Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 32

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 32
 Blokkeraði andlegu áhrifin Tveimur mánuðum eftir útskrift var Ingvar kominn til Tenerife þar sem hann ætlaði að dvelja í fimm vikur og koma sér aftur í form. „Það var mjög erfiður tími. Ég var alltaf að reka mig á að geta ekki gert það sem ég vildi gera og þarna fór ég hægt og rólega að átta mig á andlegu áhrifunum. Þau hafði ég blokkerað fyrstu vikurnar. Þegar þarna var komið áttaði ég mig á því að ég væri pínu þunglyndur, leiður.“ Ingvar lýsir því hvernig hann hafi orðið tilfinninganæmari, opnari á einhvern hátt. „Ég hjólaði upp á eldfjallið, Teide, þar sem ég sá dauðan íkorna. Ég bara fór að gráta, eins og þetta væri barnið mitt,“ lýsir Ingvar og reynir að lýsa breytingunni sem varð tíma- bundið á tilfinningalífinu eftir slys- ið. „Mér leið meira – var ekki sami kassi eða vélmenni. Ég fór að blogga um það hvernig mér leið. Ég hafði mikið meira að segja og var í betri tengingu við sjálfan mig. Ég reyndi eins og ég gat að halda í þetta en svo eftir svona ár lokaðist á þetta aftur. Ég hugsaði þá: „Af hverju mátti ég ekki bara vera svona?“ Ingvar segir þessa hlið á sér þó ekki alveg horfna. „Ég er þakklátari fyrir lífið. Maður er einhvern veginn betri manneskja. Ég var ákveðinn í að sigrast á þessu. Draumurinn um að verða rosa góður hjólari var enn lifandi,“ segir Ingvar og er viss um að án hans hefði hann átt erfitt með að sætta sig við slysið. „Ég var nýbyrjaður og strax sleginn niður.“ Held ég hafi verið hræðilegur Árið eftir slysið, 2016, reyndist stormasamt. „Ég var svo leiserfókuseraður á að sanna mig, fyrir sjálfum mér fyrst og fremst, en einnig þeim sem höfðu aðstoðað mig.“ Ári eftir alvarlegt slys þar sem Ingvari var vart hugað líf tók hann þátt í 44 keppnum, þar af 24 í útlöndum. „Þetta ár var ég í versta formi ferilsins, versta andlega ástandinu og með f lestar keppnir. Ég þurfti að vera að non stop. Kærastan mín neitaði að koma með mér í ein- hverjar af mínum keppnisferðum og þurfti að jafna sig á allt annan hátt en ég. Við hefðum alveg getað hætt saman þetta ár. Ég held ég hafi verið alveg hræðilegur,“ segir hann einlægur. Keppnirnar gengu vel til að byrja með en svo fór gengið niður á við. Hann var ekki tilbúinn. „Ég var orðinn hræðilegur í lokin. En á sama tíma, undir lok ársins var ég fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í Heimsmeistaramótinu í fjalla- hjólreiðum svo ég var að gera fullt af nýjum hlutum líka. Ég var ekki búinn að gefast upp og það var ekki búið að drepa mig. Ég var bara lif- andi á einhverri rosalega sterkri jákvæðri orku og þurfti að gera ákveðna hluti.“ Enn á uppleið í sportinu Parið f lutti svo til Danmerkur þar sem það bjó í tvö ár. „Ég keppti á fullu, á veturna fór ég nokkrum sinnum til Spánar til að æfa og flaug svo út um allt til að keppa. Maður var aldrei að staldra við en hægt og rólega hætti þetta slys að vera hluti af lífinu. Nú erum við búin að búa hér á Íslandi í fjögur ár og ég er enn á uppleið í þessu sporti svo það eru engin merki um að þetta slys hafi hægt á mér. En þetta er lífsreynsla sem maður gleymir aldrei. Ingvar er í dag í hópi 50 bestu fjallahjólreiðamanna heims en því markmiði náði hann á síðasta ári. „Ég fór alla leið úr sæti hundrað þrjátíu og eitthvað í sæti 42.“ Ingvar er 33 ára gamall og á besta aldri í hjólreiðasportinu að eigin sögn. „Það fer svolítið eftir greinum en heimsmeistarinn í fjallahjólreiðum er 36 ára og elsti heimsmeistari sög- unnar er 39 ára.“ Erfitt að fara í keppnisferðir Í lok september fer Heimsmeistara- mótið í fjallahjólreiðum fram í Danmörku og ætlar Ingvar sér stóra hluti þar. „Ég gæti ekki verið nær mínum heimavelli svo þetta er mögulega tækifæri til að gera eitthvað merki- legt. Ég er ekki að segja að ég sé að fara að vinna þetta mót en ég gæti náð besta árangri ferilsins.“ Eins og fyrr segir eignuðust þau Ingvar og Iðunn nýverið dótturina Elvu Lóu. Hefur tilkoma hennar ekki breytt miklu fyrir atvinnuíþrótta- manninn sem er vanur að vera með leiserfókus? „Jú, ég sef aldrei,“ segir hann og hlær. „Það er óþolandi að viður- kenna það fyrir sjálfum sér en það er merkilega erfitt að fara í keppnis- ferðir núna. Það er klárlega eitthvað sem skiptir meira máli en sportið í dag. Það gerir mann líka yfirvegaðri að þó eitthvað klikki í sportinu er það kannski ekki það versta sem getur komið fyrir mann. Á sama tíma er það atriði hjá mér að láta ekki breyttar aðstæður dempa mín markmið, ég er að reyna að finna þennan ballans og það tekur tíma. Ég má ekki slá af því sem ég er að gera en það má aldrei bitna á fjöl- skyldunni.“ ■ Ingvar lenti beint á höfðinu og er talið fullvíst að hjálmurinn hafi bjargað lífi hans. Gera þurfti tvær aðgerðir á höfði hans samtímis og voru taldar um 10 prósent líkur á því að hann lifði þær af. mynd/aðsend Ingvar ásamt konu sinni, Iðunni Örnu, og dóttur þeirra, Elvu Lóu, sem Ingvar hefur aldrei fundið lyktina af enda fór lyktarskynið við höfuðhöggið. Ingvar er enn á uppleið í sport- inu og segist vinna í því að finna jafnvægi milli atvinnu- mennskunnar og föðurhlut- verksins. Ég má ekki slá af því sem ég er að gera en það má aldrei bitna á fjölskyldunni. Ég er ekki að segja að ég sé að fara að vinna þetta mót en ég gæti náð besta árangri ferilsins. 32 Helgin 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.