Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 44
Sagt er að leiðtogar
hætti aldrei að
læra, vilji alltaf bæta sig
og gera betur. HR Moni-
tor er rétta verkfærið til
þess.
HR Monitor er hugbúnaður,
sem gerir rauntíma mann-
auðsmælingar, sem Gunn-
hildur Arnardóttir og Trausti
Harðarson hófu að þróa árið
2010. Framtíðarsýnin var þá
og er enn sterk: Allir starfs-
menn eiga að fá tækifæri
til að tjá sig nafnlaust um
vinnustaðinn til þess að
auka gagnsæi á vinnustöð-
um og auka starfsánægju.
Í dag er HR Monitor orðið eitt vin
sælasta mannauðsmælingarkerfi
íslenskra vinnustaða, samkvæmt
Sonju Magnúsdóttur, sem er sölu
stjóri fyrirtækisins.
„Stjórnendur eiga að fá verkfæri
til þess að ná enn meiri árangri.
Með því móti má bæta frammi
stöðu starfsmanna og stjórnenda,
minnka starfsmannaveltu og auka
arðsemi. Árið 2015 hófst forritun
á mannauðshugbúnaði í átt að
því sem hann lítur út í dag og með
styrk frá Tækniþróunarsjóði 2016
fór hugbúnaðargerðin á fulla ferð.
Í dag eru um 200 fyrirtæki og
stofnanir að nýta HR Monitor og
yfir 25.000 starfsmenn þeirra. Árið
er 2022 og atvinnurekendur vita að
nú er keppt í mannauðinum.“
Vöxtur fyrirtækisins hefur verið
mikill undanfarin ár
HR Monitor er lausn frá mann
auðsstjórum til mannauðsstjóra
því vandamálin sem Gunn
hildur og Trausti upplifðu fengu
þau staðfest frá mörgum öðrum
mannauðsstjórum í fyrirtækjum
og stofnunum af öllum stærðum
og gerðum.
„Lykilatriði var að þróa tækni
sem sparar leiðtogum tíma og
gefur rauntíma upplýsingar um
starfsfólkið með það markmið að
bæta vinnustaðinn. Velta fyrir
tækisins hefur vaxið um 40% á ári
og í dag starfa 12 starfsmenn hjá
HR Monitor. Viðskiptavinir eru
bæði íslensk og erlend fyrirtæki.
Flestir vinnustaðir mæla í dag
mannauðinn mánaðarlega eða
annan hvern mánuð og einhverjir
þriðja hvern mánuð en allir hafa
meira og minna það markmið að
ná að mæla mannauð í hverjum
ársfjórðungi eða oftar. Við segjum
gjarnan að HR í HR Monitor standi
ekki bara fyrir human resources
heldur einnig fyrir heart rate. Við
mælum hjarta fyrirtækisins –
starfsfólkið! Það er okkar mat að
við séum að breyta heiminum. HR
Monitor stuðlar að því að stjórn
endur hugi fyrst að starfsfólkinu.
Ánægt starfsfólk hugsar vel um
viðskiptavininn og heldur tryggð
við fyrirtækið. Það er mikilvægt
fyrir okkur að breyta því hvernig
við hugsum um starfsánægjukann
anir. Að okkar mati eru árlegar
vinnustaðagreiningar úreltar.
Við verðum að fá rauntíma upp
lýsingar um mannauðinn til að ná
árangri.
Þótt við séum tæknifyrirtæki
þurfum við að viðurkenna að það
er ekki tæknin sem kemur fyrir
tækjum á toppinn. Það er starfs
fólkið! Við þurfum bara að nýta
okkur tæknina til að ná fram því
besta úr fólkinu okkar.
Framtíðarsýn, tilgangur og
gildi HR Monitor eru skýr. Gildin
einfaldleiki, jákvæðni og kraftur
eru höfð að leiðarljósi í öllu sem er
gert. Það er mikilvægt að leiðtogar
fái tól sem þeir geta treyst og að
starfsfólkið viti að svörin þeirra
séu algjörlega órekjanleg.
HR Monitor eykur virkni
starfsmanna, eykur starfsánægju,
dregur úr starfsmannaveltu, bætir
stjórnendur, gefur stjórnendum
innsýn í mannauðinn og sparar
stjórnendum tíma. Rauntíma
mannauðsmælingar eða púls
mælingar er framtíð starfsánægju
kannanna,“ segir Sonja.
Ýmsar tækninýjungar létta
svörun og þátttöku starfsmanna
„HR Monitor mælir samkvæmt
nokkrum erlendum fræðum mikil
vægustu þætti í umhverfi starfs
manna svo að starfsmenn njóti sín
í starfi, sinni viðskiptavininum vel
og fyrirtækið nái góðri arðsemi. Í
hverri púlsmælingu HR Monitor
eru því 8 lokaðar krossaspurn
ingar og ein opin spurning. Í okkar
gagnagrunni eru 500 spurningar,
af þeim eru 400 akademískar rann
sóknarspurningar úr erlendum
fræðum. Við notum 5 punkta
Likertkvarða sem er algengasti
upplifunarsvarkvarðinn og því
samanburðarhæfur við aðra rann
sóknir.
