Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 24
Tónlistarkonan Bríet stígur
á svið Eldborgar í kvöld og
gefur aðdáendum tvö önnur
tækifæri á að sjá tónleikana
sem hlutu titilinn Tónlistar-
viðburður ársins á Íslensku
tónlistarverðlaununum.
bjork@frettabladid.is
Við náum tali af Bríeti þar
sem stutt stund er á milli
stríða við undirbúning
tónleikanna. „Þetta er
alveg 40 manna teymi
sem ég er búin að sanka að mér til að
gera þetta fullkomið,“ segir Bríet, en
útgáfutónleikar hennar urðu loks að
veruleika í október, færri komust að
en vildu og var því afráðið að stilla
aftur upp í „show-ið“, sem vakti
gríðarleg viðbrögð.
„Það eru allir með metnað fyrir
því að gera enn betur en í fyrra og þá
vill maður laga hér, bæta við dressi
hér eða bæta við dansinn hér, svo
ósjálfrátt verður þetta jafn mikil
vinna og upphaflega,“ segir hún, en
þegar þessi orð eru rituð eru enn
einhver sæti laus á seinni tónleika
kvöldsins.
„Verandi með svona skapandi
fólki eins og Aðalheiði Halldórs
danshöfundi, þá bara fara allir af
stað af ótrúlegum metnaði.“
Bríet segir undirbúning slíks
kvölds þéttan. „Við erum að tala um
hljómsveitar- og dansæfingar, svo
hanna ég líka öll fötin með Sigríði
Ágústu, klæðskera og fatahönnuði.
Við erum saman í hugmyndaferlinu
en svo er hún hendurnar og heilinn
sem gerir þetta allt saman.“
Æfa þurfti nýja hljómsveit fyrir
kvöldið þar sem þeir Rubin Pollock
og Þorleifur Gaukur Davíðsson, sem
spiluðu ásamt f leirum á útgáfu-
tónleikunum, eru nú á tónleika-
ferðalagi með sveit sinni, Kaleo.
Eins þurfti að æfa upp danssporin.
Æfingar hafa því verið þéttar og eins
fundarseta með ljósamönnum og
þeim sem sjá um hár og förðun.
Ársundirbúningur
„Þetta er erfitt þegar maður vill vera
með puttana í öllu,“ segir Bríet í létt-
um tón, en hugmyndir og hönnun
á bak við tónleikana eru í höndum
hennar og tónlistarmannsins Krist-
ins Arnars Sigurðssonar, betur
þekkts sem Krassa-sig.
„Við Kiddi byrjuðum á hug-
myndaferlinu fyrir ári síðan. Hann
fór þá að hanna leikmynd og við
erum svo búin að vera að stilla upp
og raða og breyta. Þetta er náttúr-
lega sama beinagrindin og var í
október en við erum búin að þétta
og fullkomna þetta.“
Aðspurð hverju áhorfendur eigi
von á í kvöld svarar Bríet: „Þetta
er aldrei sama show-ið þótt beina-
grindin sé sú sama. Það voru svo
margir svekktir að missa af síðast
svo það var komin pressa á að gera
þetta aftur. Maður smíðaði þennan
turn frá grunni og á þetta allt saman
svo það var bara um að gera að
henda í aðra tónleika. Það er svolítið
hellað að vinna að einhverju í hálft
ár og svo er þetta bara eitt show –
ein algjör sprengja og svo bara takk
og bless.“
Spilar um landið í sumar
Eftir tónleikana er helst tvennt á
döfinni hjá Bríet. „Ég er að reyna
að fara að læsa mig inni í stúdíó-
inu til að taka upp nýtt efni og svo
langar mig líka að flakka um landið
í sumar og taka þessi litlu gigg þar
sem ég fæ bara fáa inn á stað og
spila,“ segir Bríet, sem er enn að
vinna í dagskránni sem er að mynd-
ast en segist alla vega ákveðin í að
heimsækja Vest- og Austfirði.
Fyrsta plata Bríetar var kveðja til
fyrri og núverandi ástarsambanda
og segja má að hún hafi slegið í gegn
á einni nóttu. Bríet segir eitthvert
efni tilbúið í stúdíóupptöku. „Það
er alltaf eitthvað til.“
En hvert verður umfjöllunarefni
nýrrar plötu?
„Ég veit aldrei alveg hvað ég er að
hugsa,“ segir hún einlæg. „Akkúrat
núna er ég glöð – svo kannski förum
við aðeins inn í gleðina bara.“ n
Akkúrat núna er ég glöð
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Stýrivaxta-
tæki Seðla-
bankans
er verra en
gagnslaust.
Það er stór-
skaðlegt.
Útgáfutónleikar Bríetar hlutu verðlaun sem Tónlistarviðburður síðasta árs og verða endurteknir í Eldborg í kvöld.
Bríet stefnir á að læsa sig inni í stúdíói. MYNDIR/BERGLAUG PETRA GARÐARSDÓTTIR
Ingvar
gleymir því
aldrei
hversu
nálægt
hann
komst
dauðanum
í nóvem-
bermánuði
árið 2015.
BJORK@FRETTABLADID.IS
Við mælum með
Á einu ári hafa stýrivextir Seðla-
bankans farið úr 0,75 í 3,75 pró-
sent. Almenn samstaða er innan
fjármálakerfisins að vextir muni
áfram hækka skarpt og verða í 5-6
prósentum um áramót. Þeir eiga svo
að haldast háir í mörg ár.
Svona vaxtahækkanir eru for-
sendubrestur fyrir heimili og
atvinnulíf. Hækki stýrivextir í 5,75
prósent fyrir áramót hefur greiðslu-
byrði 25 milljóna óverðtryggðs láns
aukist um 1,25 milljón á ári, eða um
meira en 100 þúsund á mánuði.
Vextir óverðtryggðra lána hækka
og vextir verðtryggðra lána hækka
um leið. Í vikunni tilkynnti Íslands-
banki um eins prósents hækkun
vaxta óverðtryggðra húsnæðislána.
Um leið lækkar bankinn vexti
verðtryggðra lána um 0,9 prósent!
Svona skollaleikur kemur engum
böndum á neitt í hagkerfinu. Stýri-
vaxtatæki Seðlabankans er gagns-
laust. Raunar verra en gangslaust.
Það er stórskaðlegt.
Bankarnir nota nú tækifærið til
að soga viðskiptavini sína á ný yfir í
verðtryggðu lánin sem fólk hafnaði
á meðan vextir hér á landi voru eitt-
hvað í námunda við það sem tíðkast
í öðrum löndum.
Nú skal fólkið aftur rekið á „rétt-
an“ bás.
Hafi ætlun Seðlabankans verið
að slá á verðbólgu, sem að stærstum
hluta er raunar innflutt og ónæm
fyrir stýrivöxtum Seðlabankans,
hefðu önnur tæki en vaxtatækið
verið nærtækari og skilvirkari.
Hægt hefði verið að setja á tíma-
bundinn skylduséreignarsparnað.
Fólkið rekið aftur á „réttan“ bás
Einnig hefði verið hægt að stytta
leyfilegan lánstíma á nýjum hús-
næðislánum og setja hömlur við
umsvifum lögaðila á húsnæðis-
markaði.
Seðlabankinn hafði ótal leiðir til
að slá á þenslu á fasteignamarkaði.
Hann valdi þá ónýtustu. Hún var
hins vegar sú eina sem flytur millj-
arðatugi frá heimilum og atvinnu-
lífi til fjármálakerfisins og fjárfesta.
Seðlabankinn kaus að beita
vöxtunum sem vopni gegn fólkinu
í landinu. n
Sögur eins og sú sem Ingvar Ómarsson
segir hér í forsíðuviðtali þessa tölublaðs
eru sagðar til að vekja aðra til umhugs-
unar. Ingvar sem notaði reiðhjólahjálm,
einfaldlega vegna þess að allir gerðu
það, getur þakkað hjálminum líf sitt í dag. Án
hans hefði hann varla lifað árekstur við mótor-
hjól á 80 kílómetra hraða, af, eða hefði alla vega
hlotið af því varanleg örkuml.
Þó svo við séum flest því marki brennd að
læra seint af annarra reynslu og þurfum helst
að skaðbrenna okkur sjálf áður en við áttum
okkur á því að súpan sé heit, þá munum við
mörg einhverja svona sögu.
Sögu sem hefur skilið eitthvað eftir og hreyft
við okkur, sögur sem við hugsum til þegar
við festum bílbeltið, kippum tvisvar í hurðar-
húninn, göngum aftur fyrir bílinn áður en við
bökkum og þar fram eftir götunum.
Ingvar gleymir því aldrei hversu nálægt hann
komst dauðanum í nóvembermánuði árið 2015.
Og þó hann hafi aldrei hugsað út í hjálma-
notkun áður, mun hann aldrei gleyma henni
héðan af.
Hann var heppinn. Það eru það því miður
ekki allir. n
Víti til varnaðar
Sky Lagoon
Ef þú ert enn ekki búin/n að prófa
vinina í Kópavogi mælum við með
að þú gerir það hið snarasta. Lónið
er allt sem þú getur ímyndað þér
og meira en það. Nú er boðið upp á
fjórar leiðir til að njóta lónsins allt
frá 6.990 krónum að 23.990 sem er
mömmupakkinn sem inniheldur
töluvert meira og er aðeins í boði út
maímánuð. En mundu að þú þarft
að panta tíma fyrir fram. Stórsöngvarinn Andrea Bocelli
syngur í Kórnum í kvöld. Um er að
ræða stærsta sitjandi tónleikahald
Íslandssögunnar. Stjórnandi er Mar-
cello Rota og Maria Aleida Rodriguez
syngur sópran. Þá er íslenska popp-
söngkonan Jóhanna Guðrún sér-
stakur gestur. Sinfóníuhljómsveitin
SinfoniaNord leikur undir ásamt
kór frá Söngsveitinni Fílharmóníu.
Bocelli hefur selt fleiri en 90 plötu-
titla á heimsvísu og nær að sameina
stóran aðdáendahóp. Fyrri hluti
kvöldsins er helgaður klassískari
óperuverkum og síðan flytur Bocelli
sínar vinsælustu ballöður. n
Bocelli sem beðið er eftir
24 Helgin 21. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 21. maí 2022 LAUGARDAGUR