Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 38
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Mannauðsstjórnun hefur þróast
hratt undanfarna áratugi og hefur
breyst frá því að vera „starfs-
mannahald“ – þar sem mesta
áherslan var lögð á að halda starfs-
mannakostnaði í lágmarki, ráða
inn það fólk sem hendi var næst,
borga út laun og túlka kjarasamn-
ingsákvæði – yfir í að vera þroskað
fag mannauðsfólks sem leikur
lykilhlutverk í að fyrirtæki og
stofnanir nái að koma stefnu sinni
í framkvæmd.
Mannauðsfólk er hreyfiafl
breytinga
Á tímum heimsfaraldurs og
mikilla breytinga hefur kristallast
skýrt að mesti auður fyrirtækja er
fólkið sem vinnur hjá því. Til að ná
árangri skiptir öllu máli að laða til
sín framúrskarandi fólk, ráða rétta
einstaklinga í rétt hlutverk, skapa
vinnuumhverfi þar sem fólki líður
vel, þar sem það fær að nýta hæfi-
leika sína til fulls og vaxa í starfi.
Góður mannauðsstjóri er lykill
að því að þetta gangi upp. Hann
mótar stefnu varðandi mannauð
og menningu ásamt því að efla og
styðja aðra stjórnendur í því að
vera framúrskarandi leiðtogar sem
hlúa sem allra best að starfsfólki.
Mannauður, félag mannauðs-
fólks á Íslandi, er sístækkandi félag
þeirra sem starfa við mannauðs-
mál eða sérhæfa sig í ráðgjöf og
sölu á mannauðstengdri þjónustu.
„Félagsfólki hefur fjölgað hratt
undanfarin ár og í vikunni náðum
við þeim tímamótum að verða 600
talsins,“ segir Ásdís.
Hlutverk félagsins er að efla
fagmennsku, vera framsækið og
leiðandi á sviði mannauðsstjórn-
unar í þágu atvinnulífsins. Félags-
fólk er fjársjóður Mannauðs, en við
erum fagfélag sem byggir á öflugu
tengslaneti þar sem félagsfólk
getur „sótt og veitt“ stuðning og
faglega hvatningu. Við höfum lagt
mikla áherslu á að vera vakandi
fyrir straumum og stefnum svo
félagið geti verið faglegur vegvísir
í atvinnulífinu, geti haft mótandi
áhrif og verið hreyfiafl breytinga.
„Ég held satt best að segja að það
hafi aldrei verið jafn spennandi
að vera í mannauðsmálum og nú,
síðustu ár hafa vægast sagt verið
rússíbani. Mannauðsfólk hefur
verið í lykilstöðu til að bregðast við
og aðlagast áskorunum heims-
faraldurs og setja fólk í forgang.
Annað eins tækifæri hefur ekki
gefist til að nýta þekkingu okkar
og reynslu í að leiða breytingar og
móta vinnustaði okkar til fram-
tíðar.“
Fólk í forgang – mannauðsstjór-
inn er strategískur bandamaður
Í framkvæmdastjórn flestra
fyrirtækja er mikill fókus settur á
reksturinn. Það finnst öllum sjálf-
gefið að verja mikilli orku og tíma
í að ræða rekstrar- og efnahags-
reikninga, fjármuni og fjármögnun.
Þótt það sé að sjálfsögðu nauðsyn-
legt líka, þá skýtur skökku við hve
fyrirferðarmikill slíkur fókus er,
á kostnað þess að framkvæmda-
stjórnin gefi sér tíma til að ræða
það sem snýr að starfsfólkinu sjálfu
– undirstöðu þess að reksturinn
geti yfirhöfuð gengið vel.
Snjallir leiðtogar vita að árangur
er í fólkinu falinn og það sem eitt
sinn dugði til að laða að starfsfólk
gerir það ekki lengur. Rannsóknir
sýna að það er ekki launatalan
ein og sér sem heldur fólki í starfi.
Hlutir eins og að upplifa að maður
sé að vaxa, að maður fái orku úr
viðfangsefnum sínum og sam-
skiptum við samstarfsfólk, það að
upplifa að maður tilheyri og að það
sé tilgangur með því sem maður
er að gera vegur töluvert þyngra
hjá fólki í dag. Traust á vinnustað
og sálrænt öryggi er forsenda þess
að byggja upp menningu þar sem
hugmyndir blómstra, starfsfólk
upplifir ánægju í starfi og keppist
við að ná árangri, en slíkt skapar
ótvírætt samkeppnisforskot.
„Ef þú horfir á framkvæmda-
stjórnir fyrirtækja hér á Íslandi,
hvaða manneskja er það sem
hefur mestu þekkinguna á þessum
málum og mun setja þau á dag-
skrá? Hiklaust mannauðsstjórinn,“
segir Ásdís.
Þarf áhuga og skilning
Hér er umbótatækifæri til staðar,
því rannsóknir sýna að þó svo
að framkvæmdastjórar um allan
heim líti svo á að ein mesta áskorun
þeirra sé að laða að og halda í hæft
starfsfólk, þá raða þeir mann-
auðsteymi sín trekk í trekk sem
áttundu eða níundu mikilvægustu
skipulagseiningu fyrirtækisins.
Þetta verður að breytast. Mann-
auðsstjórar geta öskrað sig hása
við að reyna að sýna fram á virðið
sem þeir geta skapað, en lítið gerist
ef framkvæmdastjórinn áttar sig
ekki á mikilvægi þess að hlusta.
Sumir framkvæmdastjórar kvarta
yfir að mannauðsstjórinn sé svo
upptekinn í „admin“-hlutverki og
skilji ekki bissnessinn. Það er hins
vegar í þeirra valdi að lyfta hlut-
verkinu upp og veita meira umboð,
rétt eins og þeir gerðu við hlutverk
fjármálastjórans sem upp úr 1980
aðallega fól í sér hefðbundna bók-
haldsvinnu. Rétt eins og fjármála-
stjórar í dag styðja við að fyrirtæki
komi stefnu sinni í framkvæmd, þá
getur mannauðsstjórinn stutt við
árangur framkvæmdastjórans með
því að byggja upp og efla hæfni
stjórnenda og starfsfólks og leyst
heilmikla orku úr læðingi innan
fyrirtækisins.
Hjá framsýnustu fyrirtækjunum
er það svo orðið þannig að það er
ekki einungis ábyrgð mannauðs-
stjórans að setja málefni starfs-
fólks á dagskrá, heldur er krafan
sú að allir í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins búi yfir blöndu af
rekstrarþekkingu og þekkingu á
mannauðsmálum og taki jafnt mið
af þeim við skipulag og ákvörð-
unartöku. „Að mínu viti eiga stjórn-
endur ekki erindi í framkvæmda-
stjórn nema þeir hafi áhuga og
skilning á vinnustaðamenningu,
fólki og því sem hvetur það áfram,“
segir Ásdís að lokum. n
Hlutverk félags-
ins Mannauðs
er að efla fag-
mennsku, vera
framsækið og
leiðandi á sviði
mannauðs-
stjórnunar í
þágu atvinnu-
lífsins, upp-
lýsir Ásdís Eir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Um Ásdísi Eiri
Ásdís Eir Símonardóttir er
formaður Mannauðs, félags
mannauðsfólks á Íslandi.
Ásdís er vinnusálfræðingur
að mennt og starfar sem
VP of People & Culture hjá
Lucinity. Lucinity er þriggja
ára nýsköpunarfyrirtæki í
örum vexti sem hefur hannað
hugbúnað fyrir banka og fjár-
tæknifyrirtæki til að hjálpa
þeim í baráttu sinni gegn
peningaþvætti. Hjá Lucinity
leiðir Ásdís uppbyggingu á
hvetjandi starfsumhverfi og
menningu þar sem áhersla er
lögð á umhyggju, nýsköpun
og tækifæri til vaxtar í alþjóð-
legu umhverfi.
Rétt eins og fjár-
málastjórar í dag
styðja við að fyrirtæki
komi stefnu sinni í
framkvæmd, þá getur
mannauðsstjórinn stutt
við árangur fram-
kvæmdastjórans með
því að byggja upp og efla
hæfni stjórnenda og
starfsfólks og leyst
heilmikla orku úr læð-
ingi innan fyrirtækisins.
2 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál