Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 87

Fréttablaðið - 14.05.2022, Page 87
upp þeim í vil þann 16. júní 2021. Ólafur Hilmar segir grundvöll­ inn fyrir málaferlunum hafa verið vegna reglugerðarbreytingar sem kom út árið 2018 um húsnæðisúr­ ræði fyrir fatlað fólk. Þar segir að ef ekki tekst að útvega húsnæði innan þriggja mánaða frá því að umsókn um húsnæðisúrræði hafi verið samþykkt skuli tilkynna umsækjanda um ástæður tafanna og hvenær fyrirhugað sé að hús­ næðisúrræðið geti verið tilbúið. Kjartan og foreldrar hans hafa aldrei fengið svör frá borginni um það hvar hann stendur á biðlistum né hvenær líklegt þyki að röðin komi að honum varðandi úthlutun á húsnæði. Flóki Ásgeirsson, lögmaður Kjart­ ans, segir að svo virðist sem engin sérstök röðun sé fyrir hendi á bið­ lista borgarinnar og að það sé í raun engin leið fyrir einstaklinga að fá að vita hvaða bið þeir eiga eftir. Í mála­ tilbúnaði Flóka fyrir hönd Kjartans kemur meðal annars fram að í raun sé ekki um biðlista að ræða heldur eins konar biðhít. Í niðurstöðu dómsins segir að umsækjendum um húsnæði fatl­ aðra á vegum borgarinnar sé raðað í fjóra þjónustuf lokka eftir þjón­ ustuþyngd. Þá sé augljóst af gögnum máls að borgin raði ekki einstakl­ ingum á biðlista á neinn gegnsæjan hátt innan hvers flokks. Sökum þess sé í raun ómögulegt fyrir einstak­ ling að vita hvort hann sé næstur í röðinni eftir húsnæði eða hvort hann sé aftastur, enn síður hvort aðrir sem komi inn á listann verði teknir fram fyrir hann. „Við svo óljósar aðstæður verða réttindi einstaklinga til húsnæðis einungis í orði en ekki á borði.“ Héraðsdómur dæmdi málið Kjartani í hag en borgin gat ekki unað niðurstöðunni og áfrýjaði málinu til Landsréttar og verður það tekið fyrir í haust. n Mér finnst Kjartan mjög merkileg mann- eskja og margt sem hann hefur í raun kennt manni sem gerir mann að því sem maður er í dag. Ragnheiður frá fæðingu að Kjartan myndi þurfa eigið húsnæði með þjónustu á vegum borgarinnar við átján ára aldur hefur hann verið á bið­ lista eftir slíku í sjö ár. Kjartan þarf sólarhringsþjónustu vegna sykursýkinnar og hafa foreldrar hans tekið mestan þungann sem umönnunaraðilar hans frá fæðingu. Þau segja kerfið sérkennilegt og að það sé vonlaust verkefni að berjast við það. Erfitt sé að vera bjartsýn fyrir hönd Kjartans. Erfið barátta „Þú átt ekki að þurfa að klóra þig í gegnum kerfið,“ segir Ragnheiður. „Ég segi nú alltaf guð hjálpi þeim sem hafa bara kerfið til að reiða sig á, þeir verða frystir úti. Kerfið gerir ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir svona fólk, það verður að berjast fyrir hverri einustu tommu og þetta er alltof blóðug barátta,“ bætir Ólafur Hilmar við. Ragnheiður líkir baráttunni við rafmagnsdyr sem eiga að opnast með rafmagni en þarf alltaf að opna með öxlinni. „Þú merst á endanum og þú getur ekki mikið meira.“ Ólafur segir að miðað við reynslu þeirra í 25 ár með Kjartani myndi hann ekki álasa neinum sem á von á fötluðu barni fyrir að fara í þung­ unarrof. „Mér er ekki það illa við nokkurn einasta mann að ég óski honum að lenda í þessu því þessi barátta er alveg gríðarlega erfið.“ Foreldrar Kjartans hræðast til­ hugsunina um að hann lifi þau. „Ég er tæplega fjörutíu árum eldri en hann svo það er mjög líklegt að hann lifi mig og það er afskaplega erfið tilhugsun að skilja hann eftir í höndunum á kerfi sem þú treystir ekki,“ segir Ólafur Hilmar og bætir við að hann yrði rólegri ef Kjartan færi á undan. „Það er hart að segja þetta og örugglega ekkert þægilegt að heyra það en þetta er bara því miður staðan. Þegar maður getur ekki sjálfur aðstoðað hann, hver gerir það þá?“ Ragnheiður tekur undir: „Ég meina, ef þú átt börn, þá viltu ekki lifa þau en það er mín ósk að ég lifi Kjartan. Maður gæti dáið rólegri.“ Fátt um svör Sem fyrr segir hefur Kjartan verið á biðlista eftir húsnæði með þjónustu á vegum Reykjavíkurborgar í sjö ár. Foreldrar hans hafa lengi leitað svara hjá borginni um hvar Kjartan sé staddur á biðlistum og hvenær þau geti átt von á að fá íbúð úthlut­ að. Þau svör hafa þó aldrei verið á reiðum höndum hjá borginni. Frá fæðingu Kjartans hafa for­ eldrar hans deilt umönnuninni sín á milli ásamt því að vera bæði í fullu starfi. Kjartan er í dagvistun á virkum dögum og fær sjö daga í skammtímavistun á mánuði þar sem hann gistir. Þá hefur Ragn­ heiði og Ólafi Hilmari staðið til boða beingreiðslusamningur við borgina til þess að ráða starfsmenn inn á heimili sín til að aðstoða við umönnun, sem þau hafa nýtt sér. Vegna sykursýki Kjartans þarf að fylgjast með blóðsykri hans á þriggja klukkustunda fresti og þurfa þeir sem annast hann að þekkja til og hefur það komið í hlut foreldra hans að fræða starfs­ mennina. Af heildartímafjölda hvers mánaðar er Kjartan alfarið í umsjón foreldra sinni tæplega helming. Við það bætast svo veik­ inda­, frí­ og starfsdagar. „Maður er náttúrlega löngu kominn fram yfir það að eiga nokkurn veikindarétt,“ segir Ólafur Hilmar. Ragnheiður og Ólafur Hilmar furða sig á starfsemi ríkis og sveitar­ félaga og segja rifrildi þeirra á milli ekki mega bitna á einstaklingum eins og Kjartani, „sem hefur ekkert annað gert en að fæðast.“ Enginn biðlisti Í apríl 2020 höfðuðu foreldrar Kjartans mál fyrir hans hönd gegn borginni sem fór fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og var dómur kveðinn · Ávarp Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ · Lásar gera bara gagn ef þeir eru læstir Kolbeinn H. Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild HÍ · Hvar er kaupmáttaraukningin mín? Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ · Kaffihlé · Pallborð Bergþór H. Þórðarson, varaformaður ÖBÍ Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata Inga Sæland, þingmaður Flokks fólksins Kolbeinn H. Stefánsson, félagsfræðingur · Lokaorð Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ EF ÞEIR ERU LÆSTIR LÁSAR GERA BARA GAGN Rit- og táknmálstúlkun · Léttar veitingar í boði Fundarstjóri: Eggert Skúlason Skráning á obi.is Allir velkomnir Málþing ÖBÍ · 17. maí 2022 · kl. 13:00 til 15:30 Grand Hóteli (Háteig) · Sigtúni 38 · Reykjavík UM 6 9. G RE IN L AG A UM A LM AN N AT RY GG IN GA R Dagskrá Helgin 37LAUGARDAGUR 14. maí 2022 Fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.