Fréttablaðið - 14.05.2022, Síða 113
Sturlaðar Euro-staðreyndir
Írar eru sigursælasta þjóð Eurovision með sjö sigra. Hér eru bræðurnir John og Edward Grimes árið 2011.
Úrslit Eurovision fara fram í kvöld. Gleðin verður víða um
Evrópu enda keppnin einstök. Reglur keppninnar eru margar
stórfurðulegar en skemmtilegar og tók Fréttablaðið saman
nokkrar sturlaðar staðreyndir um Eurovision.
1:27
var lagið
Aina Mun
Pitää frá
Finnlandi
en það er
stysta lag
Eurovision
frá upp
hafi.
24
orð dugðu
Noregi til
sigurs árið
1995 með
laginu
Nocturne.
1998
var síðasta
keppnin
með sin
fóníu
hljómsveit. 7
sinnum
hefur
Írland
unnið og
Svíþjóð 6
sinnum.
Lúx
emburg,
Frakkland,
Holland og
Bretland
hafa unnið
5 sinnum.
1
land hefur
alltaf farið
áfram úr
undan
keppninni.
Úkraína er
með 100
prósenta
árangur.
Nína Richter
og
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
Fréttablaðið á Eurovision
@frettabladid.is @frettabladid @frettabladid_is
1983
hóf Ástr
alía að
sýna frá
Eurovision
en keppn
in er sýnd
í fimm
heims
álfum.
5
efstu lögin
í fyrra voru
sungin
á öðru
tungumáli
en ensku.
Það gerðist
síðast
1996.
3
lönd fengu
stig frá
öllum
löndum.
Georgía
gaf ekki
Finnlandi
stig, ann
ars hefðu
þau verið
fjögur.
1956
fór fyrsta
keppnin
fram.
Ekkert
land sem
hefur farið
númer tvö
á sviðið
á úrslita
kvöldinu
hefur
hrósað
sigri.
5
heimsálfur
sýna frá
lokakvöld
inu.
0
stig gáfu
Bretar
Abba árið
1974 þegar
sænska
hljóm
sveitin
vann með
Waterloo.
6
mega vera
á sviðinu í
einu.
18
lönd gáfu
Euphoria
12 stig
árið 2012.
Ekkert
lag hefur
fengið fleiri
12 stig.
7
lönd tóku
þátt í fyrstu
keppninni.
Þá söng
hver þjóð
tvö lög.
64
sinnum
hefur
keppnin
farið fram
en sigur
vegararnir
eru 67.
Árið 1969
voru fjögur
lönd jöfn
að stigum.
2016
var Rúm
eníu vikið
úr keppni
vegna
skuldar við
EBU.
XD
ÞAÐ
BESTA FYRIR
HAFNARFJÖRÐ
XD
ÞAÐ
BESTA FYRIR
HAFNARFJÖRÐ
Ekki gleyma
þessum systrum...
Kristín
Rósa
Guðbjörg
4
sinnum
hefur
Valentina
Monetta
tekið þátt
fyrir San
Marino.
Hún söng
eitt sinn
lag Ralph
Siegel en
hann hefur
tekið þátt í
21 skipti.
49
keppnir fór
Portúgal
í gegnum
án þess
að vinna.
Sigur
þeirra
árið 2017
var þeirra
fyrsti.
Það er magnað að fylgjast með
spennustiginu í borginni stig-
magnast á meðan lokakeppnin
færist nær. Það er lyginni líkast
að við höfum nú þegar verið hér
í viku, en tíminn hefur flogið á
ólýsanlegum hraða. Við erum
orðnar ansi naskar á opnunartíma
veitingastaða á nóttunni þar sem
unnið er frá morgni til kvölds og
þegar klukkan er orðin eitt að
nóttu áttar kona sig á því að hafa
ekkert borðað allan daginn. Það
er nú samt aldeilis hægt að gera
eitthvað í því, í tveggja milljóna
manna borg.
Dómararennsli fyrir lokakvöld
Eurovision-keppninnar fór fram
í gærkvöldi. Systur hafa vakið
verðskuldaða athygli í Eurovisi-
on-„búbblunni“og allir sem við
tölum við hafa skoðun á atriðinu
og langflestir eru mjög jákvæðir í
garð lagsins. Þetta er skemmtileg,
lítil og skrýtin sigursaga um klifur
í veðbönkum og meðal flestra
hér á svæðinu er spáin á þá leið
að ómögulegt sé að spá fyrir um
úrslit með sama hætti og fyrri ár.
Við finnum fyrir hlýju í þessu
Eurovision-samfélagi og ríkri
samkennd sem hverfist í kringum
úkraínsku keppendurna og
samfélagið þeirra hér í Tórínó.
Fólk hlær og grætur í viðtölum.
Einhverjir eru á því að Úkraína eigi
skilið að vinna Eurovision 2022
og slíkur sigur yrði ljós í myrkrinu
á skelfilegum tímum. Það eitt
er víst að Eurovision-keppnin,
með allri sinni gleði og glimm-
eri, skrýtilegheitum, hæfileika-
magni og skemmtanagildi – óháð
stigatölum á lokakvöldið, er ljós
í myrkrinu á meðan Evrópa fer í
gegnum myrka tíma.
Í anda Systra sendum við
ykkur ljós og kærleika frá Tórínó
og biðjum ykkur að bera ljósið
áfram. Og hvernig sem þið kjósið,
lifi ljósið! n
Lifi ljósið hvernig sem þið kjósið
LAUGARDAGUR 14. maí 2022 Lífið 63FRÉTTABLAÐIÐ