Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 50
Auk staðbundinna
og stafrænna
námskeiða heldur Iðan
úti mynd- og hljóðvarpi
undir heitinu Augnablik
í iðnaði.
Sigurður Fjalar
Fyrirtæki eru jú
ekkert án starfs-
fólks og þess vegna
skiptir vellíðan á vinnu-
stað öllu máli.
Hjá Líf og sál er unnið náið
með fyrirtækjum og stofn-
unum víðs vegar um landið
og telja eigendur stofunnar
sig mjög lánsama hvað
varðar tengingu og innsýn
inn í íslenskt atvinnulíf og
þar af leiðandi mannauðinn.
Katrín Kristjánsdóttir er sál-
fræðingur og ráðgjafi í mannauðs-
málum hjá stofunni Líf og sál. Að
hennar sögn sést mjög skýrt að
það er aukin vitundarvakning
og vitund hvað varðar mikilvægi
mannauðs.
„Fyrirtæki eru jú ekkert án
starfsfólks og þess vegna skiptir
vellíðan á vinnustað öllu máli. Það
er að okkar mati aukin áhersla á að
gera vel í þeim málum. Við höfum
undanfarið lagt áherslu á sálrænt
öryggi á vinnustöðum. Það skiptir
gríðarlega miklu máli hvað varðar
starfsánægju og þar af leiðandi
auðvitað framleiðni að líða vel í
vinnunni og ekki síður að upplifa
öryggi og traust á vinnustað,“ segir
hún.
Fræðsla fyrir starfsfólk
og stjórnendur
,,Okkar verkefni fela m.a. í sér að
fræða starfsfólk og stjórnendur
um sálfélagslega þætti á vinnu-
staðnum, líkt og samskipti, einelti
og áreitni, streitu og hvernig starfs-
hópurinn tekst á við breytingar
og erfiða tíma. Við höfum einnig
sinnt úttektum á vinnustöðum
varðandi þessa þætti. Við teljum
mjög mikilvægt og leggjum ríka
áherslu á að stjórnendur hafi
skýra stefnu varðandi vellíðan á
vinnustað sem og verklagsreglur
varðandi viðbrögð komi upp atvik
eða aðstæður sem ógna sálfélags-
legu öryggi starfsfólks.
Við höfum fundið fyrir aukinni
vitund og ábyrgð stjórnenda hvað
varðar sálfélagslega áhættuþætti.
Verkefnum okkar þar að lútandi
hefur fjölgað en einnig hafa stjórn-
endur í auknum mæli leitað ráð-
gjafar varðandi slík mál.
Við sinnum auk þess stjórn-
endahandleiðslu og geta stjórn-
endur leitað til okkar til að efla sig
Aukin vitund og
ábyrgð stjórnenda
Katrín Kristjáns-
dóttir, sálfræð-
ingur og ráðgjafi
í mannauðsmál-
um hjá stofunni
Líf og sál, hefur
víðtæka reynslu
af atvinnulífinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Iðan fræðslusetur hefur
það hlutverk að sjá fyrir-
tækjum og fagfólki í iðnaði
fyrir markvissri símenntun,
ráðgjöf og margvíslegri
þjónustu.
Iðan hefur allt árið um kring í
boði sérhæfð námskeið og fræðslu
fyrir fagfólk í bílgreinum, bygg-
inga- og mannvirkjagreinum,
málm- og véltæknigreinum, prent-
og miðlunargreinum og mat-
væla- og veitingagreinum. „Iðan er
hluti af Áttinni (www.attin.is), sem
er samvinna starfsmenntasjóða
til að efla fræðslustarf fyrirtækja
með markvissri niðurgreiðslu á
námskeiðskostnaði. Í Iðunni starfa
jafnframt fimm náms- og starfsráð-
gjafar sem sinna raunfærnimati,
áhugasviðskönnunum, fræðslu-
könnunum ásamt margvíslegri
ráðgjöf. Það verður ekki endur-
tekið of oft hversu mikilvægt er
að sú fræðsla sem innt er af hendi
innan fyrirtækja sé markviss og í
takt við stefnu fyrirtækja og þarfir
starfsmanna. Þar kemur Iðan til
aðstoðar,“ segir Sigurður Fjalar
Jónsson, verkefnastjóri hjá Iðunni.
„Fræðsluframboð Iðunnar er
fjölbreytt og í stöðugri þróun. Auk
staðbundinna og stafrænna nám-
skeiða heldur Iðan úti mynd- og
hljóðvarpi undir heitinu Augna-
blik í iðnaði (https://www.idan.is/
augnablik-i-idnadi/). Það er m.a.
öflugur vettvangur fyrir mann-
auðs- og fræðslumál. Í tilefni af
Alþjóðlega mannauðsdeginum
frumsýnir Iðan fyrsta myndskeiðið
í nýrri röð þátta um mannauðs-
mál. Þáttaröðin er í umsjón Írisar
Sigtryggsdóttur, stjórnanda og
teymisþjálfa hjá Eldar Coaching,
og gestur þessa fyrsta þáttar er
Sigríður Elín Guðlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri mannauðs hjá
Alvotech.
Viðfangsefnið er mannauðsmál
í litlum og meðalstórum fyrir-
Iðan kynnir nýja þáttaröð um mannauðsmál
Fjóla Hauks-
dóttir og
Sigurður Fjalar
Jónsson hjá
Iðunni benda
meðal annars
á fræðandi
hlaðvarpsþætti
þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Þáttaröðin er
í umsjón Írisar
Sigtryggsdóttur,
stjórnanda og
teymisþjálfa hjá
Eldar Coaching,
og gestur þessa
fyrsta þáttar
er Sigríður Elín
Guðlaugsdóttir,
framkvæmda-
stjóri mannauðs
hjá Alvotech.
í krefjandi og flóknu hlutverki. Við
teljum að þar komi að gagni víð-
tæk reynsla okkar af atvinnulífinu
sem og þekking á sálfélagslegum
þáttum. Það er gagnlegt fyrir
stjórnendur að tala í trúnaði um
snúin og viðkvæm starfsmanna-
mál á vinnustað, fá speglun og von-
andi gagnleg ráð. Stjórnendahand-
leiðsla er eitthvað sem að okkar
mati ætti að vera skylda fyrir nýja
sem og reynslumikla stjórnendur.
Það fylgir því mikil ábyrgð að vera
stjórnandi og því mikilvægt að
geta speglað í fullum trúnaði þau
mál sem upp koma á vinnustaðn-
um með utanaðkomandi fagaðila
sem hefur engra hagsmuna að
gæta annarra en þeirra að vinna
vinnuna sína vel!“ n
tækjum. Hægt er að nálgast fyrsta
þáttinn á slóðinni
http://www.idan.is/mann-
audsmal. Í vinnslu er einnig sería
um fræðslumál í umsjón Gerðar
Pétursdóttur, fræðslustjóra Isavia.
Fylgstu með frá byrjun.“ n
Nánar á Idan.is
14 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMAnnAuðsMál