Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 53
„Húsasmiðjan er sterkt og
öflugt fyrirtæki sem byggir á
traustum og sterkum grunni,
en fyrirtækið er 66 ára á
þessu ári. Á öllum þessum
árum er mannauðurinn það
dýrmætasta sem við höfum
skapað,“ segir Edda Björk
Kristjánsdóttir, Mannauðs-
stjóri Húsasmiðjunnar.
Húsasmiðjan rekur byggingavöru-
verslanir um land allt og þjónustar
bæði einstaklinga og aðila í bygg-
ingariðnaði. Húsasmiðjan rekur 14
verslanir undir merkjum Húsa-
smiðjunnar, sjö undir merkjum
Blómavals og fjórar undir merkjum
Ískrafts auk vefverslana fyrir
öll vörumerkin. Það starfa í dag
rúmlega 500 starfsmenn hjá fyrir-
tækinu. „Húsasmiðjan er hluti af
dönsku byggingavörukeðjunni
BYGMA sem starfrækir verslanir
í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og
Færeyjum. Hjá BYGMA starfa sam-
tals um 2.400 manns í meira en 100
verslunum. Fyrirtækið er gríðarlega
sterkt og með góðan rekstur og ég
held að það sé gott fyrir starfsfólkið
að vita af svo sterkum grunni og
eignarhaldi og vilja eigenda til að
hugsa til langs tíma, byggja upp og
fjárfesta í öflugu fyrirtæki, það er
mikið öryggi fólgið í því og starfs-
fólk Húsasmiðjunnar er stolt af
sínum vinnustað,“ segir Edda.
Aukið vægi mannauðs-
og samfélagsmála
„Síðustu ár hefur verið unnið mikið
og gott mannauðsstarf hjá Húsa-
smiðjunni. Við höfum verið að þróa
mannauðsmálin í takti við þarfir
starfseminnar og starfsfólksins,
ásamt almennri þróun á vinnu-
markaði þar sem vægi mannauðs-
mála hefur aukist mikið. Þetta
hefur verið frábær vegferð enda
vilji og kraftur stjórnenda sá hinn
sami. Á sama tíma hefur reksturinn
verið góður og skilaði Húsasmiðjan
sínum besta árangri í rekstri á síð-
astliðnu ári. Nýlega voru svo gerðar
stefnumótandi breytingar hjá
Húsasmiðjunni og er mannauðs-
stjóri nú með sæti í framkvæmda-
stjórn. Þessar breytingar styðja við
stefnumótun félagsins í því að gera
góðan vinnustað enn betri, auka
starfsánægju og skapa eftirsóttan
vinnustað og endurspegla um leið
aukið vægi og áherslu fyrirtækisins
á mannauðsmál,“ segir Edda.
„Vægi umhverfis- og samfélags-
mála hefur einnig aukist mikið og
okkur finnst mikilvægt að axla
ábyrgð og setja fram mælanleg
markmið um það hvernig við
ætlum að hafa uppbyggileg áhrif
á umhverfi okkar og samfélag.
Þetta höfum við lagt mikla áherslu
á undanfarin ár og náð góðum
árangri. Til dæmis hefur síðustu
ár verið stöðug minnkun á þeim
þáttum sem við mælum í losun
gróðurhúsalofttegunda frá rekstri
Húsasmiðjunnar. Þetta teljum
við mikilvægan þátt í því að gera
vinnustaðinn eftirsóknarverðan
og hefur um leið aukið starfs-
ánægju. Samhliða breytingum
á framkvæmdastjórn munu nú
umhverfis- og samfélagsmál Húsa-
smiðjunnar heyra undir mannauð,“
segir Edda.
„Það eru spennandi tímar fram
undan og við munum byggja á því
góða starfi sem unnið hefur verið
síðustu ár þar sem áhersla hefur
verið á nokkra lykilþætti, eins og
fræðslumál og stjórnun. Svo erum
við auðvitað að vinna að því alla
daga að búa til gott, heilsusamlegt
og eftirsóknarvert starfsumhverfi
og stuðla að jákvæðri menningu
innan fyrirtækisins.“
Ræktun mannauðs
Að sögn Eddu þarf að huga að
mörgu þegar kemur að því að rækta
mannauðinn. „Húsasmiðjan hefur
lagt áherslu á að styðja við stjórn-
endur og veita þeim þau verkfæri
sem þarf til að hvetja, skilja og hlúa
að sínu fólki. Þetta höfum við gert
meðal annars með því að bjóða
upp á öfluga stjórnendaþjálfun sem
er sérsniðin að starfsemi Húsamiðj-
unnar og hefur nú meirihluti allra
stjórnenda fyrirtækisins klárað
slíka þjálfun. Það veltur mikið á
stjórnendum þegar kemur að því
að búa til hvetjandi starfsumhverfi
þar sem ríkir traust, starfsfólki
líður vel og að það getur blómstrað
í sínum störfum. Svo er líka gott að
muna að til þess að skilja viðskipti
er gríðarlega mikilvægt
að skilja fólk. Þetta
teljum við vera
einn af lykilþáttum
þess að ná góðum
rekstrarárangri,“ segir
Edda. Ljóst er að mikill
þungi hefur verið lagður
á þessa þjálfun af hálfu
stjórnenda félagsins.
Lærdómsmenning
og tækniþróun
Annar þáttur sem er mjög
mikilvægur í ræktun mannauðs er
þjálfun og fræðsla. „Húsasmiðjan er
stórt fyrirtæki með starfsemi út um
allt land. Ein af okkar áskorunum
í mannauðsmálum er að tryggja
aðgengi alls starfsfólks að fræðslu
og þjálfun hvar sem það starfar
á landinu. Við erum með gríðar-
legt magn af vörum sem fólkið
okkar þarf að hafa góða þekkingu
á. Svo er auðvitað ör tækniþróun
og ýmsar breytingar á störfum og
umhverfi sem þarf að huga vel að.
Í gegnum Húsasmiðjuskólann
höfum við lagt mikla áherslu á
fræðslustarf sem mætir þessum
þörfum. Árið 2021 var metþátttaka
í fræðslustarfinu og erum við mjög
ánægð með það. Við verðum einnig
að huga vel að möguleikum fólks
til þess að þróast í starfi hjá fyrir-
tækinu, gera leiðir starfsþróunar
greiðar og aðgengilegar og ná þann-
ig að auka starfsánægju starfsfólks
og um leið halda dýrmætri reynslu
og þekkingu innan fyrirtækisins.
Við erum með skýrt markmið um
að hér ríki lærdómsmenning
svo að starfsfólki líði vel í sínum
störfum sem um leið skapar okkur,
bæði starfsfólki og fyrirtækinu,
verðmæti og aukið virði,“ segir
Edda.
Fjölbreytileiki skiptir miklu máli
Hjá Húsasmiðjunni starfar fólk
með gríðarlega mikla reynslu, um
land allt. „Það er mikill fjársjóður
og fólk á „besta aldri“ er sérstaklega
velkomið til okkar. Við kunnum
að meta margs konar reynslu,
þekkingu eða menntun og einnig
almenna lífsreynslu. Fólk á besta
aldri sinnir vinnu sinni jafnan vel
og hefur gott vinnusiðferði. Það
getur líka verið þolinmóðara og
víðsýnna. Þetta teljum við vera
jákvætt og okkur finnst eftir-
sóknarvert að fá eldra starfsfólk
til starfa. Það að blanda saman
kynslóðum, þar sem þeir yngri
læra af þeim eldri og öfugt, er besta
blandan og til verður öflug þekk-
ingaryfirfærsla í báðar áttir. Það
sama á við um aðra þætti sem snúa
að fjölbreytileika. Blandaðir hópar
og aukinn fjölbreytileiki getur
skapað jákvæða menningu þar
sem meira umburðarlyndi ríkir. En
það kemur ekki endilega af sjálfu
sér og því er mikilvægt að vinna
markvisst með það. Fjölbreyti-
leiki meðal starfsfólks skiptir
líka máli til að endurspegla
eins og hægt er við-
skiptavini okkar. Ólík
„gleraugu“ gefa okkur betri
upplýsingar svo að hægt sé að veita
betri þjónustu og skilja betur þarfir
viðskiptavina okkar.“
Félagslíf og starfsandi
„Starfsandi er alltaf mikilvægur
í fyrirtækjum og við erum mjög
glöð með að almennt ríkir góður
starfsandi í fyrirtækinu. Við tölum
oft um „Húsasmiðjuandann“ sem
einkennist af gleði, léttleika og
jákvæðni. En auðvitað er starfs-
andi eitthvað sem allir þurfa að
leggja sitt af mörkum við að skapa
og ekki síður fyrirtækið. Þarna eru
mannlegu samskiptin gríðarlega
mikilvæg og það að finnast gaman
í vinnunni og að langa í vinnuna
er svo sannarlega eitthvað sem við
verðum að huga sífellt að. Ein leið
til að stuðla að góðum starfsanda
er að hafa gaman saman. Núna
í júní koma starfsmenn allrar
BYGMA-samstæðunnar saman í
Kaupmannahöfn þar sem haldið
verður upp á 70 ára afmæli fyrir-
tækisins á þessu ári,“ segir Edda að
lokum. n
Nú er sjálfbærniskýrsla húsa-
smiðjunnar aðgengileg í glæsilegri
netútgáfu á husa.is.
Mannauðs- og
samfélagsmál fá enn meira
vægi hjá Húsasmiðjunni
Edda Björk segir
Húsasmiðjuna
hafa lagt aukna
áherslu á
mannauðs- og
samfélagsmál
síðustu ár með
miklum árangri.
Fréttablaðið/Sig-
tryggur ari
Húsasmiðjan tekur virkan þátt í átakinu Hjólað í vinnuna. Hér er mynd af
sigurvegurunum frá því í fyrra. Mynd/aðSend
kynningarblað 17LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál