ríkisins, upplýsingakerfi Skattsins, ásamt öðrum þeim
upplýsingakerfum er nýtast við starfið er kostur.
• Fagþekking á innheimtuferli Skattsins og framkvæmd þess er kostur.
• Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði, önnur
tungumálakunnátta er kostur.
• Talnafærni og greiningarhæfni.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörtur Sigurðsson, deildarstjóri, í síma 442-1000 eða
í tölvupósti á netfangið hjortur.sigurdsson@skatturinn.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu
sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi
stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100%.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun
hefur verið tekin um ráðningar.
Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Sérfræðingur í afgreiðslu
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.