HR Monitor er á átta tungumál
um sem hentar auðvitað einstak
lega vel fyrir alþjóðlega vinnustaði
og er alltaf hægt að bregðast við
eftirspurn og bæta við fleiri tungu
málum. Lykilatriði hjá HR Monitor
er gagnaöryggi. Það er að sjálf
sögðu unnið eftir persónuverndar
lögum en einnig samkvæmt ISO
27001öryggisstöðlum.
Hægt er að senda mælingarnar
í gegnum tölvupósta, Facebook,
Workplace og SMS á alla starfs
menn. Þá er hægt er að samtengja
öll launa og starfsmannakerfi
eins og Kjarna, H3 og fleiri við HR
Monitor. Svarhlutfall er 8599% í
skrifstofulegu umhverfi og 6075%
í framlínustarfsemi. Í niður
stöðum er hægt að sjá stöðuna í
fyrirtækinu í heild, hvert svið fyrir
sig, allar deildir og hópa.“
Framtíðin björt
HR Monitor er íslenskt hugvit,
séraðlagað Íslandi og íslensku en
í alþjóðlegu umhverfi með leyfi í
Bandaríkjunum og í erlendri sölu
sókn.
Að sögn Sonju er kerfið mjög
notendavænt og einfalt í notkun,
hraðvirkt og gagnlegt.
„Það er sveigjanleiki í kerfinu
til að aðlaga spurningar og búa
til eigin spurningar. Einnig fær
starfsfólk tækifæri til að leggja til
spurningu fyrir næstu mælingu
sem gefur mjög góða innsýn í hvað
brennur á fólkinu. Það er mark
miðið okkar að þróa kerfi sem allir
geta notað. Niðurstöður eru settar
fram á mjög myndrænan hátt í
píramída sem við köllum gjarnan
röntgenmynd fyrirtækisins. Hægt
er að sjá stöðuna í fyrirtækinu
í heild, hvert svið fyrir sig, allar
deildir og hópa.
Viðskiptavinir okkar kunna
að meta mikla reynslu og þekk
ingu stjórnenda HR Monitor sem
endurspeglast í kerfinu. Fræðin
eru lykilatriði svo og sveigjanleik
inn til að þróa kerfið eftir þörfum
viðskiptavina. Það má nefna að
í kerfinu er mjög vinsælt saman
burðartól sem við köllum HR
Rank. Þar geta vinnustaðir borið
sig saman við önnur fyrirtæki sem
eru í mælingum hjá HR Monitor.
Hægt er að velja ákveðinn mánuð
og stærð vinnustaða og fá þannig
yfirsýn yfir eigin stöðu miðað við
önnur fyrirtæki. Þessi samanburð
ur er einnig settur fram myndrænt
í þríhyrningi.“
Mikilvægi rauntíma
mannauðsmælinga
„Í dag er lykilatriði að vera aðlað
andi og eftirsóttur vinnustaður.
Það hefur verið mikil hreyfing á
starfsfólki sem mun hugsanlega
aukast enn frekar eftir Covid19.
Margir telja að ein stærsta áskorun
leiðtoga í dag sé að laða að rétta
fólkið og halda í það. Fólk velur sér
vinnustaði með sterka og jákvæða
fyrirtækjamenningu sem passar
við eigin gildi. Stjórnendur þurfa
því að spyrja sig hver menningin á
þeirra vinnustað er og hver stefnan
er. Það er mikilvægt að skapa sál
fræðilegt öryggi á vinnustaðnum.
Þ.e.a.s. skapa umhverfi þar sem
fólki líður vel og finnur fyrir öryggi
í að setja fram hugmyndir, skoð
anir og athugasemdir. Það eru ekki
allir sem þora að gera það – í t.d.
starfsmannasamtali.
Okkur þykir eðlilegt að taka
ákvarðanir út frá rauntíma
gögnum þegar það kemur að
fjármálum eða kjarnastarfsemi.
Af hverju ætti það að vera öðruvísi
þegar kemur að mannauðsmálum?
Við fögnum því að það er ákveðin
vitundarvakning hvað varðar
rauntímamannauðsmælingar. Við
erum að breyta hugarfarinu og það
eru sífellt f leiri sem sjá verðmætið í
rauntíma mannauðsmælingum.“
Auðveldara að setja upp
reykskynjara en að slökkva elda
„Við leggjum áherslu á að fyrirtæk
in hugi vel að starfsfólkinu sínu,
sýni því ákveðna umhyggju með
reglulegum mannauðsmælingum
og nýti sér rauntíma niðurstöður
til að gera betur. Það er mun auð
veldara að setja upp reykskynjara
en að slökkva elda. Þ.e.a.s. að það
er mun skilvirkara að vinna fyrir
byggjandi vinnu með rauntíma
mannauðsmælingum en að þurfa
að bregðast við vandamálum sem
hafa safnast upp eða stækkað með
tímanum. Sannleikurinn er ekki
alltaf þægilegur. Gagnsæi er ekki
alltaf þægilegt en endurgjöf er dýr
mætasta gjöfin. Sagt er að leiðtogar
hætti aldrei að læra, vilji alltaf
bæta sig og gera betur. HR Monitor
er rétta verkfærið til þess.“ ■
Rauntíma mannauðsmælingar og framtíðarsýn
Sonja Magnúsdóttir, Sigrún Björgvinsdóttir, Hjördís Dalberg, Ágústa Kristrún Ingvarsdóttir og Dominique Elísabet James, starfsmenn HR Monitor. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
8 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál