Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 10
Þau eru glaðleg,
jákvæð og margir sem
vilja hjálpa þeim.
Olgeir Helgi Ragnarsson,
söngvari og Borgfirðingur
Engin lántökugjöld
á 100% rafmagnsbílum
Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka
arionbanki.is
Úkraínsku flóttamönnunum
á Bifröst er boðið á tónleika
og í kaffiboð í dag. Söngelsk
fjölskylda hefur skipulagt við-
burðinn og margir sveitungar
ætla að hjálpa til.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTURLAND Borgf irðingurinn
Olgeir Helgi Ragnarsson og fjöl-
skylda hans skipulögðu tónleika
og kaffiboð fyrir úkraínsku flótta-
mennina á Bifröst. Margir sveitung-
ar þeirra ætla að taka þátt í að bjóða
gestina velkomna.
„Ég finn ekki annað en að það sé
mjög mikill velvilji hérna í sveitinni
gagnvart Úkraínumönnunum,“
segir Olgeir Helgi. „Þeim virðist
líða vel. Þau eru glaðleg, jákvæð og
margir sem vilja hjálpa þeim.“
Um 120 úkraínskir f lóttamenn
eru nú á Bifröst, en það er háskól-
inn þar sem opnað hefur sínar dyr
fyrir þeim í litlu íbúðahverfi og veitt
aðstoð. Alls 17 íbúðir og 69 herbergi.
Sveitarfélagið Borgarbyggð og Rauði
krossinn hafa skipulagt móttökuna
og Olgeir Helgi er meðal þeirra sem
hafa komið að því starfi.
Í hópi f lóttafólksins eru í kring-
um 30 börn á öllum aldri og meiri
hluti fullorðinna eru konur. Fyrsti
hópurinn, 35 manns, kom í byrjun
apríl en gert var ráð fyrir 150 manns
að hámarki á Bifröst. Úrræðið er
hugsað sem móttökustaður fyrir
fólk í allt að tólf vikur á meðan
varanlegra búsetuúrræði er fundið.
Samkvæmt Olgeiri Helga talar
hluti af Úkraínumönnunum ensku
og þeir sem það gera túlka sam-
skiptin við heimamenn. Hann segir
alla af vilja gerða til að gera vistina
eins bærilega fyrir f lóttamennina
og hægt er miðað við þær aðstæður
sem þeir eru í.
„Við ætlum að bjóða gestunum
okkar á tónleika og svo í kaffi á
eftir,“ segir Olgeir Helgi. Hann,
eiginkona hans Theodóra Þor-
steinsdóttir og dæturnar Hanna
Ágústa og Sigríður Ásta eru söng-
elskt fólk og söngmenntað og hafa
margsinnis áður haldið tónleika
í sveitinni, meðal annars jólatón-
leika. Dæturnar eru báðar í námi
í Bandaríkjunum en eru einmitt
báðar á landinu þessa helgi.
Olgeir Helgi segir að sungin verði
íslensk þjóðlög og klassísk íslensk
tónlist. Einnig munu einstaka
óperuaríur laumast með. Eftir á
verður sígilt Pálínuboð þar sem fólk
kemur með kræsingar að heiman.
Sjálfboðaliðarnir hittast klukkan
13.00 í dag í salnum Hrif lu á Bif-
röst. Tónleikarnir sjálfir hefjast svo
klukkan 14.00 og kaffiboðið í beinu
framhaldi.
Olgeir Helgi segir að slatti af fólki
hafi þegar boðist til að hjálpa við
viðburðinn. „Við rennum alveg blint
í sjóinn með hversu margir mæta,“
segir Olgeir Helgi. „Margir láta ekki
vita af sér fyrir fram heldur mæta
bara.“ ■
Borgfirðingar bjóða flóttafólki frá
Úkraínu á tónleika og í Pálínuboð
Um 120 úkra-
ínskir flótta-
menn dvelja nú
á Bifröst og þar
af um 30 börn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJÉTUR
Sigríður Ásta, Hanna Ágústa, Olgeir
Helgi og Theodóra. MYND/AÐSEND
Krakkarnir fá launahækkun í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Lagt er til að tímakaup
nemenda í vinnuskóla Reykjavíkur
hækki um sjö prósent á komandi
sumri. Tímakaup nemenda úr 8.
bekk hækki þannig úr 664 krónum
í 711 krónur, nemendur í 9. bekk fara
í 947 krónur á tímann og nemendur
í 10. bekk fá 1.184 krónur á tímann.
Umhverfis- og heilbrigðisráð
borgarinnar samþykkti hækkun-
ina og vísaði henni til borgarráðs.
Hækkunin rúmast reyndar ekki
á fjárhagsáætlun og þarf að sækja
um auka 60 milljónir. Alls eru 2.300
börn skráð í vinnuskólann í sumar
en erfitt er að spá fyrir um endan-
legan fjölda. ■
Hækka laun í
vinnuskólanum
ser@frettabladid.is
NÁTTÚRA Landris í kringum Vatna-
jökul hefur ekki mælst meira frá
því nákvæmar mælingar hófust
fyrir um þremur áratugum, en það
nemur nú ríflega fimm sentimetr-
um á ári. Ætla má að landrisið næst
jöklinum jafngildi að minnsta kosti
á annars metra hækkun á þessum
tíma.
Guðmundur Valsson, fagstjóri
landmælinga hjá Landmælingum
Íslands, segir ástæðu þessa vera þá
að jökullinn hopar hratt og fargið
minnkar sem því nemur. Við það
lyftist landið í kring.
„Í fyrstu var landrisið á þessum
slóðum aðeins byggt á getgátum,
en eftir að þéttu neti mælipunkta
var dreift yfir allt landið í upphafi
tíunda áratugar síðustu aldar hefur
reynst miklum mun auðveldara að
leggja mat á landrisið,“ segir Guð-
mundur.
Hann segir að ætla megi að land-
risið við Vatnajökul hafi numið um
tveimur sentimetrum á ári á síðasta
áratug liðinnar aldar, en á milli
áranna 2004 og 2016, þegar jarð-
vísindamenn hafi getað stuðst við
enn nákvæmari hæðarmæla, hafi
landrisið reynst vera rúmir fjórir
sentimetrar á ári.
„Síðustu mælingar okkar frá 2020,
sem við höfum verið að vinna úr,
sýna svo ekki verður um villst að
landrisið er enn að aukast – og er
komið yfir fimm sentimetra á ári,“
segir Guðmundur. ■
Fimm sentimetra landris við Vatnajökul á ári
Hæðarbreytingar frá 2015 til 2020.
Guðmundur Þór
Valsson
tsh@frettabladid.is
DÓMSTÓLAR Ísland mun veita um
14 milljóna viðbótarframlagi til
Alþjóðlega sakamáladómstólsins í
Haag (ICC) á þessu ári, sem er tvö-
földun á árlegu framlagi Íslands.
Utanríkisráðherra Íslands, Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, segir
viðbótina viðbrögð við ákalli sak-
sóknara ICC um aukinn stuðning.
Líkur eru á að hluti þess renni til
rannsóknar dómstólsins á meintum
stríðsglæpum Rússa í Úkraínu.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs-
dóttir, þingmaður Viðreisnar, lagði
fram þingsályktunartillögu í lok
mars um fjárstuðning við ICC vegna
ætlaðra stríðsglæpa Rússa í Úkraínu.
Þar var kallað eftir 10 milljóna króna
viðbótarframlagi til ICC en í svari
utanríkisráðherra kemur fram að
ekki sé hægt að eyrnamerkja fram-
lög til dómstólsins í ákveðin verk-
efni. „Enda fælust óeðlileg afskipti af
forgangsröðun dómstólsins í slíkum
skilyrtum fjárframlögum. Þetta er
hluti af þeim grundvallarreglum
réttarríkisins sem mikilvægt er að
standa vörð um,“ segir í svari utan-
ríkisráðherra. ■
Tvöfalt framlag til
sakamáladómstóls
10 Fréttir 21. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