Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 6
Þriðjungur
Fimmtungur
Þr
ið
ju
ng
ur
hinsegin
nemendum
hafði orðið
fyrir líkamsárás
í skólanum síð-
asta skólaárið
vegna persónu-
einkenna.
nemendum
sagðist
hafa orðið
fyrir líkamlegri
áreitni síðasta
árið vegna
kynhneigðar
sinnar.
nemenda sagðist hafa fundið til
óöryggis í skólanum síðasta árið
vegna kynhneigðar sinnar.
fann til
óöryggis
vegna
kyntjáningar
sinnar.
hinsegin nemenda greindi
frá því að hafa verið áreittur
munnlega vegna kynhneigð-
ar sinnar og fjórðungur hin-
segin nemenda hafði verið
áreittur munnlega vegna
kyntjáningar sinnar.
1
af
hverjum
8
1
af
hverjum
20
Að sögn sérfræðinga við
Háskóla Íslands er líðan hin-
segin ungmenna í íslensku
skólakerfi ekki alltaf góð. Líta
má til skýrslu sem unnin er
upp úr rannsókn frá 2018, sem
sýnir að stór hluti nemenda
hafði orðið fyrir áreitni vegna
kynhneigðar, kyngervis eða
kyntjáningar.
ninarichter@frettabladid.is
Mannréttindi Hinsegin mennt-
unarfræði er námskeið sem nú
er kennt í fjórða sinn við Háskóla
Íslands. Að sögn umsjónarkennara
námskeiðsins, Írisar Ellenberger og
Auðar Magndísar Auðardóttur, er
þetta í fjórða sinn sem námskeiðið
er kennt.
„Hinsegin menntunarfræði snýst
í grunninn um að gefa fólki tækifæri
á að fá ákveðin tæki, tól og sjónar-
horn úr hinsegin fræðum til að beita
á nám og frístundastarf,“ segir Íris.
Auður Magndís bætir við að
námskeiðið sé valnámskeið og
opið fyrir marga, ekki aðeins fólk
innan menntavísindasviðs. „En
kjarninn er fólk sem er að læra að
verða grunnskólakennarar,“ segir
hún. „Það koma síðan alltaf nokkrir
nemendur sem eru starfandi kenn-
arar, jafnvel með tíu eða tuttugu ára
starfsreynslu. Fólk sem er í náms-
leyfi og notar það í þennan kúrs.
Svo er alltaf hópur af skólastjórum
líka, sem er dásamlegt. Þessi hópur
kemur inn með svo mikla reynslu.“
Auður Magndís bendir á að
margir haldi að það að skilja hin-
segin málefni snúist um að þekkja
öll hugtökin. En það sé þó aðeins
pínulítið brot af heildarmyndinni.
Hinsegin menntunarfræði snúist
um ákveðið sjónarhorn og að bera
kennsl á það hvenær sé óvart verið
að gera ráð fyrir að allir séu gagn-
kynhneigðir, sís-kynja, og ekki
trans. Og hvernig megi bæta náms-
efni og fleira í umgjörð náms með
það fyrir augum.
Íris tekur undir þetta og segir að
einnig sé tekist á við að búa til örugg
rými fyrir hinsegin ungmenni.
Auður bætir við að þekkingin gagn-
Stór hluti hinsegin nemenda orðið fyrir áreitni
Auður Magndís
og Íris Ellenber-
ger kenna kúrs í
hinsegin mennt-
unarfræði við
Háskóla Íslands
og segja ekki
nóg að þekkja
hugtökin til að
skilja málefnin.
Fréttablaðið/
Ernir
ist ekki aðeins hinsegin nemendum,
heldur öllum nemendum sem séu á
skjön við staðalmyndir um kynin,
hvort sem þau eru hinsegin eða ekki.
„Ég held að fólk komi oft inn með
hugmyndir um að læra þessi helstu
hugtök, og vonast eftir þægilegum
og einföldum lausnum. En svo
komast þau fljótt að því að auk þess
að læra og gera einfalda hluti þurfi
þau að breyta stemningunni, vinna
djúpa vinnu með menninguna í
skólanum eða frístundaheimilinu.
Að rýna í gildin sem eru til staðar og
hvernig sé hægt að breyta þeim.“
Íris segir kjarnann í hinsegin
menntunarfræðum vera valdadýna-
mík milli starfsfólks og nemenda
og fræðigreinin geri kröfu á fólk að
skoða til hvers menntun sé og til
hvers menntastofnanir séu. Þegar
fólk sé komið með þau gleraugu á
nefið fari það að skoða hluti sem það
hafi ekki tekið eftir áður.
Aðspurðar um stöðu hinsegin
hópa í íslensku menntakerfi, er það
skoðun Írisar og Auðar Magndísar
að gera megi betur. „Þessi hugmynd
um að við séum fremst á þessu sviði
getur verið til trafala líka. Þá heldur
fólk að ekki þurfi að tala um þetta,
og að krakkarnir viti þetta,“ segir
Íris. „Sís-gagnkynhneigt fólk heldur
að það sé ekki lengur neitt í and-
rúmsloftinu sem er skaðlegt.“
Að sögn Írisar er líðan íslenskra
hinsegin ungmenna í skólakerfinu
ekki alltaf góð. Í könnun á líðan
hinsegin ungmenna í skólaum-
hverfi, sem byggð er á GLSEN‘s 2015
National School Climate Survey
könnuninni, þýddri og staðfærðri
af Menntavísindasviði HÍ, GLSEN
og Samtökunum ‘78, kom í ljós að
þriðjungur nemenda greindi frá því
að finna til óöryggis í skólanum síð-
asta árið vegna kynhneigðar sinnar.
