Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 22
Félög þéna betur á
því að komast í riðla-
keppni Meistaradeild-
ar Evrópu en að vinna
Evrópudeildina.
Salah leiðir kapp-
hlaupið um gullskóinn
með einu marki. Það
yrði þriðji gullskór
Egyptans á fimm árum
í herbúðum Liverpool.
Ef City verður meistari
er Guardiola orðinn
næstsigursælasti þjálf-
ari úrvalsdeildarinnar.
Það er enn
erfiðasta
verkefnið
að vinna
ensku
úrvals-
deildina.
Það eru
margar
vikur, leik-
ir, góðar
stundir,
slæmar, að
baki.
Pep Guardiola
1
Eitt stig skilur City og
Liverpool að síðustu
fjögur ár. City hefur
fengið 355 stig af 453
og Liverpool 354 stig.
kristinnpall@frettabladid.is
ENSKI BOLTINN Það er ekki aðeins
spenna fyrir lokaumferðinni meðal
efstu tveggja liðanna. Erkifjend-
urnir í Tottenham og Arsenal heyja
baráttu um fjórða sætið, sem veitir
um leið þátttökurétt í Meistaradeild
Evrópu, og Leeds og Burnley berjast
um að framlengja dvöl sína í efstu
deild.
Skyttunum í Arsenal hefur fatast
flugið á undanförnum vikum. Eftir
að hafa tapað fjórum leikjum af síð-
ustu átta, þar á meðal síðustu tveim-
ur, þurfa lærisveinar Mikel Arteta að
treysta á að Norwich, sem er fallið
úr deildinni, vinni óvæntan sigur á
Tottenham á heimavelli sínum.
Markatalan gerir það að verkum
að Tottenham dugar gegn Norwich
að ná fjórða sæti, sem gefur sæti
í Meistaradeild Evrópu sem gjör-
breytir tekjuinnkomu næsta árs.
Á sama tíma er tveggja liða bar-
átta um 17. sætið á milli Burnley og
Leeds. Eftir sigur Everton í vikunni
eru þeir hólpnir í bili og er Burnley
með forskot á Leeds þegar kemur
að markatölu. Leeds þarf því að ná
úrslitum og um leið treysta á hag-
stæð úrslit hjá Newcastle en félagið
sem fer niður verður af gríðarlegum
fjárhæðum sem fylgja því að leika í
ensku úrvalsdeildinni. nJóhann Berg er með samning við Burnley fram á næsta sumar.
22 Íþróttir 21. maí 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 21. maí 2022 LAUGARDAGUR
Eftir baráttu Manchester City
og Liverpool um enska meist-
aratitilinn, ráðast örlögin um
helgina. Bítlaborgarmenn
þurfa að treysta á fyrrverandi
hetju félagsins, Steven Gerr-
ard, í stjórastól Aston Villa, á
sama tíma og félagið mætir
Wolves. Erkifjendur berjast
um hið verðmæta fjórða sæti
og Jóhann Berg Guðmunds-
son gæti kvatt ensku úrvals-
deildina.
kristinnpall@frettabladid.is
ENSKI BOLTINN Í annað sinn á
fjórum árum eru Liverpool-menn
hársbreidd frá titlinum þegar
lokaumferðin er fram undan, en
þurfa líklegast að horfa á eftir
meistaratitlinum til Manchester
City. Það er kunnuglegt stef fyrir
Jürgen Klopp og hans lærisveina að
þurfa að treysta á kraftaverk á sama
tíma og þeir leika sinn leik en þeir
eru með hauk í horni. Gerrard átti
það til að bjarga Liverpool á ótrú-
legustu stundum sem leikmaður
og væri eflaust til í að enda fyrsta
tímabil sitt í ensku úrvalsdeildinni
á jákvæðan máta og hjálpa um leið
fyrrum vinnuveitendum sínum.
Í grunninn er staðan einföld.
Lærisveinar Pep Guardiola þurfa
sigur gegn Aston Villa og þeir verða
Englandsmeistarar í áttunda sinn
í sögu félagsins. Ekkert fær það
stöðvað ef City vinnur Aston Villa,
sem hefur í raun að engu að keppa.
Ekki nema Aston Villa deili fimmta
sæti með Manchester City yfir sigur-
sælustu lið efstu deildar frá upphafi.
Ef leiknum lýkur með jafntefli eða
óvæntum sigri Aston Villa, gæti enn
farið svo að City verði meistarar en
þá þurfa þeir að treysta á Wolves á
Anfield. n
Lítið sem ekkert sem hefur skilið toppliðin að
Ef lærisveinar
Guardiola verða
ekki tilbúnir
gegn Aston Villa
um helgina eru
Liverpool-menn
að anda ofan í
hálsmálið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Staðan fyrir 38. umferðina
1. Manchester City 90
2. Liverpool 89
3. Chelsea 71
4. Tottenham 68
5. Arsenal 66
6. Manchester United 58
7. West Ham 56
8. Wolves 51
9. Leicester 49
10. Brighton 48
11. Brentford 46
12. Newcastle 46
13. Crystal Palace 45
14. Aston Villa 45
15. Southampton 40
16. Everton 39
17. Burnley 35
18. Leeds 35
19. Watford 23
20. Norwich 22
Leikir í lokaumferð:
Manchester City Aston Villa
Liverpool Wolves
Chelsea Watford
Arsenal Everton
Norwich Tottenham
Burnley Newcastle
Brentford Leeds
Crystal Palace Manchester United
Brighton West Ham
Leicester Southampton
Barist á öðrum vígstöðvum um afar verðmæt sæti
Salah er í kjörstöðu í baráttunni um
gullskóinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY