Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 46
Við vinnum mark-
visst að því að
viðhalda góðri mann-
auðsstefnu, enda trúum
við því að góður starfs-
andi sé einn af lykil-
þáttum til árangurs.
Stjórnendur fyrir-
tækja þurfa að huga
vel að þjálfun mannauðs,
byggja undir og efla
nýsköpun ásamt sí- og
endurmenntun. Það er
sameiginlegt verkefni
aðila á vinnumarkaði að
auka og viðhalda þekk-
ingu og færni til að halda
samkeppnishæfni á
markaði.
Undanfarin tvö ár hefur
framþróun verið hröð í
tækni og hagkvæmni og
hefur Covid hraðað þróun
fjórðu iðnbyltingarinnar
áþreifanlega.
Kjarninn í þessari byltingu er, að
sögn Elínar, meðal annars aukin
hnattvæðing, tæknibreytingar,
sjálfvirknivæðing og nýting gervi-
greindar, sem krefst nýrrar þekk-
ingar og færni af einstaklingum á
vinnumarkaði.
„Sú hraða þróun sem hefur átt
sér stað felur í sér breytingu á
störfum. Ný og spennandi störf
myndast og önnur hverfa. Þessar
breytingar hafa leitt til aukinnar
framleiðni, bættra lífskjara, meira
jafnvægis milli vinnu og einkalífs
og aukinnar verðmætasköpunar,”
segir Elín Hlíf Helgadóttir, eigandi
og stofnandi 20/20 Ráðgjafar,
MBA, mannauðs- og stjórnenda-
ráðgjafi og ACC vottaður ráðgjafi.
„Fyrirtæki þurfa að horfa til
framtíðar, huga að því hvaða
störf verða til í framtíðinni og
hvetja starfsmenn til bæta við
sig þekkingu, til að geta sinnt
breyttum eða nýjum störfum.
Breytt vinnuumhverfi hefur leitt
til þess að samband starfsfólks
og vinnustaða er með öðrum
hætti. Fyrirtæki og stofnanir eru í
auknum mæli að úthýsa að hluta
til eða í heild sérfræðistörfum, til
að geta einbeitt sér að kjarnastarf-
semi og þannig skapast ný störf, “
segir Elín.
Mikilvægi símenntunar
„Fyrirtæki og einstaklingar
þurfa að huga að framþróun
og símenntun til vera sam-
keppnishæf á markaði og bera
sameiginlega ábyrgð á að nauð-
synleg þekking og færni sé til
staðar,“ segir Elín og bætir við:
„Aðilar vinnumarkaðarins verða
að vera reiðubúnir að þróast í
takti við breytingarnar, viðhalda
núverandi þekkingu, ásamt því
að bæta við sig nýrri þekkingu og
færni. Erlendar rannsóknir sýna
að þeir starfsmenn sem búa yfir
hæfni í mannlegum samskiptum,
eru skapandi, hafa getu til að
leysa f lókin verkefni, búa yfir
tilfinningagreind og geta beitt
gagnrýnni hugsun, verði sífellt
eftirsóttari starfsmenn. Mögu-
leikarnir á að þróa færni sína
verða stöðugt fjölbreyttari og góð
ráðgjöf verður sífellt mikilvægari
til að val og ákvarðanir verði sem
bestar. Þá er sífellt mikilvægara að
efla samskiptahæfni ekki síður en
að efla almenna þekkingu.“
Þekking til framtíðar
Breytingarnar sem eiga sér stað í
atvinnulífinu kalla, að sögn Elín-
ar, á sífellda aðlögun einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana til að þau
verði ekki undir í breytingunum.
„Stjórnendur fyrirtækja þurfa
að huga vel að þjálfun mannauðs,
byggja undir og efla nýsköpun
ásamt sí- og endurmenntun. Það
er sameiginlegt verkefni aðila á
vinnumarkaði að auka og við-
halda þekkingu og færni til að
halda samkeppnishæfni á mark-
aði. Því er nauðsynlegt að verja
ákveðnum tíma starfsmanna í
sí- og endurmenntun. Fjárfesting í
þekkingu og færni er því mikil-
vægt veganesti til þróunar fyrir
fyrirtæki og starfsmenn, “ segir
Elín.
„Að lokum vil ég segja: Verum
samkeppnishæf og opin fyrir
nýjum tækifærum á vinnumark-
aði til aukinnar verðmætasköp-
unar fyrir okkur sjálf og íslenskt
atvinnulíf.“ ■
Samkeppnishæf í íslensku atvinnulífi
Elín segir fyfirtæki þurfa að horfa til
framtíðar og hvetja starfsfólk til að
bæta við sig þekkingu. Mynd/aðsend
Askja sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á bifreiðum
frá Mercedes-Benz, Kia
og Honda. Fjölbreyttur og
kraftmikill hópur starfar hjá
Öskju og þar er lagður metn-
aður í mannauðsstefnu sem
skapar gott vinnuumhverfi.
Berglind Bergþórsdóttir er mann-
auðsstjóri Öskju. Hún segir að
Askja hafa sett skýra stefnu fyrir
tveimur árum sem unnin var af
starfsfólki og stjórnendum fyrir-
tækisins. „Markmiðið var að laða
að, ráða, efla og halda í hæft starfs-
fólk. Við leggjum áherslu á að
skapa menningu sem einkennist
af gleði, samvinnu og sveigjan-
leika. Stefnan tekur meðal annars
á því hvernig við stöndum að
ráðningum og móttöku nýs starfs-
fólks, hvaða þætti við leggjum
áherslu á til að skapa starfsum-
hverfi þar sem góður starfsandi,
samvinna og sveigjanleiki eru í
forgrunni. Hún fjallar einnig um
jafnréttismál, hvaða kröfur eru
gerðar til stjórnenda og hvernig
við viljum standa að fræðslu og
starfsþróunarmálum,“ útskýrir
Berglind og bætir við að stefnan
endurspegli marga þætti sem eru
einkennandi fyrir starfsemina.
Má þar nefna sveigjanleika, góðan
starfsanda og samvinnu.
Sjálfbærni og umhverfisvernd
Askja hefur sömuleiðis sett sér
metnaðarfulla stefnu sem snýr að
mikilvægi sjálf bærni og umhverf-
ismálum. „Við viljum vera leiðandi
fyrirtæki í umhverfis- og sjálf-
bærnimálum en með því teljum
við okkur geta laðað að og haldið í
hæfasta starfsfólkið,“ segir hún.
Berglind segir að vel hafi gengið
að fara eftir þeirri stefnumörkun
sem fyrirtækið hefur markað og
er einkennandi fyrir starfsemi
Öskju, sveigjanleiki, góður starfs-
andi og samvinna. „Við vinnum
markvisst að því að viðhalda góðri
mannauðsstefnu enda trúum
við því að góður starfsandi sé
einn af lykilþáttum til árangurs.
Undanfarið höfum við fagnað því
að takmörkunum vegna Covid
hefur verið aflétt og má nefna að
öllu starfsfólki var boðið í bíó á
dögunum, við héldum pílukvöld,
tókum þátt í alþjóðlega plokkdeg-
inum og stóðum fyrir vorfögnuði
þar sem var farið út fyrir bæjar-
mörkin til að gera sér glaðan dag,“
upplýsir hún.
Jafnlaunavottun 2019
Askja hlaut jafnlaunavottun
árið 2019 og hefur verið unnið
að stöðugum umbótum síðan þá
í samræmi við þær kröfur sem
staðallinn gerir. „Eigendur Öskju
eru vel upplýstir um málefni fyrir-
tækisins og fylgjast vel með því
sem er í gangi hverju sinni og það
á líka við um mannauðsmál,“ segir
hún.
Berglind hefur starfað hjá Öskju
í fjögur ár. Starfsferillinn sem
mannauðsstjóri nær þó yfir 12 ár.
Þegar hún er spurð hvort starfs-
fólk leiti til hennar, svarar hún því
játandi. „Mjög margir starfsmenn
leita til mín en ekki síður til síns
næsta stjórnanda. Ég hef lagt mikið
upp úr því að veita stjórnenda-
teyminu stuðning og faglega ráð-
gjöf, enda er mannlegi þátturinn
mjög mikilvægur í stjórnun. Þetta
er skemmtilegt starf og enginn
dagur eins. Þegar maður vinnur
með fólki verður umhverfið lifandi
og fjölbreytt,“ segir Berglind. Hún
segir að hún hafi valið mastersnám
í mannauðsstjórnun þegar fyrst var
farið að bjóða upp á það í Háskóla
Íslands. „Það heillaði mig að koma
inn á vinnumarkaðinn með aukna
þekkingu og fagmennsku á þessu
sviði og ég sé svo sannarlega ekki
eftir þeirri ákvörðun.“ ■
Metnaðarfull
mannauðsstefna
hjá Öskju
10 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðSMál
Elín Hlíf
segir þróunina
á vinnumark-
aðnum hafa
verið hraða
síðustu ár og að
það sé lykilatriði
að starfsfólk og
fyrirtæki lagi
sig að þessari
þróun.
Fréttablaðið/
getty
Berglind segir að sveigjanleiki, góður starfsandi og samvinna séu einkennandi fyrir starfsemi Öskju.
Fréttablaðið/ernir