Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 2
Angurværðin er í anda
Davíðs.
Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri
Minjasafnsins á Akureyri
BOÐSKORT
ÞÉR ER BOÐIÐ Í
6 ÁRA AFMÆLI
LAUGARDAGINN
21. MAÍ KL. 11-13
Í ÞJÓÐHÁTÍÐARLUNDI,
HEIÐMÖRK.
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
GRÓÐURSETNING,
GRILL OG LEIKIR!
Uppistand á Viðskiptaþingi
Pétur Jóhann Sigfússon, leikarinn ástsæli, ávarpaði gesti á Viðskiptaþingi á Hótel Nordica í gær. Þar fylgdust valinkunnir viðskiptajöfrar og ráðherrar með
grínistanum segja frá því að nú hefði hann þann aðalstarfa að mæta á vinnustaði og drekka kaffi og tala við fólk. Hann væri eiginlega hinn móralski leiðtogi.
Vakti uppistand Péturs mikla ánægju meðal fundarmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Að öllum líkindum hefur
þjóðin eignast óbirt ljóð úr
fórum eins allra dáðasta
ljóðskálds landsins, en sagan
á bak við það er fögur og
hjartnæm.
ser@frettabladid.is
LISTIR Lítil saga er heiti á 19 erinda
ljóðabálki sem kominn er í leitirnar,
en talið er fullvíst að hann hafi verið
ortur af þjóðskáldinu Davíð Stefáns-
syni, enda bera stíll ljóðsins og rit-
höndin þess augljós merki.
Fyrsta erindið er á þessa vegu:
Ein lítil saga lifir í huga mér
mig langar til að segja hana þér,
hver getur huggað harmi þrungna sál
því eru vonir stundum svik og tál.
„Við erum á því að þetta sé skóla-
ljóð eða bernskuverk áður en Svart-
ar fjaðrir komu út,“ segir Haraldur
Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafns-
ins á Akureyri, sem fékk ljóðabréfið
í hendurnar fyrir nokkrum dögum,
en hann hefur borið það undir sér-
fræðinga í höfundarferli Davíðs og
telur varla efa leika lengur á um að
hér hafi Davíð haldið á penna .
„Rithöndin er lík þeim eigin-
handarverkum Davíðs sem ég hef
getað borið saman við,“ bætir hann
við, en þó sé meginástæða þess að
menn haldi að ljóðið sé komið úr
fórum Davíðs sú að það var í vörslu
og virðist hafa verið ort til náinnar
æskuvinkonu Davíðs, sem var sveit-
ungi hans við utanverðan Eyjafjörð.
Sú var Helga Gunnlaugsdóttir frá
Ytri Reistará og síðar á Hjalteyri,
fædd 5. mars 1893, tveimur árum
fyrr en Davíð sjálfur, en hann þótti
hændur mjög að Helgu á sínum
æskuárum, svo sem sveitungar hans
hafa haft á orði.
„Það er byrjendabragur á kvæð-
Óbirt ljóð þjóðskáldsins frá
Fagraskógi komið í leitirnar
inu, en angurværðin er í anda Dav-
íðs, segir mér fróðara fólk,“ segir
Haraldur Þór og rifjar áfram upp
tildrög þess að ljóðabréfið barst í
hendur hans.
„Ljóðabréfið var lengst af í fórum
Stefáns Lárusar Árnasonar, sonar
Helgu, en hann var fæddur 1935 og
augljóst er að hann hefur geymt það
fyrir móður sína bæði vel og lengi,“
segir Haraldur Þór.
Það hafi svo verið fimm dætur
Stefáns, þær Helga, Stella, Sigrún,
Erla og Halla, sem færðu Davíðshúsi
ljóðabréfið að gjöf á dögunum, en
Minjasafnið sér um rekstur þess. nDavíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Þorvaldur
Lúðvík Sigur-
jónsson, for-
stjóri Niceair
Flugvél Niceair, en flogið verður
beint milli Akureyrar og umheimsins.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Erlendir f lugvirkjar hjá
portúgölsku félagi munu sjá um
viðhald á f lugvél Niceair. Forstjóri
félagsins segir ekkert óeðlilegt við
það en kurr er meðal innlendra
f lugvirkja sem telja að innlendir
flugvirkjar hefðu átt að fá tækifæri
til að sinna þjónustunni.
Flugvirkjar hafa í samtölum við
Fréttablaðið vakið athygli á að inn-
lendum fyrirtækjum hafi ekki verið
gert kleift að gera tilboð í viðhald
hjá Niceair, hinu nýja akureyrska
millilandaf lugfélagi sem slegið
hefur í gegn með áætlun sinni.
Hjá Niceair segir Þorvaldur Lúð-
vík Sigurjónsson forstjóri að f lug-
virkjar séu á villigötum.
„Félagið sem við fáum vélina frá
er með sína eigin viðhaldsdeild eins
og Icelandair Ground Services er
viðhaldsdeild Icelandair,“ segir Þor-
valdur Lúðvík. „Tveir til þrír f lug-
virkjar félagsins koma með vélinni
til að þjónusta hana út leigutímann,
enda er vélin leigð með viðhaldi.
Það var því aldrei á hendi Niceair
að bjóða út eitt eða neitt,“ segir Þor-
valdur Lúðvík.
Viðhaldið er innifalið í leigunni
að sögn Þorvaldar Lúðvíks, saman-
ber „alla sambærilega samninga í
heiminum“ eins og hann orðar það.
Vélin er leigð með viðhaldi, trygg-
ingum og að hluta til áhöfn.
Portúgalska viðhaldsfyrirtækið
starfar undir sömu samevrópsku
reglum og hin íslensku að sögn for-
stjórans. Öll eru fyrirtækin undir
EES og njóta sem slík atvinnu-
frelsis. n
Viðhald flugvélar
Niceair í höndum
portúgalsks félags
thorgrimur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Landsréttur dæmdi í gær
að skattur sem ríkið hefur í mörg ár
lagt á olíufélög vegna innflutnings
á olíuvörum stæðist ekki stjórnar-
skrá. Ríkinu er gert að endurgreiða
Skeljungi og Atlantsolíu um hálfan
milljarð króna auk vaxta.
Um er að ræða svokallað f lutn-
ingsjöfnunargjald. Byggðastofnun
hefur ákvarðað upphæð þess með
heimild í lögum. Það taldi Lands-
réttur fela í sér of almennt framsal
skattlagningarvalds til stjórnvalds.
Olíufélögin hafa í gegnum tíðina
þegið hundruð milljóna króna úr
flutningsjöfnunarsjóði sem rekinn
er með gjöldunum. Ekki var fallist á
að þær upphæðir yrðu dregnar frá
endurgreiðslunni til þeirra. n
Borgi olíufélögum
hundruð milljóna
2 Fréttir 21. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