Þá fann fimmtungur til óöryggis
vegna kyntjáningar sinnar. Þriðj-
ungur hinsegin nemenda greindi
frá því að hafa verið áreittur munn-
lega vegna kynhneigðar sinnar
og fjórðungur hinsegin nemenda
hafði verið áreittur munnlega vegna
kyntjáningar sinnar.
Eitt af hverjum átta hinsegin ung-
mennum hafði orðið fyrir líkam-
legri áreitni á undangengnu ári
vegna persónueinkenna og algeng-
asta orsök áreitis var kynhneigð. Þá
sögðust um sex prósent aðspurðra
hafa verið líkamlega áreitt vegna
kyngervis eða kyntjáningar. Einn
af hverjum tuttugu hinsegin nem-
endum hafði orðið fyrir líkamsárás
í skólanum síðasta skólaárið vegna
persónueinkenna.
Þátttakendur höfðu náð að
minnsta kosti 13 ára aldri, stunduðu
nám á unglingastigi grunnskóla eða
í framhaldsskóla á Íslandi veturinn
2016-2017 og, orðrétt úr skýrslu: „…
skilgreindu sig sem lesbíur, homma,
tví- eða pankynhneigð, eða af ein-
hverri kynhneigð annarri en gagn-
kynhneigð eða litu á sig sem trans
eða með aðra kynvitund en sís-
kynja.“.
Námskeið í hinsegin menntunar-
fræðum við Háskóla Íslands verður
næst kennt eftir tvö ár. Aðspurðar
segja Íris og Auður Magndís ýmislegt
hægt að gera til að fræðast og styðja
við hinsegin hópa í menntakerfinu.
Til dæmis sé Mannréttindastofa
Reykjavíkurborgar með Regnboga-
vottun þar sem boðin er fræðsla
fyrir vinnustaði borgarinnar. n
Gagnleg hinsegin hugtök
n Kyngervi er félagslega mót-
að kyn, en ekki líffræðilegt
n Sís-fólk samsvarar sig með-
fæddu líffræðilegu kyni
n Á vef otila.is er ítarlegur
listi yfir hinsegin hugtök
LÚXUS GOLF Á ÍTALÍU
CHERVO GOLF HÓTEL OG SPA Á ÍTALÍU
*NÝTT Í SÖLU* Einstök ferð þar sem nóg er af sól,
menningu, mat og golfi á Ítalíu.
Chevro Golf and Spa Resort er glæsilegt lúxus hótel
sem er staðsett í San Vigilio í Trentico - Alto Adige
héraði, sem er í 40 mín akstursfjarlægð frá Verona og
12 mín. akstri frá Gardavatninu.
Hótelið er búið allri þeirri þjónustu og þægindum sem
golfarar óska sér.
Chevrogolfvöllurinn státar af 36 holum þar af 9 holur
par 3 velli og 3×9 holu keppnisvelli: Benaco, Solferino
og San Martino.
BEINT FLUG, INNRITAÐUR FARANGUR,
HANDFARANGUR, 8 DAGAR Á LÚXUS GISTINGU
MEÐ MORGUNVERÐI, ÍSLENSK FARARSTJÓRN,
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI, FLUTNINGUR
Á GOLFSETTI, 6 DAGAR Á 18 HOLU CHERVO
GOLFVELLINUM OG AÐGANGUR AÐ
ÆFINGASVÆÐI MEÐ FRÍUM GOLFBOLTUM
INNIFALIÐ Í VERÐI:
28. ÁGÚST – 4. SEPTEMBER
4. – 11. SEPTEMBER
11. – 18. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 299.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
KYNNINGARVERÐ TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI Í BOÐI
NÝTT Í SÖLU
WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
kristinnhaukur@frettabladid.is
vísindi Rekaviðardrumba mun
ekki lengur reka á íslenskar fjörur
árið 2060, samkvæmt nýrri alþjóð-
legri rannsókn. Dregið hefur úr
magni rekaviðar undanfarin
þrjátíu ár, vegna betri nýtingar í
Rússlandi og minnkandi hafíss.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar í nýjasta hefti af tíma-
ritinu Global and Planetary
Change. Vísindamennirnir sem að
henni stóðu koma frá háskólum í
Tékklandi, Rússlandi, Bretlandi,
Sviss og einnig Ólafi Eggertssyni
hjá Skógræktinni.
Meðal annars var greindur
uppruni og aldur rekaviðar út frá
árhringjum drumba sem fundust
á Langanesi árið 1989 annars vegar
og 2019 hins vegar.
Rekaviðurinn sem hingað kemur
er að mestu leyti upprunninn frá
svæðinu í kringum Yenesei-fljót
um miðbik Síberíu. Mikill meiri-
hluti þess kemur úr skógarhöggi og
aðeins um 17 prósent eru tré sem
fallið hafa af öðrum orsökum.
Um aldir var rekaviður afar
mikilvægur Íslendingum því að tré
af þessari stærðargráðu uxu ekki
hér. Rekajarðir þóttu verðmætar
því timbrið var notað til bygginga
húsa og báta.
Betri stýring rekaviðar í Síberíu
eftir fall Sovétríkjanna er ein af
skýringunum á minna magni
rekaviðar undanfarna áratugi.
Það tekur rekaviðinn nokkur ár að
berast til landsins, allt að þúsund
kílómetra leið. Til þess að komast
þarf að vera til staðar hafís, sem
endist lengur en eitt ár, til að bera
viðinn til Íslands. Eftir því sem
hafísinn minnkar eru meiri líkur
á að rekaviðurinn komist ekki
áleiðis heldur sökkvi. n
Rekaviður horfinn innan hálfrar aldar
Rekajarðir
samkvæmt
Jarðabók Árna
Magnússonar og
Páls Vídalín frá
1703.
6 Fréttir 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið